Innviðaráðherra kærður fyrir brot á siðareglum Alþingis

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hefur verið kærður fyrir brot á siðareglum Alþingis vegna ummæla sem hann viðhafði. Ekki liggur fyrir hver kærði.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Auglýsing

For­sætis­nefnd Alþingis hefur borist kæra gagn­vart Sig­urði Inga Jóhanns­syni for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra fyrir brot á siða­reglum Alþing­is. Þetta stað­festir Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis við frétta­stofu RÚV í dag.

Fram kemur hjá RÚV að gert sé ráð fyrir að erindið verði tekið fyrir á næsta fundi for­sætis­nefnd­ar. Ekki liggi fyrir hver lagði inn kæruna.

For­sagan er sú að Sig­urður Ingi við­hafði rasísk ummæli um Vig­­dísi Häsler fram­­kvæmda­­stjóra Bænda­­sam­tak­anna í þar síð­ustu viku á Bún­að­ar­þingi þegar hann vís­aði til hennar sem „þeirrar svört­u“.

Auglýsing

Sig­­urður Ingi hefur ekki viljað end­­ur­­taka hvað hann sagði nákvæm­­lega og ekki útskýrt af hverju aðstoð­­ar­­maður hans, Ing­veldur Sæmunds­dótt­ir, sagði að hún hefði orðið vitni að atburð­inum og að það væri „al­­gjört bull“ að ummælin hefðu fall­ið. Síðar kom í ljós að hún var ekki nálægt þegar Sig­urður Ingi lét ummælin falla.

Vissi hvað hún heyrði

Vig­­dís sendi frá sér yfir­­lýs­ingu á mán­u­dag­inn í síð­ustu viku þar sem hún sagð­ist vita hvað hún heyrði og hvað var sagt. „Ég hef aldrei látið húð­lit, kyn­þátt, kyn­­­ferði eða annað skil­­­greina mig. Ég hef alltaf talið að verk mín og gjörðir töl­uðu fyrir sig sjálf, en núna tel ég mig knúna til að tjá mig um það sem gerð­is­t. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­­­dómar eru gríð­­­ar­­­legt sam­­­fé­lags­­­mein og grass­era á öllum stigum sam­­­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­l­inga og gjörðir niður í lit eða kyn,“ sagði hún í yfir­lýs­ing­unni.

Þá fund­uðu þau Sig­urður Ingi síð­ast­lið­inn föstu­dag og birti Vig­dís færslu á Face­book í fram­hald­inu þar sem hún sagði að þau hefðu átt „hrein­skil­ið, heið­ar­legt og opið sam­tal“.

Sagð­ist Vig­­dís hafa með­tekið af­­sök­un­­ar­beiðni Sig­­urðar Inga og að hún hefði upp­­lifað hana sem ein­læga. Mál­inu væri lokið af henn­ar hálfu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent