Ísland ekki lengur neðst Norðurlandanna á Regnbogakortinu

Ísland er komið í topp tíu á Regnbogakorti ILGA-Europe, sem er mælikvarði á lagalega stöðu hinsegin fólks í alls 49 ríkjum Evrópu. Stefnan er að fara enn hærra, með frekari réttarbótum til handa hinsegin fólki á Íslandi.

Ísland færist upp um fimm sæti á Regnbogakorti ársins 2022.
Ísland færist upp um fimm sæti á Regnbogakorti ársins 2022.
Auglýsing

Eftir að hafa verið í 18. sæti árið 2019 og 14. sæti árin 2020 og 2021 er Ísland nú komið upp í 9. sæti á Regn­boga­korti evr­ópsku deildar Alþjóða­sam­taka hinsegin fólks (IL­GA-E­urope), en Regn­boga­kortið er mæli­kvarði á það hversu vel ríki Evr­ópu tryggja rétt­indi hinsegin fólks.

Ástæðan fyrir því að Ísland fær­ist upp um sæti er meðal ann­ars sú að breyt­ingar á barna­lögum leiddu til bætts réttar trans for­eldra þegar kemur að for­eldra­skrán­ingu, sam­kvæmt því sem fram kemur í umfjöllun ILGA-E­urope.

Ísland skýst nú upp fyrir eitt hinna Norð­ur­land­anna, en Finn­land fellur um sex sæti á milli ára og er nú í 12. sæti list­ans. Dan­mörk er í 2. sæti, Sví­þjóð í 4. sæti og Nor­egur í 6. sæti, í þess­ari mæl­ingu.

Auglýsing

Regn­boga­kortið tekur til alls 49 ríkja Evr­ópu og trónir mið­jarð­ar­hafs­eyjan Malta í efsta sæti, eins og fyrri ár, en þar í landi er rétt­ar­staða hinsegin fólks trygg­ari en í öllum öðrum ríkjum álf­unnar og upp­fyllir eyríkið 92 pró­sent þeirra atriða sem litið er til í mati ILGA-E­urope.

Á hinum enda kvarð­ans er Aserbaídsj­an, sem upp­fyllir ein­ungis um tvö pró­sent þeirra atriða sem litið er til á Regn­boga­kort­inu. Ísland, til sam­an­burð­ar, upp­fyllir nú um 63 pró­sent atrið­anna.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag segir að Ísland stefni enn hærra, með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um aðgerða­á­ætlun í mál­efnum hinsegin fólks, sem Kjarn­inn fjall­aði um fyrr á þessu ári er drög að henni lágu frammi til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Þar mátti finna alls 17 aðgerðir sem ætlað var að stuðla að rétt­ar­bótum og bættri stöðu hinsegin fólks.

ILGA-E­urope hvetur til þess í umfjöllun sinni um Ísland að íslensk stjórn­völd grípi til frek­ari aðgerða til þess að bæta laga­lega stöðu hinsegin fólks, meðal ann­ars þess að minn­ast sér­stak­lega á kyn­hneigð, kyn­vit­und, kyntján­ingu og kynein­kenni í öllum stefnum sem eru mark­aðar gegn hat­urs­glæpum hér­lendis og til þess að fjallað verði sér­stak­lega um þessi sömu atriði í laga­á­kvæðum sem fjalla um alþjóð­lega vernd.

Þá er sömu­leiðis hvatt til þess að bann við lækn­is­fræði­legum inn­gripum í kynein­kenni inter­sex barna verði útvíkkað frekar hér á landi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent