Ísland í 8. sæti yfir lönd sem nota klámveituna Pornhub mest

pornhub-has-a-billboard-in-times-square1.jpg
Auglýsing

Ísland er í átt­unda sæti yfir þau lönd sem eiga flesta not­endur klám­veit­un­ar Porn­hub, sem er sá stærsti sinnar teg­undar í heim­in­um, þegar miðað er við fjölda heim­sókna á hvern íbúa. Alls voru inn­lit á hvern íslenskan íbúa á vef­inn 95 tals­ins á síð­asta ári.

Mest notkun á veit­unn­i er í Band­arikj­unum þar sem inn­lit á hvern íbúa eru 123. Ísland er á svip­uðum slóðum og hin Norð­ur­löndin á lista Porn­hub yfir notkun á vefn­um. Nor­egur er í fimmta sæti á list­an­um, Sví­þjóð í níunda sæti og Dan­mörk í því tíunda. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Porn­hub yfir árið sem er að líða.Vert er að taka fram að ekk­ert klám­fengið efni er á bak­við hlekk­inn hér að und­an. Hann vísar inn á síðu sem brýtur niður notkun á klám­veit­unni í töl­fræði.

Notk­unin rímar að nokkru leyti við inter­net­notkun heilt yfir. Fleiri Íslend­ingar nota til dæmis inter­netið, miðað við höfða­tölu, en þegnar nokk­urs ann­ars ríkis í heim­in­um. Á þeim lista eru Banda­ríkja­menn, sem nota Porn­hub meira en nokkur ann­ar, í 21. sæti árið 2013.

Auglýsing

Reyna að kom­ast inn á almennan markað



Porn­hub, sem er með höf­uð­stöðvar sínar í Kan­anda, er sú klám­veita sem er mest sótt allra í heim­in­um. Á árinu 2014 var horft á sam­tals 78,9 millj­arða sinnum á mynd­bönd á veit­unni, sem er tölu­verð aukn­ing frá árinu 2013 þegar heild­ar­fjöldi mynd­banda sem horft var á var 63,2 millj­arð­ar. Það þýðir að heim­sóknir á vef­inn á síð­asta ári voru um 5.800 á hverri sek­úndu.

Porn­hub hefur mikið reynt að fá aug­lýsendur og not­endur til að líta á sig sem almennt fyr­ir­tæki sem bjóði þjón­ustu í stað þess að vera flokkað sem skítugt klám­fyr­ir­tæki. Það hefur líka notað þann gríð­ar­lega fjölda heim­sókna sem síðan fær til að reyna að gera það að aug­lýsa meira aðlandi fyrir aug­lýsend­ur. Þessi við­leitni hefur ekki skilað miklu, enda veigra flestir aug­lýsendur sér við að aug­lýsa á stöðum sem bjóða upp á jafn umdeilt efni og Porn­hub.

Haustið 2013 var kvik­myndin Don Jon reyndar aug­lýst á síð­unni, en hún fjallar um mann sem er háður net­klámi.

Skiltið tekið niður



Í októ­ber 2014 lét Porn­hub síðan setja upp risa­vaxið aug­lýs­inga­skilti á Times Squ­are í New York. Skiltið sýndi mynd af tveimur höndum að mynda hjarta utan um vöru­merki Porn­hub með yfir­fyr­ir­sögn­inni „All you need is hand“, sem útleggst á íslensku sem „allt sem þú þarft er hönd“.

Aug­lýs­inga­skiltið var afrakstur sam­keppni sem Porn­hub stóð fyrir í febr­úar 2014 og mið­aði að því að búa til aug­lýs­ingar fyrir fyr­ir­tækið sem væri ekki klám­fengnar en næðu samt að fanga kjarna­starf­semi þess. Sig­ur­veg­ari keppn­inn­ar, tyrk­neski aug­lýs­inga­mað­ur­inn Nuri Gal­ver var val­inn úr hópi yfir þrjú þús­und þátt­tak­enda. Yfir­lýstur til­gangur keppn­innar var inn­reið Porn­hub á almennan aug­lýs­inga­markað og að gera vöru­merkið sitt þekkt utan þess hóps sem þegar sækir í þjón­ustu Porn­hub.

Til að fylgja skilt­inu stóra, sem 16,5×14,6 metr­ar­ að stærð, var ráð­ist í aðra hug­mynd sem kom frá Gal­ver. Hún snérist um að láta fólk af mis­mun­andi þjóð­ern­um, með mis­mun­andi hend­ur, syngja bítla­lag­ið „All You Need Is Love“ með nýju við­lagi sem útleggst „All You Need Is Hand“. Hægt er að horfa á mynd­band af gjörn­ingnum hér að neð­an.

htt­p://yout­u.be/X­eHwQ-Jln60

Skiltið fékk ekki að standa og var tekið niður tveimur dögum eftir að það var sett upp. Dou­bleTree Hilton hót­el­ið, sem aug­lýs­inga­skiltið hékk framan á, setti sig á móti því.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None