Ítarleg rannsókn á fjármálum Björgólfs Thors og Novator

btb.2.000.jpg
Auglýsing

Novator, fjár­fest­ing­ar­fé­lag sem kennt er við stærsta eig­anda þess, Björgólf Thor Björg­ólfs­son, á eignir sem metnar eru á 950 millj­ónir evra, um 150 millj­arða króna. Á móti eru skuldir en ljóst er að Björgólfur Thor hefur komið betur út úr skulda­upp­gjöri sínu, sem til­kynnt var í síð­ustu viku að væri lok­ið, en flestir aðrir risa­skuld­arar hins fallna íslenska banka­kerf­is.

Í til­kynn­ing­unni sem Björgólfur Thor og Novator sendu frá sér vegna loka skulda­upp­gjörs­ins seg­ir: „Um 100 manna her lög­fræð­inga, end­ur­skoð­enda og ann­arra sér­fræð­inga vann að skulda­sam­komu­lag­inu. Ég [Björgólfur Thor] lagði allar eignir mínar und­ir. Þá fengu lána­drottnar aðgang að öllum banka­reikn­ingum mínum og allra félaga minna nokkur ár aftur í tím­ann og gátu þannig gengið úr skugga umað engar eignir voru und­an­skild­ar. Sú rann­sókn­ar­vinna erlendra sér­fræð­inga (for­ensic account­ing) stóð í tæpt eitt og hálft ár og lauk í apríl 201. Ég full­yrði að svo gagnsæ vinnu­brögð hafa ekki verið við­höfð í upp­gjörs­málum neinna ann­arra í íslensku banka­kerf­i.“

Sá aðgangur sem Björgólfur Thor veitti var að svoköll­uðum sam­eign­ar­sjóðum sem hann átti og voru skráðir á aflandseyj­unni Jers­ey. Eignir sem voru geymdar í þessum sjóðum hlupu á millj­örðum króna og sú verð­mætasta var hlutur Björg­ólfs Thors í pólska síma­fyr­ir­tæk­inu Play. Í raun hefði Björgólfur Thor getað sleppt því að veita aðgengi að þessum eign­um, haldið þeim fyrir sig og haldið sig við að þær yrðu ekki hluti af skulda­upp­gjör­inu. En þá hefði að minnsta kosti hluti kröfu­hafa hans ekki sam­þykkt skulda­upp­gjörið og áfram­hald­andi vera Novator í hlut­hafa­hópi Act­a­vis verið í mik­illi hættu. Þar sem Act­a­vis er lang­verð­mætasta eign Novators þótti það ekki skyn­sam­lega teflt. Því var opnað fyrir aðgang að sjóð­un­um.

Auglýsing

Rann­sókn­ar­vinna erlenda sér­fræð­inga fór fram að kröfu þrota­búa Lands­bank­ans. Eng­inn erlendur kröfu­hafi fór fram á slíka vinnu. Hún var fram­kvæmd af Alix Partners í London, sem er eitt stærsta fyr­ir­tæki á sviði fjár­hags­legrar rann­sókn­ar­vinnu í heim­inum í dag. Til að byrja með var samið um að Alix Partners mætti kanna pen­inga­færslur yfir ákveð­inni lág­marks­fjár­hæð. Það reynd­ist hins vegar vera mikil vinna að sigta út hvaða færslur mættu rann­saka og hverjar ekki og því var á end­anum ákveðið að leyfa Axis að fá óheftan aðgang að öllum reikn­ing­um, per­sónu­legum banka­reikn­ingum og banka­reikn­ingum allra eign­ar­halds­fé­laga Novator-­sam­stæð­unn­ar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Novator. Alls unnu 3-4 aðilar að rann­sókn­inni sem stóð yfir frá því í jan­úar 2011 og lauk á end­anum í apríl 2012. Allar þær eignir sem rann­sak­endur fundu voru undir í skulda­upp­gjör­inu.

Öll vinna við rann­sókn­ar­vinn­una var greidd af þrota­búi Lands­bank­ans, þar sem hann var sá kröfu­hafi sem krafð­ist þess að sú vinna færi fram. Kjarn­inn óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvað sú rann­sókn hefði kost­að, hver ávinn­ing­ur­inn af henni hefði verið og hvort sam­bæri­leg rann­sókn hefði verið fram­kvæmd á öðrum stórum skuld­urum bank­ans. Páll Bene­dikts­son, upp­lýs­inga­full­trúi slita­stjórnar Lands­bank­ans, kom því á fram­færi við Kjarn­ann að slita­stjórnin vildi ekki tjá sig um mál­efni ein­stakra aðila og því feng­ust ekki svör við fyr­ir­spurn­inni.

Þetta er aðeins hluti af umfjöll­un­inni um mál­efni Björg­ólfs Thors. Umfjöll­un­ina í fullri lengd má finna í Kjarn­anum hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None