btb.2.000.jpg
Auglýsing

Novator, fjár­fest­ing­ar­fé­lag sem kennt er við stærsta eig­anda þess, Björgólf Thor Björg­ólfs­son, á eignir sem metnar eru á 950 millj­ónir evra, um 150 millj­arða króna. Á móti eru skuldir en ljóst er að Björgólfur Thor hefur komið betur út úr skulda­upp­gjöri sínu, sem til­kynnt var í síð­ustu viku að væri lok­ið, en flestir aðrir risa­skuld­arar hins fallna íslenska banka­kerf­is.

Björgólfur Thor sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í síð­ustu viku þar sem hann sagð­ist hafa lokið 1.200 millj­arða króna skulda­upp­gjöri sínu og Novators við kröfu­hafa sína. Heild­ar­upp­hæð­in, umreiknuð í evrur á gengi dags­ins í dag, er um 7,7 millj­arðar evra. Af þeirri upp­hæð voru um 650 millj­ónir evra, um 101 millj­arður króna, vegna einka­skulda Björg­ólfs Thors sem hann var, að minnsta kosti að hluta, í per­sónu­legri ábyrgð fyr­ir. Restin var vegna skulda sem Novator hafði stofnað til vegna fjár­fest­inga sinna.

Stærsta skuldin vegna Act­a­vis-­yf­ir­­­töku



Þorri þess fjár sem var undir rann til alþjóð­legu bank­anna Deutsche Bank, Stand­ard Bank, Barclays og Fort­is. Um 100 millj­arðar króna fóru til fall­inna íslenskra fjár­mála­stofn­ana. Stærsti hluti fjár­ins rann til Deutsche Bank, sem lán­aði Novator alls 4,2 millj­arða evra þegar það tók yfir Act­a­vis sum­arið 2007. Umreiknuð í íslenskar krónur á gengi dags­ins í dag er sú upp­hæð um 651 millj­arðar króna.

Bróð­ur­partur þeirrar upp­hæðar sem kröfu­hafar Novator eru að end­ur­heimta nú fékkst greiddur þegar sam­heita­lyfja­fyr­ir­tækið Watson keypti Act­a­vis á 4,25 millj­ónir evra vorið 2012. Deutsche Bank hafði í raun tekið yfir stærstan hluta Novator í Act­a­vis fyrir þann tíma og var að selja þann hluta. Novator hélt hins vegar eftir tæp­lega fimm milljón hlutum í sam­ein­uðu félagi, sem í dag er þriðja stærsta sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæki í heimi og skráð á hluta­bréfa­markað í New York.

Síðan þá hefur minni­hluta­eig­andi yfir­gefið eig­enda­hóp Novators og hluti af eign félags­ins í Act­a­vis verið seldur til að standa straum af lög­manns­kostn­aði og til að gera upp við starfs­menn. Í dag á Novator því um 4,3 millj­ónir hluta í Act­a­v­is.

Sú eign var end­ur­fjár­mögnuð í jan­úar 2014 og var þá gert að mestu upp við alla kröfu­hafa sem áttu aðild að skulda­­upp­gjör­inu. Ekki náð­ist að greiða ákveðnar skuldir við Lands­bank­ann og ALMC, eign­ar­halds­fé­lag sem stofnað var utan um eignir Straums fjár­fest­ing­ar­banka eftir að hann fór á hlið­ina. Þær skuldir voru gerðar upp í síð­ustu viku og þá var hægt að til­kynna um lok upp­gjörs­ins.

Hin helsta eign félags­ins er pólska fjar­skipta­fyr­ir­tækið Play, en Novator á 49,5 pró­sent í því eftir að hafa keypt um 25 pró­senta hlut af ALMC, sem áður hét Straum­ur, í febr­ú­ar. Auk þess á Novator stóran hlut í tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­inu CCP (29,83 pró­sent) og allt hlutafé í fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Nova auk þess að vera einn þriggja stærstu hlut­hafa í Verne Hold­ings, sem rekur gagna­ver á Íslandi.

Auglýsing

Þetta er aðeins hluti af umfjöll­un­inni um upp­gjör Björg­ólfs Thors. Lesa má alla umfjöll­un­ina í Kjarn­anum hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None