Í versta falli verð ég rekinn

Foto-2-e1410783521421.jpg
Auglýsing

Óhætt er að full­yrða að Dagur Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi hand­bolta­kappi með Val og fyr­ir­liði íslenska karla­lands­liðs­ins í hand­bolta, sé einn allra eft­ir­sótt­asti hand­bolta­þjálf­ari heims í dag. Frá­bær árangur hans sem leik­andi þjálf­ari með aust­ur­ríska lið­inu Bregenz, sem lands­liðs­þjálf­ari Aust­ur­ríkis og þjálf­ari þýska úrvals­deild­ar­liðs­ins Füsche Berlin hefur ekki farið fram­hjá nein­um.

Afrek Dags á hlið­ar­lín­unni urðu til að mynda til þess að ein stærsta hand­bolta­vef­síða í heimi útnefndi hann besta hand­bolta­þjálf­ara heims árið 2011, fyrir að koma lands­liði Aust­ur­ríkis í fyrsta skipti á stór­mót, þar sem liðið hafn­aði í níunda sæti, og sömu­leiðis fyrir undra­verðan árangur með Füsche Berl­in.

Svo góður rómur var gerður að Degi sem þjálf­ara að danska hand­bolta­sam­bandið fal­að­ist eftir starfs­kröftum hans á síð­asta ári og bauð honum að ger­ast næsti lands­liðs­þjálf­ari karla­liðs Dana í hand­bolta, sem hann hafn­aði. Danska hand­bolta­sam­bandið sneri sér þá til Guð­mundar Guð­munds­son­ar, fyrr­ver­andi þjálf­ara karla­lands­liðs Íslands í hand­bolta, sem þekkt­ist boðið og gegnir stöð­unni í dag.

Lætur gagn­rýni á ráðn­ing­una sem vind um eyru þjóta



Dagur var á dög­unum kynntur til leiks sem þjálf­ari karla­lands­liðs Þjóð­verja í hand­bolta. Ráðn­ing hans hefur verið gagn­rýnd í Þýska­landi, ekki vegna þess að hæfi­leikar Dags séu umdeild­ir, því fer fjarri, heldur svíður mörgum þýskum hand­bolta­kver­úlöntum að útlend­ingur hafi verið ráð­inn til að stýra stærsta hand­boltalands­liðið heims, í sjálfu Mekka hand­bolt­ans; Þýska­landi.

Til marks um and­stöð­una sem ráðn­ing Dags hefur mætt í Þýska­landi hefur sjálfur Heiner Brandt, þýska hand­bolta­­goð­sögnin sem stýrði lands­liði Þýska­lands til sig­urs á EM árið 2004 og HM árið 2007, lýst því yfir að honum hugn­ist ekki að útlend­ingur stýri lands­liði Þýska­lands.

Dagur segir and­stöð­una í Þýska­landi við ráðn­ingu hans ekki hafa komið sér á óvart. „Hún gerir í sjálfu sér ekki neitt annað en að gera mann ein­beitt­ari í að ná árangri. Ef hann næst ekki fer bara eins fyrir mér og öllum öðr­um. Mér finnst ekk­ert skrítið að svona umræða komi upp hjá svo stórri hand­bolta­þjóð, og ég held að sam­bæri­leg umræða færi líka af stað á Íslandi. Þeir eru ekk­ert á móti útlend­ing­um, heldur eru þeir bara að segja sína skoðun á því að þeir hefðu viljað leita þjálf­ara innan sinna raða, og það er bara allt í lagi að þeir hafi þá skoð­un.“

Þetta er stutt útgáfa umfjöll­un­ar­inn­ar. Umfjöll­un­ina í fullri lengd má nálg­ast í Kjarn­an­um.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None