Jafn mörg íslensk heimili eru áskrifendur að Netflix og Morgunblaðinu

Morgunblaðið
Auglýsing

Alls eru 18,4 pró­sent íslenskra heim­ila áskrif­endur að streymi­þjón­ust­unni Net­flix þrátt fyrir að hún sé ekki form­lega í boði á Íslandi. Það er sama hlut­fall heim­ila og er með áskrift að Morg­un­blað­inu, stærsta áskrift­ar­blaði lands­ins. Þetta kemur fram í könnun MMR sem gerð var í mars 2015 og sagt er frá í skýrslu nefndar sem greind­i ­þróun á starf­semi RÚV ohf. frá stofn­un, þann 1. apríl 2007, og fram til dags­ins í dag. 

Í skýrsl­unni kemur einnig fram að 29,1 pró­sent heim­ila sé með áskrift að Stöð 2. Heim­ili lands­manna eru um 125 þús­und tals­ins. Það þýðir að áskriftir að Stöð 2 séu rúm­lega 36 þús­und. SkjárEinn, sem opn­aði línu­lega dag­skrá sína 1. októ­ber síð­ast­lið­inn, er ekki langt und­an. Sam­kvæmt könn­un­inni voru 22,8 pró­sent heim­ila með áskrift að stöð­inni í mars síð­ast­liðn­um. Það þýðir að um 28.500 heim­ili lands­ins greiddu fyrir Skjá­Einn.

Áskrift að íþrótta­stöðvum Stöðvar 2 er einnig til­greind í skýrsl­unni. Alls voru 10,9 pró­sent heim­ila með áskrift að Stöð 2 Sport og 10,8 pró­sent með áskrift að Stöð 2 Sport 2, sem sýnir m.a. enska bolt­ann. Vert er að taka fram að 365 miðl­ar, sem á og rekur Stöð 2, selur áskriftir að stöðv­unum í vafn­ingum með áskrift að Stöð 2. Því er tölu­verður hluti áskrif­enda að íþrótta­stöðv­unum einnig taldir með áskrif­endum Stöðvar 2.

Auglýsing

Athygli vekur að 3,9 pró­sent heim­ila í land­inu er með áskrift að sjón­varps­stöðvum Sky. Það þýðir að tæp­lega fimm þús­und íslensk heim­ili greiða fyrir áskrift að Sky.

Net­flix er streymi­þjón­usta þar sem hægt er að nálg­ast mikið magn kvik­mynda, sjón­varps­þátta, barna­efn­is, heim­ild­ar­mynda og ann­ars áhorf­an­legs efn­is. Þjón­ustan hefur þann aug­ljósa kost fram yfir línu­lega sjón­varps­dag­skrá að not­endur geta horft á það efni sem þeir vilja þegar þeir vilja í nán­ast hvaða tæki sem þeir vilja. Áskrift að Net­flix er auk þess mun ódýr­ari en áskrift að þeim sjón­varps­stöðum sem hægt er að ger­ast áskrif­andi að á Íslandi.

Gjör­breytt neyslu­mynstur

Í skýrslu nefnd­ar­innar er farið ítar­lega yfir þær breyt­ingar sem orðið hafa í neyslu­mynstri fjöl­miðla á und­an­förnum árum, með til­komu inter­nets­ins og tækni­bylt­inga á borð við snjall­síma. Þar segir að fram­boð og dreif­ing fjöl­miðla­efnis hafi sam­hliða auk­ist gríð­ar­lega á síð­ast­liðnum ára­tug.

Ísland er ekki und­an­þegið þess­ari breyt­ingu. Þannig hefur heild­ar­á­horf fólks á aldr­inum 18 til 49 ára á sjón­varp dreg­ist saman um tæp 36 pró­sent frá árinu 2009. Ef ein­ungis er horft á línu­lega dag­skrá hefur það tæp­lega helm­ing­ast. Hraði þess­ara breyt­inga er að aukast. Í Banda­ríkj­unum var til að mynda mesti mæl­an­legi sam­dráttur í sjón­varps­á­horfi ungs fólks á síð­asta ári.

Þegar ald­urs­hóp­ur­inn 12 til 80 ára er skoð­aður kemur í ljós að sjón­varps­á­horf á Íslandi hefur minnkað um 28 pró­sent frá árinu 2009. Áhorf á fréttir hefur dreg­ist saman um tæp 17 pró­sent, lang­mest hjá fólki undir fimm­tugu þar sem sam­drátt­ur­inn er 32 pró­sent.

Hlustun á útvarp hefur hins vegar hald­ist nokkuð stöðug und­an­farin ár. Heild­ar­hlustun hefur ein­ungis dreg­ist saman um sex pró­sent frá árinu 2009.

Allir prent­miðlar í frjálsu falli

Það eru ekki ein­ungis sjón­varps­stöðvar sem eiga undir högg að sækja vegna breyt­inga á neyslu­mynstri. Lestur prent­miðla hefur einnig hríð­fall­ið, sér­stak­lega hjá ungu fólki.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um stöðu prent­miðla í sögu­legu sam­hengi í frétta­skýr­ingu í sept­em­ber. Þar kom fram að lestur þeirra hefur minnkað hratt á und­an­förnum árum. Þannig hefur heild­ar­lestur Morg­un­blaðs­ins dreg­ist saman um 35 pró­sent á sex árum, les­endum Frétta­blaðs­ins hefur fækkað um 22 pró­sent frá 2010 og lestur Frétta­tím­ans hefur aldrei verið lægri en hann er um þessar mund­ir­. Þá hefur lestur á DV aldrei verið lægri en hann mæld­ist í ágúst 2015 í 40 ára sögu blaðs­ins.

Staða prent­miðla á Íslandi er samt sem áður afar sterk í alþjóð­legu sam­hengi og þeir taka enn til sín stóran hluta af aug­lýs­inga­birt­ing­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None