Katrín Atladóttir ekki í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í vor

Tveir af átta borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokks hafa nú tilkynnt að þeir muni ekki sækjast eftir endurkjöri. Katrín Atladóttir lýsir yfir stuðningi við Hildi Björnsdóttur.

Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Auglýsing

Katrín Atla­dótt­ir, sem kjör­inn var í borg­ar­stjórn fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018, ætlar ekki að gefa kost á sér til áfram­hald­andi setu. Frá þessu greinir hún í Morg­un­blað­inu í dag en orðrómur um þessa ákvörðun hennar hefur lengi verið í gangi. Katrín mun hefja störf hjá Dohop á vor­mán­uð­um.

Katrín sat í sjötta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks í borg­inni fyrir síð­ustu kosn­ingar og hefur stað­sett sig með Hildi Björns­dóttur í lyk­il­málum sem óein­ing hefur ríkt um innan borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, sér­stak­lega þegar kemur að sam­göngu­mál­um. Í við­tal­inu við Morg­un­blaðið segir Katrín að hún styðji Hildi í leið­toga­próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem er framund­an.

Katrín hóf form­lega stjórn­mála­þátt­töku með því að setj­ast neð­ar­lega á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík suður fyrir þing­kosn­ing­arnar 2016 og 2017. Hún úti­lokar ekki end­ur­komu í póli­tík en segir að það muni ekki ger­ast á næst­unn­i. 

Eyþór heldur ekki í fram­boði

Það eru fleiri úr borg­ar­stjórn­ar­flokki Sjálf­stæð­is­flokks sem verða ekki í fram­boði í vor. Skömmu fyrir jól til­kynnti Eyþór Arn­alds, odd­viti Sjálf­­stæð­is­­flokks í Reykja­vík, að hann væri hættur við að gefa kost á sér til að leiða lista flokks­ins í borg­inni fyrir kom­andi kosn­­ing­­ar, sem fara fram í maí. Áður hafði Eyþór gefið út að hann sækt­­ist áfram eftir odd­vita­­sæt­inu að óbreyttu. Auk hans hafði Hildur Björns­dótt­ir, sem var í öðru sæti á list­­anum í kosn­­ing­unum 2018, til­­kynnt að hún vildi leiða list­ann. Eng­inn annar hefur sem stendur til­­­kynnt fram­­­boð í leið­­­toga­­­sæt­ið.

Auglýsing
Í stöð­u­­upp­­­færslu á Face­book sagði Eyþór að honum hafi snú­ist hug­­ur. Hann muni gegna skyldum sínum út kjör­­tíma­bilið og láta síðan af þátt­­töku í stjórn­­­málum að sinn­i. 

Ákvörð­unin væri tekin af per­­són­u­­legum ástæð­um, ekki póli­­tísk­­um. „Ég er þess full­viss að Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn mun vinna góðan sigur í vor og þeir sem þekkja mig vita að ég ótt­­ast ekki nið­­ur­­stöður í nokkru  próf­­kjöri. Eins er rétt að árétta að ákvörð­unin er algjör­­lega óháð því hvaða fyr­ir­komu­lag sjálf­­stæð­is­­menn í Reykja­vík kjósa að við­hafa við val á fram­­boðs­lista eða hvaða ein­stak­l­ingar munu gefa kost á sér í því vali.“

Könnun gerð um hver ætti að leiða

Kjarn­inn hefur rætt við fólk sem tók þátt í skoð­ana­könnun sem Pró­sent gerði skömmu áður en Eyþór til­kynnti um breytta ákvörðun þar sem meðal ann­ars var spurt hvort fólki hugn­að­ist betur að Eyþór eða Hildur myndu leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn í borg­inni. Nið­ur­staða könn­un­ar­innar hefur ekki verið gerð opin­ber og ekki liggur fyrir hver greiddi fyrir hana. 

Eyþór sagði hins vegar við Kjarn­ann  að ákvörðun hans um að sækj­­ast ekki eftir end­­ur­­kjöri byggði ekki á því að hann eða aðrir hafi verið að láta fram­­kvæma ein­hverjar skoð­ana­kann­­anir þar sem afstaða til hans sjálfs í sam­an­­burði við aðra fram­­bjóð­endur hafi verið mæld á meðal borg­­ar­­búa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent