Katrín sagði forseta frá gangi viðræðna við Bjarna og Sigurð Inga

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna hélt til Bessastaða á fund forseta Íslands í morgun.

Katrín og Guðni Th. á Bessastöðum í morgun.
Katrín og Guðni Th. á Bessastöðum í morgun.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna fund­aði í morgun með Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta Íslands.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu var rætt um við­ræður henn­ar, Bjarna Bene­dikts­sonar for­manns Sjálf­stæð­is­flokks og Sig­urðar Inga Jóhann­sonar for­manns Fram­sókn­ar­flokks und­an­farna daga, og þau áform að þessir þrír flokkar haldi rík­is­stjórn­ar­sam­starfi sínu áfram.

„For­seti mun áfram fylgj­ast með gangi mála eftir þörf­um,“ segir í til­kynn­ingu emb­ætt­is­ins, en eins og sagt var frá á Kjarn­anum í gær hafa stjórn­ar­flokk­arnir rætt óform­lega um verka­skipt­ingu, fjölgun ráðu­neyta og hvaða mál­efni eigi að vera fyr­ir­ferða­mest í stjórn­ar­sátt­mála næstu rík­is­stjórn­ar, náist sam­komu­lag um áfram­hald­andi sam­starf.

Í við­ræðum flokk­anna er gengið út frá því að Katrín verði áfram for­­sæt­is­ráð­herra, en Sig­urður Ingi sæk­ist sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans eftir því að fá fjár­­­mála­ráðu­­neytið á grund­velli auk­ins styrks Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins eftir kosn­­ing­­ar. Við­­mæl­endur Kjarn­ans hafa sagt að Bjarni sé ekki afhuga þess­­ari nið­­ur­­stöðu fái Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn fleiri ráðu­­neyti í sinn hlut í stað­inn. Sjálfur myndi hann þá senn­i­­leg­­ast setj­­­ast í stól utan­­­rík­­is­ráð­herra. 

Auglýsing

Hvernig skipt­ing ráðu­­neyta verður á milli flokk­anna að öðru leyti liggur enn ekki fyr­ir, en búast má við að ráðu­­neytum verði fjölgað til að höggva á þá hnúta sem gætu komið upp í þeim samn­inga­við­ræðum og til að leggja áherslu á helstu stefn­u­­mál nýrrar rík­­is­­stjórn­­­ar.

Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn hefur þegar kallað eftir því að sér­­stakt inn­­við­a­ráðu­­neyti verði að veru­­leika með því að hús­næð­is­­mál verði flutt yfir til sam­­göngu- og sveita­­stjórn­­­ar­ráðu­­neytið og jafn­­vel ein­hver verk­efni sem verið hafa inni í atvinn­u­­vega­ráðu­­neyt­inu.

Þá er vilji innan þess flokks að skipta aftur upp sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráðu­­neyt­inu í tvennt þannig að land­­bún­­aði verði gert hærra undir höfði í sér­­­stöku ráðu­­neyti sem kennt verði við land­­búnað og mat­væli. Sér­­stakt lofts­lags­ráðu­­neyti kemur einnig til greina.

Því gætu ráðu­­neyt­in, í nýrri rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, orðið allt að tólf.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent