Kjarasamningur SGS samþykktur hjá öllum 17 aðildarfélögunum

Yfir 85 prósent þeirra félagsmanna sem greiddu atkvæði um nýjan kjarasamning SGS og SA sögðu já. Samningurinn var samþykktur með afgerandi hætti hjá öllum þeim 17 félögum sem eiga aðild að samningnum.

Vilhjálmur Birgisson er formaður SGS.
Vilhjálmur Birgisson er formaður SGS.
Auglýsing

Kjara­samn­ing­ur­inn á milli Starfs­greina­sam­bands Íslands og Sam­taka atvinnu­lífs­ins á almennum vinnu­mark­aði, sem und­ir­rit­aður var 3. des­em­ber, var sam­þykktur með miklum meiri­hluta atkvæða hjá þeim 17 aðild­ar­fé­lögum SGS sem aðild eiga að samn­ingn­um, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá SGS.

Atkvæða­greiðsla á meðal félags­manna hófst 9. des­em­ber og lauk í hádeg­inu í dag, en kjör­sóknin var 16,56 pró­sent, sem þýðir að rúm­lega 3.900 manns greiddu atkvæði um samn­ing­ana, en alls voru 23.711 manns á kjör­skrám.

Auglýsing

Af þeim sem greiddu atkvæði sögðu alls 85,71 pró­sent já, en 11 pró­sent sögðu nei. Rúm 3 pró­sent tóku hins vegar ekki afstöðu til samn­ing­anna.

Yfir 80 pró­sent sögðu já í 15 félögum af 17

Í til­kynn­ingu frá SGS segir að nið­ur­stöð­urnar hafi verið afger­andi hjá öllum félög­um, og að hjá 15 félögum hafi samn­ing­ur­inn verið sam­þykktur með yfir 80 pró­sentum atkvæða.

Samn­ing­ur­inn á milli SGS og SA telst því sam­þykktur hjá eft­ir­far­andi aðild­ar­fé­lögum Stars­fgreina­sam­bands­ins: AFLi Starfs­greina­fé­lagi, Öld­unni stétt­ar­fé­lagi, Bár­unni stétt­ar­fé­lagi, Dríf­anda stétt­ar­fé­lagi, Ein­ing­u-Iðju, Fram­sýn stétt­ar­fé­lagi, Stétt­ar­fé­lagi Vest­ur­lands, Stétt­ar­fé­lag­inu Sam­stöðu, Verka­lýðs­fé­lagi Akra­ness, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lagi Bol­ung­ar­vík­ur, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lagi Sand­gerð­is, Verka­lýðs­fé­lagi Snæ­fell­inga, Verka­lýðs­fé­lagi Suð­ur­lands, Verka­lýðs­fé­lagi Vest­firð­inga, Verka­lýðs­fé­lagi Þórs­hafn­ar, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lagi Kefla­víkur og nágrennis og Verka­lýðs­fé­lag­inu Hlíf.

Samn­ing­arnir gilda frá 1. nóv­em­ber

Sam­­kvæmt samn­ingi SGS og SA hækka laun þeirra sem ekki taka laun eftir kaup­töxt­um, þ.e. eru á mán­að­­ar­­laun­um, um 33.000 kr. frá 1. nóv­­em­ber. Des­em­ber- og orlofs­­upp­­bætur taka jafn­­framt hækk­­un­­um. Des­em­ber­­upp­­­bót á árinu 2023 verður 103.000 kr. og orlofs­­upp­­­bót verður 56.000 kr. á orlofs­ár­inu sem hefst 1. maí 2023. Kjara­tengdir liðir samn­ings­ins hækka um 5% frá 1. nóv­­em­ber og þá hækka bónusar og akkorð í fisk­vinnslu um 8 pró­­sent sem mun skila fisk­vinnslu­­fólki á bil­inu 6.000-34.000 kr. hækkun á mán­uði.

Einnig náð­ist sam­komu­lag um flýt­ingu hag­­vaxt­­ar­auka sem þýðir að hag­­vaxt­­ar­auk­­anum sem átti að koma til greiðslu 1. maí 2023 verður flýtt og verður hann að fullu efndur með hækkun 1. nóv­­em­ber. Það mun skila ávinn­ingi sem nemur 78.000 kr. eða tæpum 6.000 kr. á mán­uði og er hann með­­tal­inn í áður­­­nefndum taxta- og mán­aða­­launa­hækk­­un­­um. Jafn­­framt var gert sam­komu­lag um að með þess­­ari hækkun og flýt­ingu komi ekki til frekara end­­ur­­mats á hag­­vaxt­­ar­auka skv. kjara­­samn­ingnum frá 2019.

Um er að ræða skamm­tíma­samn­ing, sem rennur út 31. jan­úar 2024.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent