Elon Musk að hætta sem forstjóri Twitter eftir að notendur kusu hann afgerandi burt

Í gær bauð Elon Musk, eigandi Twitter og einn ríkasti maður í heimi, notendum að kjósa um hvort hann ætti að halda áfram sem forstjóri. Niðurstaðan var afgerandi. Þær tæplega 18 milljónir sem kusu vildi Musk burt úr stólnum.

Elon Musk keypti Twitter í lok október.
Elon Musk keypti Twitter í lok október.
Auglýsing

Elon Musk mun segja af sér sem for­stjóri Twitt­er. Musk, einn rík­asti maður í heimi, setti óvænt könnun í gang á sam­fé­lags­miðl­inum í gær þar sem hann spurði hvort hann ætti að halda áfram að stýra Twitt­er. Þar sagð­ist hann enn­fremur ætla að una nið­ur­stöðu könn­un­ar­inn­ar. 

Nið­ur­stöð­urnar voru afger­andi. Af þeim 17,5 millj­ónum sem greiddu atkvæði sögðu 57,5 pró­sent að Musk ætti að hætta sem for­stjóri en 42,5 pró­sent að hann ætti að halda áfram.

Standi Musk við fyrri yfir­lýs­ingar má því búast við að hann hætti sem for­stjóri í nán­ustu fram­tíð. Musk hafði reyndar sagt í síð­asta mán­uði að hann ætl­aði sér, með tíð og tíma, að fá ein­hvern annan til að reka fyr­ir­tæk­ið. Fyrst vildi hann þó koma Twitter í „sterka stöð­u“. 

„Fugl­inn er frjáls“

Musk greiddi 44 millj­­­arða Banda­­­ríkja­dala fyrir Twitt­er, sem hann eign­að­ist og afskráði af mark­aði í lok októ­ber síð­ast­lið­ins. Kaupin gengu ekki snurð­u­­­laust fyrri sig. Musk keypti fyrst hluta­bréf í Twitter í upp­­­­hafi árs og í byrjun apríl var hlutur hans í fyr­ir­tæk­inu kom­inn yfir níu pró­­­­sent og var hann þar með orð­inn meðal stærstu hlut­hafa í Twitter og bauðst að taka sæti í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Hann afþakk­aði boðið og sagði ljóst að sam­­­­fé­lags­mið­ill­inn gæti hvorki dafnað né þjónað til­­­­­­­gangi sínum í núver­andi formi.

Auglýsing
Í kjöl­farið gerði hann yfir­­­­­­­tökutil­­­­boð upp á 44 millj­­­­arða Banda­­­­ríkja­dala sem stjórn Twitter hafn­aði í fyrstu en ákvað svo að ganga að. Yfir­­­­takan komst þó í nokkuð upp­­­­­­­nám í maí, áður en hlut­hafar höfðu tekið afstöðu til til­­­­­­­boðs­ins, þegar Musk sak­aði Twitter um að standa í vegi fyrir því að hann fengi upp­­­­lýs­ingar um hversu hátt hlut­­­­fall not­enda mið­ils­ins eru gervi­menni (e. bots).

Í tísti sem hann sendi frá sér greindi hann frá því að kaup hans á sam­­­­­fé­lags­mið­l­inum hefðu verið sett á ís þar sem hann væri að bíða eftir gögnum sem gætu rök­­­­­stutt full­yrð­ingar Twitter um að hlut­­­­­fall gervi­menna á sam­­­­­fé­lags­mið­l­inum væri innan við fimm pró­­­­­sent.

Allt stefndi í að mög­u­­­leg yfir­­­­­taka rík­­­asta manns heim yrði gerð upp fyrir dóm­stólum en í lok októ­ber gekk Musk loks frá kaup­un­um, degi áður en loka­frestur til þess rann út. „Fugl­inn er frjáls!“ tísti Musk. 

Nán­ast allt sem Musk hefur gert á Twitter er umdeilt

Yfir­lýstur til­gangur Musk með kaup­unum er að end­ur­reisa máls­frelsið, sem honum finnst hafa átt undir högg að sækja á und­an­förnum árum, meðal ann­ars vegna rit­skoð­un­ar­til­burða sam­fé­lags­miðl­arisa. Musk hefur líka verið opin­skár með það að rekstr­ar­módel Twitter gangi ekki upp og að ráð­ast þurfi í nýjar rót­tækar tekju­öfl­un­ar­að­gerðir til að tryggja til­vist fyr­ir­tæk­is­ins til fram­tíð­ar.

Á meðal fyrstu verka hans sem eig­andi Twitter var að segja upp mörgum helstu stjórn­end­um, tæp­­­lega helm­ingi starfs­­­fólks og leggja mann­rétt­inda­­­deild fyr­ir­tæk­is­ins nið­­­ur.

Auglýsing
Musk hefur líka hleypt ýmsum sem höfðu verið bann­aðir á Twitter aftur á mið­il­inn. Þar er um að ræða fólk sem hafði verið sett í bann vegna hat­urs­orð­ræðu, upp­lýs­inga­óreiðu eða fyrir að fleyta sam­sær­is­kenn­ingum sem eng­inn fótur var fyr­ir. Á meðal þeirra sem hann bauð vel­kom­inn til baka var Don­ald J. Trump, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, en hann hefur ekki viljað þiggja það boð og haldið sig við eigin sam­fé­lags­mið­il, Truth Soci­al.

Höfuðstöðvar Twitter í San Francisco.

Musk hefur líka sagt að hann ætli sér að end­ur­skoða svo­kallað verification-­kerfi, en það var sett á fót svo til dæmis blaða­menn gætu fengið blátt stað­fest­ing­ar­tákn á eftir nafni sínu á Twitter sem sýndi að þeir væru þeir sem þeir sögð­ust vera. Musk ætlar að afnema það kerfi og rukka átta Banda­ríkja­dali á mán­uði fyrir þá sem vilja slíkt stað­fest­ing­ar­tákn. 

Nýlega voru ýmsir blaða­menn sem höfðu verið að fjalla um Musk bann­aðir frá Twitter eftir að hafa fjallað um Twitt­er-­reikn­ing sem fylgd­ist með flug­ferðum Musk. Þeim var síðan flestum hleypt aftur inn eftir að Musk fram­kvæmdi skoð­ana­könnun þar um. 

Síð­asta útspil Twitter undir stjórn Musk sem hefur valdið úlfúð er bann við því að hlekkja á aðra sam­fé­lags­miðla.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent