Kjarninn birtir hljóðupptöku af starfsmannafundi DV

15003113329-3d9263f7fd-z.jpg
Auglýsing

Þor­steinn Guðna­son, stjórn­ar­for­maður DV og stærsti eig­andi útgáfu­fé­lags mið­ils­ins, ætlar ekki að eiga hlut sinn í DV lengi. Eign­ar­hald hans er til­komið að mestu vegna þess að Gísli Guð­munds­son, kenndur við B&L, lán­aði Reyni Trausta­syni fé fyrir tveimur árum og fram­seldi síðan kröf­una til Þor­steins. Kaup Þor­steins á öðrum hlutum í DV, meðal ann­ars hlut Lilju Skafta­dótt­ur, voru fjár­mögnuð með eigin fé og láns­fé. Að hans sögn stendur til að gera fulla grein fyrir því, í smá­at­rið­um, hvernig eign­ar­haldi á DV er háttað innan skamms.

Þetta er á meðal þess sem fram kom í byrjun mik­ils hita­fundar sem nýir eig­endur DV, undir stjórn Þor­steins, og Hall­grímur Thor­steins­son, nýráð­inn rit­stjóri DV, héldu með starfs­fólki á mánu­dag. Kjarn­inn hefur upp­töku af fund­inum undir höndum og mun birta hana í nokkrum hlut­um. Upp­tak­an, sem er rúmir tveir tímar að lengd, mun síðan verða birt í heild sinni þegar umfjöllun Kjarn­ans um hana lýk­ur.

Á meðal þess sem Þor­steinn sagði við starfs­fólkið í upp­hafi fundar var að nýir eig­endur ætl­uðu sér ekki að skipta sér að rit­stjórn blaðs­ins. Þeir væru heldur ekki að kaupa DV til að græða pen­inga.

Auglýsing

Gríð­ar­legur hiti var í starfs­fólk­inu á fund­inum og mikil óánægja gagn­vart nýjum eig­end­um. Á meðal ann­arra hluta sem ræddir voru á fund­in­um, og koma fram á upp­tök­unni, er aðkoma Sig­urðar G. Guð­jóns­sonar að yfir­tök­unni á DV, yfir­lýs­ingar nýrra eig­enda um rann­sókn á starfs­fólki, brott­hvarf Reynis Trausta­sonar og áhyggjur blaða­manna á því að nýir eig­end­ur, sem þeir telja marga hverja vera fjand­sam­lega DV, muni skoða tölvu­póst­anna þeirra.

Kjarn­inn mun birta fleiri fréttir upp úr upp­tök­unni.

Hægt er að hlusta á brot af upp­hafi fund­ar­ins hér að neð­an.

[audio mp3="htt­p://kjarn­inn.s3.amazonaws.com/old/2014/09/­upp­taka_01.mp3"][/audio]

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None