Kjarninn mælir með: Snillingurinn John Nash, Xavi og hinir hæstlaunuðu

John_Forbes_Nash.jpg
Auglýsing

Við lifum sögu­lega tíma, ekki aðeins hér á landi, heldur ekki síðar erlend­is. Rit­stjórn Kjarn­ans fylgist vel með gangi mála, og má hér að neðan finna umfjall­anir sem að mati rit­stjórnar eru vand­að­ar, áhuga­verðar og skemmti­leg­ar, hver með sínum ólíka hætti.

„Snill­ing­ur­inn“ John Nash



„Þessi náungi er snill­ing­ur.“ Þetta var það eina sem stóð í með­mæla­bréfi John Nash, þegar hann sótt­ist eftir því að kom­ast inn í hag­fræði­deild Princeton háskól­ans. Nash og kona hans Alicia, lét­ust í bílslysi, 24. maí síð­ast­lið­inn. Nash var 86 ára gam­all og kona hans 82 ára. Nash glímdi í ára­tugi við geð­klofa, en hann fékk Nóbels­verð­launin í hag­fræði 1994 fyrir kenn­ingar sínar í leikja­fræði stærð­fræð­inn­ar. Kvik­myndin A Beauti­ful Mind, sem fékk Ósk­arsverð­launin 2002, fjallar um ævi Nash, hæfi­leika hans á sviði stærð­fræði og bar­átt­una við geð­klofa. John Mori­ar­ty, pró­fessor við Manchester háskóla, skrifar um Nash á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC, þar sem hann segir að vinna Nash nýt­ist dag­lega við hin ýmsu úrslausn­ar­efni, meðal ann­ars þegar kæmi að því að leysa vanda Grikk­lands.

Merki­legur maður sem fjallað er um með áhuga­verðum hætti.

Leik­stjórn­and­inn hættur



Xavi Hern­andéz, leik­stjórn­and­inn frá­bæri hjá Barcelona, hefur leikið sinn síð­asta heima­leik fyrir félag­ið. Hann hefur leikið 826 leiki fyrir félagið á sautján keppn­is­tíma­bil­um, og vann 25 titla með félag­inu, auk þess hefur hann tvisvar orðið Evr­ópu­meist­ari með Spáni og einu sinni Heims­meist­ari. Tveir leikir eru enn eftir af tíma­bil­inu, úrslit í Spán­ar­bik­arnum og Meist­ara­deild Evr­ópu. Síð­asti heima­leikur Xavi var 2-2 jafn­tefli gegn Deporti­vo. Árið 2011 birt­ist ítar­legt við­tal við Xavi í The Guar­dian, þar sem hann fjall­aði um sýn sína á lífið og til­ver­una, og vita­skuld fót­bolt­ann. Hann hefur alla tíð verið mik­ill aðdá­andi Paul Scho­les, og segir að reita­bolti sé besta æfingin af öll­um.

Ótrú­legur fer­ill og magnað við­tal við frá­bæran leik­mann.

Auglýsing




Þeir launa­hæstu



New York Times tók saman upp­lýs­ingar um launa­hæstu for­stjóra Banda­ríkj­anna setti upp með graf­ískum hætti. Upp­lýs­ing­arnar sýna glögg­lega svim­andi háar töl­ur, og einnig hvernig þær skipt­ast í grunn­laun, bónusa og kaup­rétti. Aðeins ein kona kemst á lista yfir launa­hæsta fólk­ið, það er Marissa A. Mayer, for­stjóri Yahoo.

Góð graf­ísk fram­setn­ing.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None