Næstum fjórum af hverjum tíu kjósendum Framsóknar líst illa á samstarfið í borginni

Tæplega 40 prósentum þeirra sem segjast hafa kosið Framsókn í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum líst illa á samstarf flokksins við Samfylkingu, Pírata og Viðreisn, samkvæmt könnun sem Maskína hefur framkvæmt undanfarna daga.

Kjósendur í borginni voru spurðir út í skoðanir sínar á mögulegu samstarfi í borginni, sem nú er orðið að veruleika, í skoðanakönnun Maskínu.
Kjósendur í borginni voru spurðir út í skoðanir sínar á mögulegu samstarfi í borginni, sem nú er orðið að veruleika, í skoðanakönnun Maskínu.
Auglýsing

Sam­kvæmt skoð­ana­könnun sem Mask­ína hefur fram­kvæmt und­an­farna viku líst fleiri kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík vel en illa á sam­starf flokks­ins við Sam­fylk­ingu, Við­reisn og Pírata.

Tæp­lega 40 pró­sentum kjós­enda flokks­ins líst illa á sam­starfið á meðan að ein­ungis 26 pró­sentum líst vel á það. Rúm 34 pró­sent segja að þeim lít­ist hvorki vel né illa á sam­starf­ið, sem nú er orðið að veru­leika.

Heilt yfir líst fleiri borg­ar­búum illa á sam­starfið en vel, en þó munar ekki miklu og tæp fjöru­tíu pró­sent falla í sinn hvorn hóp­inn á meðan að tæp­lega fjórð­ungi líst hvorki vel né illa á sam­starf­ið.

Lang­flestir vildu sjá Einar sem borg­ar­stjóra

Könnun Mask­ínu náði til 615 kjós­enda í Reykja­vik og var fram­kvæmd dag­ana 1.-7. júní. Í henni var spurt hvern odd­vit­anna fjög­urra fólk myndi helst vilja sjá sem borg­ar­stjóra. Nið­ur­staðan varð sú að yfir helm­ingur aðspurðra, heil 52,8 pró­sent, vildu sjá Einar Þor­steins­son setj­ast í stól borg­ar­stjóra, en 23,8 pró­sent vildu sjá Dag B. Egg­erts­son halda áfram sem borg­ar­stjóra.

Mynd: Maskína

Eins og sagt var frá í gær munu þeir Dagur og Einar skipta með sér borg­ar­stjóra­stólnum á kjör­tíma­bil­inu, en Einar tekur við af Degi sem borg­ar­stjóri 1. jan­úar 2024.

Í könnun Mask­ínu eru svörin greind niður á kjós­endur meiri­hlut­ans og kjós­endur minni­hlut­ans. Er kemur að kjós­endum meiri­hlut­ans vildu 37,4 pró­sent þeirra sjá Einar sem borg­ar­stjóra og 36,8 pró­sent Dag, en hjá kjós­endum þeirra flokka sem sitja í minni­hluta í borg­ar­stjórn vildu 73 pró­sent sjá Einar í borg­ar­stjóra­stólnum – og ein­ungis 6,7 pró­sent Dag.

Auglýsing

Alls vildu 17,6 pró­sent sjá Dóru Björt Guð­jóns­dóttur odd­vita Pírata setj­ast í stól borg­ar­stjóra, en 5,8 pró­sent töldu rétt að Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttir leið­togi Við­reisnar yrði borg­ar­stjóri.

Mynd: Maskína

Mask­ína spurði einnig að því hvern af odd­vit­unum kjós­endur vildu síst sjá sem næsta borg­ar­stjóra. Þar bar Dagur B. Egg­erts­son nokkra yfir­burði, en 49,5 pró­sent svar­enda sögð­ust síst vilja sjá Dag áfram sem borg­ar­stjóra. Í þess­ari spurn­ingu var Einar Þor­steins­son oft­ast nefndur af kjós­endum Við­reisn­ar, Sam­fylk­ingar og Pírata.

Íbúum vestar í borg­inni líst betur á meiri­hlut­ann

Íbúum í Mið­borg og Vest­urbæ og Hlíð­u­m/Laug­ar­dal/Háa­leiti og Bústöðum leist betur á sam­starf flokk­anna fjög­urra en íbúum austan Elliða­áa. Í Mið­borg og Vest­urbæ leist 47 pró­sentum vel á sam­starfið og 41 pró­senti á öðrum svæðum innan Elliða­áa, en ein­ungis 28 pró­sentum íbúa í Reykja­vík austan Elliða­áa.

Fyr­ir­sögn frétt­ar­innar hefur verið breytt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent