Kjósendur Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks hafa minnstar áhyggjur af sölunni á Mílu til Ardian

Samkvæmt nýrri könnun frá Maskínu hafa rúm 42 prósent landsmanna fremur miklar eða miklar áhyggjur af sölunni á fjarskiptafyrirtækinu Mílu til erlendra aðila. Kjósendur Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks hafa mun minni áhyggjur en flestir aðrir.

Möstur hjá mílu. Mynd frá Mílu
Auglýsing

Rúm­lega 42 pró­sent lands­manna hafa fremur eða mjög miklar áhyggjur af því að Míla hafi verið seld erlendum aðil­um, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun frá Mask­ínu. Tæp 30 pró­sent hafa hins vegar fremur eða mjög litlar áhyggj­ur, jafn­vel eng­ar, af söl­unni á fyr­ir­tæk­inu frá Sím­anum til franska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ardi­an.

Tutt­ugu og átta pró­sent svar­enda í könn­unni, sem Mask­ína fram­kvæmdi dag­ana 26. októ­ber til 4. nóv­em­ber, tóku síðan þá afstöðu að áhyggjur þeirra af söl­unni væru í með­al­lagi. Svipað hlut­fall karla og kvenna sagð­ist hafa áhyggjur af söl­unni, en fleiri karl­ar, eða rúm­lega þriðj­ung­ur, sögð­ust hafa litlar áhyggjur af sölu fyr­ir­tæk­is­ins.

Eldri áhyggju­fyllri

Er horft er til ald­urs­dreif­ingar kemur í ljós að áhyggjur af sölu Mílu fara vax­andi með hækk­andi aldri. Rúm 59 pró­sent svar­enda yfir 60 ára aldri sögð­ust hafa miklar áhyggjur af söl­unni og tæp 55 pró­sent þeirra sem eru 50-59 ára. Rúm 45 pró­sent fólks á aldr­inum 40-49 sagð­ist sömu­leiðis hafa miklar áhyggj­ur, en á meðal yngstu ald­urs­hópanna eru áhyggj­urnar minni.

Mynd: Maskína

Ein­ungis rúm 17 pró­sent þeirra sem eru 18-29 ára sögð­ust hafa miklar áhyggjur af söl­unni á Mílu og 35,6 pró­sent þeirra sem eru 30-39 ára göm­ul. Í yngstu tveimur ald­urs­hóp­unum voru fleiri sem sögð­ust litlar eða jafn­vel engar áhyggjur hafa, eða um 36 pró­sent í báðum hópum svar­enda.

Auglýsing

Fólk með grunn­skóla­próf er lík­legra til þess að hafa miklar áhyggjur af söl­unni á Mílu en þeir sem eru með fram­halds­skóla­próf eða iðn­menntun og þeir sem hafa háskóla­próf, sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­inn­ar.

Kjós­endur Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks ólík­leg­astir til að vera með áhyggjur

Kjós­endur bæði Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks skera sig mark­vert úr þegar spurt er um áhyggjur af söl­unni á Mílu, en rúm­lega helm­ingur kjós­enda Við­reisnar seg­ist hafa litlar eða engar af söl­unni og tæp­lega helm­ingur þeirra sem segj­ast lík­legir til þess að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Kjós­endur Mið­flokks­ins og Sós­í­alista­flokks­ins skera sig úr í hina átt­ina, en tæp 72 pró­sent þeirra sem segj­ast lík­leg til að kjósa Mið­flokk­inn hafa miklar áhyggjur af söl­unni og tæp 69 pró­sent þeirra sem lýsa því yfir að þau myndu kjósa Sós­í­alista­flokk­inn. Þar á eftir koma kjós­endur Flokks fólks­ins, en rúm 59 pró­sent þeirra segj­ast hafa miklar áhyggjur af sölu Mílu.

Á milli 44-48 pró­sent kjós­enda ann­arra flokka, Sam­fylk­ing­ar, Vinstri grænna, Pírata og Fram­sókn­ar­flokks, segj­ast hafa miklar áhyggjur af söl­unni á Mílu til Ardi­an.

Alls voru svar­endur 1338 tals­ins í þess­ari net­könnun Mask­ínu, sem var lögð fyrir hóp fólks sem dreg­inn var með til­viljun úr Þjóð­skrá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent