Nánast hvert sem litið er hefur verð á hinum dæmigerða jólamat hækkað á milli ára. Í flestum tilfellum er um miklar verðhækkanir að ræða samkvæmt nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ. 80 prósent varanna sem valdar voru til könnunarinnar var hærra nú en í fyrra en tæplega 20 prósent þeirra voru ódýrari. Í 16 prósent tilfella hækkaði verð á bilinu 0-5 prósent, í 19 prósent tilfella um 5-10 prósent og í 18 prósent tilfella um 10-15 prósent. Miklar verðhækkanir voru í öllum vöruflokkum en verð á kjöti, kaffi, brauð- og kornvöru og þurrvöru og dósamat hækkaði mest. Verð á mjólkurvöru hækkaði einnig mikið.
Verð hækkaði mest hjá Heimkaup og næst mest í Iceland en hátt hlutfall vara í þessum verslunum hækkaði mikið í verði milli ára. Verð á jólamat hækkaði hins vegar minnst í Kjörbúðinni, Nettó og Fjarðarkaupum en þær verslanir voru með hæsta hlutfall vara sem lækkaði í verði og hækkaði minnst í verði.
Í Bónus og Krónunni hækkaði stærstur hluti vara í verði á bilinu 5-10 prósent eða 29 prósent vara í Bónus og 28 prósent í Krónunni. Svipað hlutfall vara hækkaði um 10-15 prósent í verði. Í báðum verslunum hækkaði verð yfir 15 prósent í 18 prósent tilfella og yfir 20 prósent í 9 prósent tilfella.
Verð á kjöti, þurrvöru og dósamat og brauð- og kornvöru hækkar mest
Miklar verðhækkanir eru í öllum vöruflokkum en verð á kjöti hækkar mest milli ára. Í 39 prósent tilfella hækkar verð á kjöti um 20-30 prósent og í 11 prósent tilvika um 30-40 prósent. Sem dæmi má nefna 27-33 prósent verðhækkun á SS birkireyktum hangikjötsframparti í fjórum af fimm verslunum sem varan fékkst í. Þá hækkar verð á léttreyktum KEA lambahrygg um 25-26 prósent í fimm verslunum og verð á KEA hangilæri minnst um 4,8 prósent en á bilinu 18-41 prósent í öðrum verslunum.
Verð á brauði og kornvöru hækkar oft mikið milli ára og sama má segja um verð á þurrvöru og dósamat. Sem dæmi má nefna 12-27 prósent verðhækkanir á brúnni Myllu jólatertu með kremi og 6,5-22 prósent verðhækkanir á Myllu heimilisbrauði. Þá hækkar verð á Ora grænum baunum á bilinu 14-29 prósent. Verð á mjólkurvöru hækkar einnig almennt mikið eða í 74 prósent tilfella um 5-20 prósent.
Verð á drykkjarvöru þ.e. gosi og safa hækkar hvað minnst en það sama gildir ekki um verð á kaffi sem hækkar í 50 prósent tilvika á bilinu 15-30 prósent.
Konfekt og sælgæti hækkar einnig minna í verði en flestir aðrir vöruflokkar en hækkar þó í sumum tilfellum. Þannig hækkar verð á 800 gr. Nóa Siríus innpökkuðum konfektkassa t.d. um 12-26,5 prósent í sex verslunum og verð á 2 kg dós af Quality Street um 15-26 prósent í fjórum verslunum. Grænmeti og ávextir er sá vöruflokkur sem verð lækkaði oftast í en að sama skapi sá vöruflokkur sem hvað mestar verðhækkanir voru í en miklar sveiflur geta verið í verði á grænmeti og ávöxtum.
Könnun verðlagseftirlits ASÍ byggir á samanburði á verðum í verslunum 15. desember 2021 og 13. desember 2022. ASÍ áréttar að mæld eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma í verslununum og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreytingar einstakra vara. Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Nettó, Bónus, Krónunni, Fjarðarkaupum, Iceland, Hagkaup, Kjörbúðinni og á Heimkaup.is.