Kjöt og kaffi hækka mikið í verði en konfektið minna

800 gramma Nóa Siríus konfektkassi er allt að 26 prósent dýrari fyrir þessi jól en í fyrra. KEA hangilæri er allt að 40 prósentum dýrara. Það kostar almennt töluvert fleiri krónur að kaupa hinn dæmigerða mat fyrir jólin nú en á síðasta ári.

Verð á kjöti, þurrvöru og dósamat og brauð- og kornvöru hækkar mest.
Verð á kjöti, þurrvöru og dósamat og brauð- og kornvöru hækkar mest.
Auglýsing

Nán­ast hvert sem litið er hefur verð á hinum dæmi­gerða jóla­mat hækkað á milli ára. Í flestum til­fellum er um miklar verð­hækk­anir að ræða sam­kvæmt nýrri könnun verð­lags­eft­ir­lits ASÍ. 80 pró­sent var­anna sem valdar voru til könn­un­ar­innar var hærra nú en í fyrra en tæp­lega 20 pró­sent þeirra voru ódýr­ari. Í 16 pró­sent til­fella hækk­aði verð á bil­inu 0-5 pró­sent, í 19 pró­sent til­fella um 5-10 pró­sent og í 18 pró­sent til­fella um 10-15 pró­sent. Miklar verð­hækk­anir voru í öllum vöru­flokkum en verð á kjöti, kaffi, brauð- og korn­vöru og þurr­vöru og dósa­mat hækk­aði mest. Verð á mjólk­ur­vöru hækk­aði einnig mik­ið.

Auglýsing

Verð hækk­aði mest hjá Heim­kaup og næst mest í Iceland en hátt hlut­fall vara í þessum versl­unum hækk­aði mikið í verði milli ára. Verð á jóla­mat hækk­aði hins vegar minnst í Kjör­búð­inni, Nettó og Fjarð­ar­kaupum en þær versl­anir voru með hæsta hlut­fall vara sem lækk­aði í verði og hækk­aði minnst í verði.

Í Bónus og Krón­unni hækk­aði stærstur hluti vara í verði á bil­inu 5-10 pró­sent eða 29 pró­sent vara í Bónus og 28 pró­sent í Krón­unni. Svipað hlut­fall vara hækk­aði um 10-15 pró­sent í verði. Í báðum versl­unum hækk­aði verð yfir 15 pró­sent í 18 pró­sent til­fella og yfir 20 pró­sent í 9 pró­sent til­fella.

Súlurnar sýna hversu hátt hlutfall matvöru í hverjum matvöruflokki hækkaði eða lækkaði í verði. Mynd: Verðlagseftirlit ASÍ

Verð á kjöti, þurr­vöru og dósa­mat og brauð- og korn­vöru hækkar mest

Miklar verð­hækk­anir eru í öllum vöru­flokkum en verð á kjöti hækkar mest milli ára. Í 39 pró­sent til­fella hækkar verð á kjöti um 20-30 pró­sent og í 11 pró­sent til­vika um 30-40 pró­sent. Sem dæmi má nefna 27-33 pró­sent verð­hækkun á SS birkireyktum hangi­kjöts­fram­parti í fjórum af fimm versl­unum sem varan fékkst í. Þá hækkar verð á léttreyktum KEA lamba­hrygg um 25-26 pró­sent í fimm versl­unum og verð á KEA hangilæri minnst um 4,8 pró­sent en á bil­inu 18-41 pró­sent í öðrum versl­un­um.

Verð á brauði og korn­vöru hækkar oft mikið milli ára og sama má segja um verð á þurr­vöru og dósa­mat. Sem dæmi má nefna 12-27 pró­sent verð­hækk­anir á brúnni Myllu jóla­tertu með kremi og 6,5-22 pró­sent verð­hækk­anir á Myllu heim­il­is­brauði. Þá hækkar verð á Ora grænum baunum á bil­inu 14-29 pró­sent. Verð á mjólk­ur­vöru hækkar einnig almennt mikið eða í 74 pró­sent til­fella um 5-20 pró­sent.

Verð á drykkj­ar­vöru þ.e. gosi og safa hækkar hvað minnst en það sama gildir ekki um verð á kaffi sem hækkar í 50 pró­sent til­vika á bil­inu 15-30 pró­sent.

Auglýsing

Konfekt og sæl­gæti hækkar einnig minna í verði en flestir aðrir vöru­flokkar en hækkar þó í sumum til­fell­um. Þannig hækkar verð á 800 gr. Nóa Sir­íus inn­pökk­uðum konfekt­kassa t.d. um 12-26,5 pró­sent í sex versl­unum og verð á 2 kg dós af Quality Street um 15-26 pró­sent í fjórum versl­un­um. Græn­meti og ávextir er sá vöru­flokkur sem verð lækk­aði oft­ast í en að sama skapi sá vöru­flokkur sem hvað mestar verð­hækk­anir voru í en miklar sveiflur geta verið í verði á græn­meti og ávöxt­um.

Könnun verð­lags­eft­ir­lits ASÍ byggir á sam­an­burði á verðum í versl­unum 15. des­em­ber 2021 og 13. des­em­ber 2022. ASÍ áréttar að mæld eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma í versl­un­unum og geta til­boðs­verð haft áhrif á verð­breyt­ingar ein­stakra vara. Könn­unin var gerð á sama tíma í eft­ir­töldum versl­un­um: Nettó, Bón­us, Krón­unni, Fjarð­ar­kaup­um, Iceland, Hag­kaup, Kjör­búð­inni og á Heim­kaup.­is.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent