Kosið til þings í Danmörku 1. nóvember – Frederiksen vill mynda breiða ríkisstjórn

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur tilkynnti á blaðamannafundi í morgun að þingkosningar yrðu haldnar í landinu 1. nóvember, eða eftir tæpar fjórar vikur.

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og formaður Sósíaldemókrataflokksins.
Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og formaður Sósíaldemókrataflokksins.
Auglýsing

Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur hefur boðað að þing­kosn­ingar í land­inu fari fram þriðju­dag­inn 1. nóv­em­ber, eða eftir tæpar fjórar vik­ur.

Þetta kunn­gjörði Frederik­sen á blaða­manna­fundi í morg­un, en segja má að hún hafi verið þvinguð til þess að boða til kosn­inga fyrr en hún ef til vill hefði kos­ið.

Einn þeirra flokka sem styðja minni­hluta­stjórn Sós­í­alde­mókrata, Radikale Ven­stre, var nefni­lega búinn að gefa það út að ef ekki yrði boðað til kosn­inga fyrir morg­un­dag­inn myndi flokk­ur­inn velta stjórn­inni úr sessi.

Vill mynda rík­is­stjórn yfir miðj­una

Frederik­sen sagði á blaða­manna­fund­in­um, sam­kvæmt frétt danska rík­is­út­varps­ins DR, að flokkur hennar myndi fara til kosn­inga með það í huga að mynda breiða rík­is­stjórn, rík­is­stjórn yfir miðj­una á danska stjórn­mála­svið­inu og ekki eins flokks minni­hluta­stjórn eins og flokk­ur­inn situr í nú.

Auglýsing

For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði að þeir erf­iðu tímar sem nú væru uppi köll­uðu á aukna sam­vinnu. Nú væri tím­inn til þess að „prófa nýtt rík­is­stjórn­ar­form í Dan­mörku“.

Sam­kvæmt frétt DR var það að heyra á Frederik­sen að henni þætti þetta ekki ákjós­an­legur tími til þess að ganga til kosn­inga, en hún sagði að á sama tíma og alþjóð­legar krísur á sviði varn­ar­mála, orku­mála og efna­hags­mála væru við að etja væri „sér­kenni­legt“ að vera að hefja kosn­inga­bar­áttu.

Fylgi dreif­ist víða

Fjöldi flokka verður í fram­boði í kosn­ing­unum sem fyr­ir­hug­aðar eru. Sós­í­alde­mókratar eru langstærsti flokk­ur­inn sam­kvæmt nýlegum skoð­ana­könn­unum og eru að mæl­ast með hátt í 25 pró­senta fylgi í flestum skoð­ana­könn­unum upp á síðkast­ið.

Ein­ungis tveir til þrír flokkar til við­bótar eru að mæl­ast með yfir tíu pró­senta fylgi í skoð­ana­könn­un­um, en það eru hægri­flokk­ur­inn Ven­stre, sem mæld­ist með 11,9 pró­sent fylgi í síð­ustu könnun Gallup, og Íhalds­flokk­ur­inn sem mæld­ist með 12,3 pró­sent í sömu könn­un.

Þá hafa Dan­merk­ur­demókrat­ar, nýlega stofn­aður flokkur Inger Støjberg, verið að mæl­ast með um og yfir tíu pró­senta fylgi. Í nýj­ustu könnun Gallup var flokk­ur­inn með 9,8 pró­senta fylgi.

Í Dan­mörku þurfa flokkar ein­ungis að fá tvö pró­sent atkvæða á lands­vísu til þess að hljóta þing­menn kjörna.

Tíu flokkar mæl­ast yfir þeim þrös­k­uldi í nýj­ustu könnun Gallup, jafn­margir og eiga sæti á þingi í dag.

Sá ell­efti stærsti sam­kvæmt könnun Gallup, Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, mælist með 1,9 pró­sent fylgi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent