Malbikunarstöðin Höfði, sem er að fullu í eigu Reykjavíkurborgar og er með pólitískt skipaða stjórn, hefur keypt lóð við Álfhellu í Hafnarfirði, en í meirihlutasáttmála núverandi valdhafa í borginni var tiltekið að Reykjavík ætlaði að leggja stöðinni til lóð á kjörtímabilinu. Ástæða þess að Höfði þurfti að flytja sig er að núverandi lóð fyrirtækisins á Ártúnshöfða verður lögð undir íbúðabyggð og malbikunarstöðin þarf að víkja af henni fyrir árslok 2022.
Í inngangi Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra Reykjavíkur, í greinargerð sem fylgdi með frumvarpi um fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár og fimm ára áætlun hennar sem á að gilda til ársins 2026, er fjallað um málefni Malbikunarstöðvarinnar Höfða og greint frá lóðaúthlutuninni í Hafnarfirði. Auk þess segir þar að kostir og gallar þess að selja fyrirtækið verði skoðaðir í kjölfarið í samræmi við samstarfssáttmála meirihlutans.
Reykjavíkurborg hefur átt malbikunarstöðina í meira en 80 ár.
Með 91 prósent hlutdeild
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa lengi verið mjög áfram um að malbikunarstöðin verði seld. Snemma árs 2017 lögðu fulltrúar flokksins í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur til að ráðið samþykki áskorun til borgarráðs um að selja hana.
Athugun Viðskiptaráðs Íslands á útboðum áranna 2017 til 2020, sem gerð var opinber fyrr á þessu ári, sýndi svo að hlutdeild Höfða í malbikunarútboðum innan Reykjavíkur hafði aukist í 91 prósent. Aðeins einu sinni af ellefu vann annað fyrirtækið þess háttar útboð á vegum borgarinnar.
Á meðal raka sem sett hafa verið fram fyrir eignarhaldi Reykjavíkurborgar á Höfða eru þau að það tryggi samkeppni, en lengi vel var aðeins eitt annað fyrirtæki framleiddi malbik á suðvesturhorni landsins. Fyrirtækin eru nú orðin þrjú, fyrir utan Malbikunarstöðina Höfða.
Í tilkynningu sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Eyþór Arnalds, sendi út í liðinni viku var sú afstaða flokksins að hann vildi selja Höfða ítrekuð.
Ýmsir hagaðilar hafa líka skorað á borgina að selja fyrirtækið í gegnum tíðina. Í lok apríl síðastliðinn skrifuðu til að mynda framkvæmdastjórar Samtaka iðnaðarins og Viðskiptaráðs Íslands saman grein í Morgunblaðið þar sem þeir hvöttu til þess.
Gera ráð fyrir arðgreiðslum 2025 og 2026
Malbikunarstöðin Höfði velti 1.429 milljónum króna í fyrra sem er 450 milljónum krónum minna en fyrirtækið velti á árinu 2019. Í ársreikningi fyrirtækisins er tiltekið að áhrif af COVID-19 hafi þó ekki verið verulega mikil.
Alls tapaði Höfði 16,7 milljónum króna í fyrra en hafði hagnast um 115,7 milljónir króna á árinu 2019. Inni í fyrirtækinu var umtalsvert óráðstafað eigið fé um síðustu áramót, eða alls 1.247 milljónir króna. Heildar eigið fé í lok árs 2020 bar 1.490 milljónir króna en ljóst er að það mun ganga eitthvað á það í ár og á næsta ári. Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar vegna ársins 2022 mun eigin fé Höfða verða 1.079 milljónir króna í lok næsta árs.
Þrátt fyrir að borgarstjóri hafi sagt í inngangi sínum að greinargerð um fjárhagsætlun næstu fimm ára að kostir og gallar þess að selja Malbikunarstöðina Höfða yrði skoðaðir er gert ráð fyrir því í áætluninni að fyrirtæki greiði borginni arð árin 2025 og 2026, samtals 70 milljónir króna.