Heildarkostnaður við laun og hlunnindi stjórnar Icelandair Group í fyrra var tæplega 317 þúsund Bandaríkjadalir, eða 41,3 milljónir króna miðað við árslokagengi 2021. Til viðbótar fengu stjórnarmenn greiðslur upp á rúmlega 37 þúsund Bandaríkjadali, um 4,8 milljónir króna, í lífeyrissjóði. Samtals námu því laun, hlunnindi og lífeyrissjóðsgreiðslur til stjórnarmanna í félaginu um 354 þúsund Bandaríkjadölum eða rúmlega 46 milljónum króna.
Greiðslurnar fóru til fimm núverandi stjórnarmanna auk fyrrverandi stjórnarformanns félagsins, Úlfars Steindórssonar, sem hætti í stjórn í fyrrasumar.
Árið 2020 fengu þau fimm sem sátu í stjórn Icelandair Group í lok þess árs og tveir stjórnarmenn sem hættu á því ári samtals rúmlega 239 þúsund Bandaríkjadali, 31,2 milljónir króna, í laun og hlunnindi og tæplega 28 þúsund Bandaríkjadali, um 3,6 milljónir króna, í lífeyrissjóðsgreiðslur. Samanlagt fengu stjórnarmeðlimir því 34,8 milljónir króna í greiðslur á árinu 2020.
Kostnaður Icelandair Group vegna launa, hlunninda og lífeyrissjóðsgreiðslna stjórnarmanna jókst því um 11,3 milljónir króna milli ára, eða um þriðjung.
Hæstar greiðslur fékk Nina Jonsson, varaformaður stjórnar Icelandair Group, en samanlagðar greiðslur til hennar voru 832 þúsund krónur að meðaltali á mánuði. Guðmundur Hafsteinsson, stjórnarformaður Icelandair Group, fékk 789 þúsund krónur að meðaltali á mánuði í laun, hlunnindi og lífeyrissjóðsgreiðslur fyrir stjórnarsetu sína í Icelandair Group.
Þetta kemur fram í ársreikningi Icelandair Group sem birtur var í síðustu viku.
Í skýrslu tilnefninganefndar Icelandair Group, sem var birt í Kauphöll Íslands á mánudag, er lagt til að stjórnin verði áfram skipuð sömu fimm einstaklingum eftir næsta aðalfund, en að ekki sé tilefni til að endurskoða greiðslur til stjórnarmanna. Þar segir einnig að það sé viðvarandi áhætta fyrir félagið að lykilstarfsmenn hætti þar sem þeir fá ekki nægilega vel greitt fyrir störf sín, en þrír úr framkvæmdastjóri Icelandair Group hafa hætt störfum frá síðasta aðalfundi. Í viðtölum sem nefndin tók við stjórnendur og stjórnarmenn í félaginu kom fram að þeir teldu þörf á „sterkari varðveisluáætlun ásamt endurskoðuðu starfskjarafyrirkomulagi æðstu stjórnenda“.
Laun forstjóra hækkuðu um helming
Kjarninn greindi frá því í gær að Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, hafi fengið 518 þúsund Bandaríkjadali í laun og hlunnindi á síðasta ára. Á árslokagengi ársins 2021 eru það 67,5 milljónir króna eða 5,6 milljónir króna á mánuði. Til viðbótar fékk Bogi Nils 119,6 þúsund Bandaríkjadali í lífeyrisgreiðslur, eða 15,6 milljónir króna á ofangreindu gengi. Það þýðir að laun, hlunnindi og lífeyrisgreiðslur hans á síðasta ári voru samtals 83,1 milljónir króna, eða rúmlega 6,9 milljónir króna að meðaltali á mánuði.
Laun, hlunnindi og lífeyrissjóðsgreiðslur Boga hækkuðu því um 48 prósent í Bandaríkjadölum talið milli ára.
Kjarninn sendi fyrirspurn til Icelandair Group vegna málsins og óskaði eftir útskýringum á launahækkun forstjóra. Í svari upplýsingafulltrúa félagsins sagði að breytinguna megi „langmestu leyti rekja til þess að á árinu 2020 tók forstjóri á sig 30 prósent launalækkun stærstan hluta ársins. Þess má geta í þessu samhengi að ársreikningur félagsins er í USD en öll laun á Íslandi, þ.m.t. forstjóra eru greidd í íslenskum krónum. Meðalgengi íslensku krónunnar gagnvart USD styrktist á milli ára og ýkir það hækkunina í ársreikningnum.“
Gengi íslensku krónunnar gagnvart Bandaríkjadal veiktist um 2,5 prósent á síðasta ári.
Mikið tap í fyrra
Icelandair Group tapaði 13,7 milljörðum króna á árinu 2021 miðað við gengi krónu í lok þess árs en félagið gerir upp í Bandaríkjadölum. Þar af tapaði félagið 5,1 milljarði króna á síðustu þremur mánuðum ársins.
Rekstrartap á síðasta ári var 17,7 milljarðar króna, en endanlegt tap dróst saman vegna þess að aðrar tekjur voru jákvæðar. Þar á meðal voru sala eigna, í Iceland Travel og Icelandair Hotels, og tekjufærsla vegna reiknaðra vaxta á vaxtalausri frestun á greiðslu skatta.
Tap Icelandair Group á árinu 2020 var 51 milljarður króna, árið 2019 tapaði það 7,8 milljarðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 milljarðar króna. Því hefur samstæðan tapað yfir 79 milljörðum króna á síðustu fjórum árum.
Fyrirvari: Guðmundur Hafsteinsson, stjórnarformaður Icelandair Group, á tæplega 1,9 prósent hlut í útgáfufélagi Kjarnans.