Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur verið kosin næsti formaður flokksins með 94,59 prósent greiddra atkvæða. Kristrún var eini frambjóðandinn sem skilaði inn framboði og því lá ljóst fyrir í lok síðustu viku að hún myndi verða nýr formaður.
„Við ætlum að leiða breytingar, við ætlum að breyta pólitíkinni og við ætlum að breyta samfélaginu,“ sagði Kristrún eftir að niðurstöður kjörsins voru kynntar á landsfundi Samfylkingarinnar sem hófst í dag á Grand hótel og lýkur á morgun. Kristrún þakkaði fyrir traust umboð í ræðu sinni og sagðist skynja von í lofti.
Logi Einarsson, núverandi formaður, greindi frá því í sumar að hann ætlaði að stíga til hliðar á komandi landsfundi. Í viðtali við Fréttablaðið í júní sagði hann: „Ég er að hætta sem formaður af því að ég er sannfærður um að aðrir geti gert betur en ég.“
Kristrún, sem var kjörinn á þing í fyrrahaust, tilkynnti um framboð sitt 19. ágúst síðastliðinn. Í ræðu sinni af því tilefni sagðist hún ætla að leggja áherslu á kjarnamálin í jafnaðarmannastefnunni. Þau séu húsnæðismál, heilbrigðismál, samgöngur, góð atvinna og kjör fólks. Það væri lykillinn að breiðari og stærri flokki og trúverðugleika. „Við eigum enga annarra kost á völ að mínu mati, því vandinn sem við stöndum frammi fyrir er þessi: Kannanir hafa sýnt að kjósendur eiga erfitt með að festa hönd á það fyrir hvað Samfylkingin stendur. Ég vil að það sé alveg á hreinu fyrir hvað flokkurinn stendur og af hverju hann á erindi við fólkið í landinu.“
Í síðustu könnun Gallup mældist fylgi Samfylkingarinnar 16,3 prósent, sem er umtalsvert meira en flokkurinn fékk í kosningunum í september 2021, þegar 9,9 prósent kjósenda kaus hann. Samkvæmt könnuninni yrði Samfylkingin næst stærsti flokkur landsins ef kosið yrði í dag.
Kjarninn tók ítarlegt viðtal við Kristrúnu í síðasta mánuði um hvernig hún sér fyrir sér Samfylkinguna undir sinni formennsku. Það má lesa hér.
Einn sem stendur í framboði til varaformanns
Ljóst er að fleiri sviptingar verða í forystusveit Samfylkingarinnar. Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, tilkynnti fyrr í þessum mánuði að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér sem varaformaður Samfylkingarinnar. Enginn annar hefur stigið fram á móti honum enn sem komið er en framboðsfrekstur rann út klukkan 18:30 í kvöld. Opnað verður fyrir kosningu til varaformanns klukkan 20 í kvöld.
Kjöri varaformanns verður lýst klukkan 22 í kvöld.
Slagur um formennsku í framkvæmdastjórn
Einnig verður kosið um ritara, gjaldkera og formann framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar um helgina. Framboðsfrestur til þeirra embætta rennur út klukkan 22 í kvöld. Tvær konur hafa þegar tilkynnt um framboð til ritara Samfylkingarinnar. Alexandra Ýr van Erven, sem hefur gegnt embættinu frá 2020, hefur gefið út að hún sækist eftir endurkjöri. Auk hennar hefur Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri á Ísafirði, boðað framboð til ritara. Þeir Jón Grétar Þórsson og Stein Olav Romslo sækjast svo eftir því að verða næsti gjaldkeri, en Hákon Óli Guðmundsson, sitjandi gjaldkeri, sækist ekki eftir endurkjöri.
Að endingu verður slagur um hver verður formaður framkvæmdastjórnar, en sá sem gegnir því embætti í dag, Kjartan Valgarðsson, sækist eftir endurkjöri. Hann mun etja kappi við Guðmund Ara Sigurjónsson, oddvita Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi.
Kosning ritara, gjaldkera og formanns framkvæmdastjórnar fer fram á morgun, laugardag. Þá verður líka kosið í hin ýmsu ráð, nefndir og stjórnir. Formlegum landsfundarstörfum lýkur með stefnuræðu nýs formanns, Kristrúnar Frostadóttur, sem hefst klukkan 16:30 á morgun.