Kristrún Frostadóttir orðin formaður Samfylkingarinnar

Kristrún Frostadóttir er tekin við sem formaður Samfylkingarinnar. Hún var ein í framboði og hlaut 94,59 prósent greiddra atkvæða.

Kristrún Frostadóttir, nýr formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir, nýr formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Kristrún Frosta­dótt­ir, þing­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, hefur verið kosin næsti for­­maður flokks­ins með 94,59 pró­sent greiddra atkvæða. Kristrún var eini fram­­bjóð­and­inn sem skil­aði inn fram­­boði og því lá ljóst fyrir í lok síð­ustu viku að hún myndi verða nýr for­mað­ur.

„Við ætlum að leiða breyt­ing­ar, við ætlum að breyta póli­tík­inni og við ætlum að breyta sam­fé­lag­in­u,“ sagði Kristrún eftir að nið­ur­stöður kjörs­ins voru kynntar á lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar sem hófst í dag á Grand hótel og lýkur á morg­un. Kristrún þakk­aði fyrir traust umboð í ræðu sinni og sagð­ist skynja von í lofti.

Logi Ein­­ar­s­­son, núver­andi for­­mað­­ur, greindi frá því í sumar að hann ætl­­aði að stíga til hliðar á kom­andi lands­fundi. Í við­tali við Frétta­­blaðið í júní sagði hann: „Ég er að hætta sem for­­­­maður af því að ég er sann­­­­færður um að aðrir geti gert betur en ég.“

Kristrún, sem var kjör­inn á þing í fyrra­haust, til­­kynnti um fram­­boð sitt 19. ágúst síð­­ast­lið­inn. Í ræðu sinni af því til­­efni sagð­ist hún ætla að leggja áherslu á kjarna­­­málin í jafn­­­að­­­ar­­­manna­­­stefn­unni. Þau séu hús­næð­is­­­mál, heil­brigð­is­­­mál, sam­­­göng­­­ur, góð atvinna og kjör fólks. Það væri lyk­ill­inn að breið­­ari og stærri flokki og trú­verð­ug­­leika. „Við eigum enga ann­­­arra kost á völ að mínu mati, því vand­inn sem við stöndum frammi fyrir er þessi: Kann­­­anir hafa sýnt að kjós­­­endur eiga erfitt með að festa hönd á það fyrir hvað Sam­­­fylk­ingin stend­­­ur. Ég vil að það sé alveg á hreinu fyrir hvað flokk­­­ur­inn stendur og af hverju hann á erindi við fólkið í land­in­u.“

Í síð­­­ustu könnun Gallup mæld­ist fylgi Sam­­fylk­ing­­ar­innar 16,3 pró­­sent, sem er umtals­vert meira en flokk­­ur­inn fékk í kosn­­ing­unum í sept­­em­ber 2021, þegar 9,9 pró­­sent kjós­­enda kaus hann. Sam­­kvæmt könn­un­inni yrði Sam­­fylk­ingin næst stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag. 

Kjarn­inn tók ítar­­legt við­­tal við Kristrúnu í síð­­asta mán­uði um hvernig hún sér fyrir sér Sam­­fylk­ing­una undir sinni for­­mennsku. Það má lesa hér.

Einn sem stendur í fram­boði til vara­for­manns

Ljóst er að fleiri svipt­ingar verða í for­yst­u­­sveit Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar. Guð­­­mundur Árni Stef­áns­­­son, odd­viti Sam­­­fylk­ing­­­ar­innar í Hafn­­­ar­­­firði, til­­kynnti fyrr í þessum mán­uði að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér sem vara­­­for­­­maður Sam­­­fylk­ing­­­ar­inn­­ar. Eng­inn annar hefur stigið fram á móti honum enn sem komið er en fram­boðs­frekstur rann út klukkan 18:30 í kvöld. Opnað verður fyrir kosn­ingu til vara­for­manns klukkan 20 í kvöld.

Auglýsing
Skömmu áður en Guð­­­mundur Árni til­­kynnti um fram­boð sitt birti Heiða Björg Hilm­­­is­dótt­ir, núver­andi vara­­­for­­­maður Sam­­­fylk­ing­­­ar­inn­­­ar, færslu á Face­­book þar sem hún til­­­kynnti að hún myndi ekki sækj­­­ast eftir end­­­ur­­­kjöri eftir tæp­­­lega sex ára setu. Í ágúst hafði Heiða sagt við mbl.is að hún vildi halda áfram sem vara­­­for­­­maður Sam­­­fylk­ing­­­ar.

Kjöri vara­for­manns verður lýst klukkan 22 í kvöld.

Slagur um for­mennsku í fram­kvæmda­stjórn

Einnig verður kosið um rit­ara, gjald­kera og for­mann fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar um helg­ina. Fram­boðs­frestur til þeirra emb­ætta rennur út klukkan 22 í kvöld. Tvær konur hafa þegar til­­kynnt um fram­­boð til rit­­ara Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar. Alex­andra Ýr van Erven, sem hefur gegnt emb­ætt­inu frá 2020, hefur gefið út að hún sæk­ist eftir end­­ur­­kjöri. Auk hennar hefur Arna Lára Jóns­dótt­ir, bæj­­­ar­­stjóri á Ísa­­firði, boðað fram­­boð til rit­­ara. Þeir Jón Grétar Þórs­son og Stein Olav Romslo sækj­ast svo eftir því að verða næsti gjald­keri, en Hákon Óli Guð­munds­son, sitj­andi gjald­keri, sæk­ist ekki eftir end­ur­kjöri.

Að end­ingu verður slagur um hver verður for­maður fram­kvæmda­stjórn­ar, en sá sem gegnir því emb­ætti í dag, Kjartan Val­garðs­son, sæk­ist eftir end­ur­kjöri. Hann mun etja kappi við Guð­mund Ara Sig­ur­jóns­son, odd­vita Sam­fylk­ing­ar­innar á Sel­tjarn­ar­nesi.

Kosn­ing rit­ara, gjald­kera og for­manns fram­kvæmda­stjórnar fer fram á morg­un, laug­ar­dag. Þá verður líka kosið í hin ýmsu ráð, nefndir og stjórn­ir. Form­legum lands­fund­ar­störfum lýkur með stefnu­ræðu nýs for­manns, Kristrúnar Frosta­dótt­ur, sem hefst klukkan 16:30 á morg­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent