Kvika banki sektaður um 18 milljónir af Fjármálaeftirlitinu

Fjármálaeftirlitið hefur lokið skoðun sinni á útgáfu skuldabréfaflokksins OSF II 18 01, sem Kvika banki bauð fjárfestum upp á árin 2018 og 2019. Bankinn hefur fallist á að greiða 18 milljóna króna sektargreiðslu.

kvika banki
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands og Kvika banki gerðu í lok apríl með sér sam­komu­lag um að bank­inn greiddi 18 milljón króna sekt, fyrir að hafa brotið gegn ákvæðum ákvæðum laga um verð­bréfa­við­skipti. Brotin áttu sér stað í tengslum við sölu og mark­aðs­setn­ingu á skulda­bréfa­flokknum OSF II 18 01, sem bank­inn bauð upp á sem fjár­fest­ing­ar­kost árin 2018 og 2019.

Alls var um það bil fimm millj­arða skulda­bréfa­út­gáfu að ræða, sem Fjár­mála­eft­ir­litið segir að hafi brotið gegn lögum um verð­bréfa­við­skipti í nokkrum lið­um. Brotin telj­ast gróf, að mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, en sáttin var opin­beruð á vef Seðla­banka Íslands í dag.

Í sátt­inni kemur fram að bank­inn hafi ekki sinnt skyldum sínum um grein­ingu hags­muna­á­rekstra áður en til við­skipta almennra fjár­festa með skulda­bréfið var stofn­að. Þá hafi upp­lýs­inga­gjöf um fjár­fest­ing­ar­kost­inn til við­skipta­vina ekki verið nógu ítar­leg eða grein­ar­góð og að upp­lýs­ingar og umfjöllun um fjár­fest­ing­ar­kost­inn sem og aðila tengdum honum hafi ekki upp­fyllt kröfur um að vera skýr, sann­gjörn og ekki vill­andi.

Auglýsing

Einnig hafi bank­inn ekki sinnt skyldum sínum um mat á hæfi í til­vikum 30 við­skipta­vina og um flokkun við­skipta­vina í fimm til­vik­um.

Þetta er í fjórða sinn á síð­ustu fimm árum sem Kvika banki brýtur gegn ákvæðum laga á fjár­mála­mark­aði og segir í sátt­inni að sú stað­reynd hafi orðið til hækk­unar á sekt­ar­fjár­hæð­inni.

Hins vegar segir að sam­starfsvilji bank­ans og sú úrbóta­vinna sem bank­inn hafi ráð­ist í síðan málið kom upp komi til lækk­unar á sekt­inni, en öllum almennum fjár­festum sem fjár­festu í skulda­bréf­inu stóð til boða að fá bréfin seld til Kviku á ný.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent