Lán til fyrirtækja hafa ekki verið meiri frá því fyrir kórónuveirufaraldurinn

Stóru bankarnir þrír lánuðu 15,6 milljarða króna til fyrirtækja í ný útlán í júlí. Seðlabankastjóri telur að þeir séu í kjörstöðu til að styðja við fjárfestingu í atvinnulífinu og að vaxtamunur muni lækka.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Auglýsing

Bankar lands­ins hafa ekki lánað meira í einum mán­uði til fyr­ir­tækja en þeir gerðu í júlí frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á af fullum þunga á Íslandi. Í síð­asta mán­uði lán­uðu þeir fyr­ir­tækjum 15,6 millj­arða króna. Það er meira en kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki hafa lánað fyr­ir­tækjum innan mán­aðar frá því í mars í fyrra, þegar þeir lán­uð­u slíkum 16,1 millj­arð króna.

Það sem af er ári nema ný útlán banka, umfram upp­greiðslur og umfram­greiðsl­ur, til atvinnu­fyr­ir­tækja 55,6 millj­örðum króna.  Allt árið í fyrra lán­uðu kerf­is­lega mik­il­vægir bankar á Íslandi sam­tal fyr­ir­tækjum lands­ins 7,8 millj­arða króna nettó. Ný útlán á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins 2021 voru því rúm­lega sjö sinnum hærri upp­hæð en lánuð var nettó til fyr­ir­tækja allt árið í fyrra. 

Þetta má lesa út úr nýbirtum hag­tölum Seðla­banka Íslands um stöðu íslenska banka­kerf­is­ins. 

Til sam­an­burðar var nettó heild­ar­um­fang nýrra útlána 105 millj­arðar króna árið 2019 og tæp­lega 209 millj­arðar króna árið 2018, þegar bank­arnir lán­uðu fyr­ir­tækjum lands­ins 27 sinnum meira en í fyrra.

Auglýsing
Raunar teygir þessi við­snún­ingur í lánum til fyr­ir­tækja sig aðeins aft­ar, en til des­em­ber 2020. Þá lán­uðum bank­arnir nettó sjö millj­arða króna til atvinnu­fyr­ir­tækja líka sem þýðir að hina ell­efu mán­uði árs­ins 2020 lán­uðum þeir fyr­ir­tækj­unum 800 millj­ónir króna umfram það sem þau greiddu upp. 

Býst við því að vaxta­munur lækki

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað að hækka stýri­vexti um 0,25 pró­sent á mið­viku­dag, upp í 1,25 pró­sent. Það var önnur vaxta­hækkun árs­ins en vextir voru líka hækk­aðir um 0,25 pró­sentu­stig í maí. 

Í við­tali við Mark­að­inn, fylgi­rit Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, á fimmtu­dag sagði Ásgeir Jóns­son seðla­banka­stjóri að bankar lands­ins væru nú í kjörað­stæðum til að styðja við fjár­fest­ingu í atvinnu­líf­inu. Það hafi aldrei staðið jafn sterkt og nú frá hruni. Aðgerðir stjórn­valda og Seðla­bank­ans hafi ýtt miklu lausu fé út í hag­kerfið og það ætti að skila því að vaxta­munur bank­anna lækki þegar fram í sæk­ir.

Vaxta­munur er mun­ur­inn á þeim vöxtum sem bank­arnir greiða fólki og fyr­ir­tækjum fyrir inn­lán sem þau geyma hjá þeim og vöxt­unum sem þeir leggja á útlán. Bank­arnir hafa stærstan hluta hagn­aðar síns af hon­um.

Vaxta­munur stóru bank­anna þriggja var á bil­inu 2,4-2,7 pró­sent á fyrri helm­ingi yfir­stand­andi árs, sem er mjög svipað og hann var á árinu 2020, þegar hann var 2,7 pró­sent að með­al­tali. Til sam­an­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­sent í fyrra. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann undir einu pró­senti, sam­kvæmt því sem fram kemur í árs­riti Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent