Langtímavæntingar um verðbólgu enn óbreyttar

Markaðsaðilar búast nú við meiri verðbólgu á yfirstandandi ársfjórðungi en þeir gerðu áður. Væntingar þeirra til verðbólgu eftir tvö ár hafa hins vegar ekki breyst.

Þrátt fyrir verri skammtímahorfur búast markaðsaðilar enn við að verðbólgan verði 2,8 prósent eftir tvö ár.
Þrátt fyrir verri skammtímahorfur búast markaðsaðilar enn við að verðbólgan verði 2,8 prósent eftir tvö ár.
Auglýsing

Gert er ráð fyrir því að verð­bólgan nái hámarki á yfir­stand­andi árs­fjórð­ungi og lækki svo með stöð­ugum hætti á næsta ári. Vænt­ingar um verð­bólgu eftir tvö ár hafa hins vegar hald­ist óbreyttar það sem af er ári. Þetta kemur fram í vænt­inga­könnun mark­aðs­að­ila á verð­bólgu sem Seðla­bank­inn gaf út í morg­un.

Sam­kvæmt könn­un­inni er búist við 4,6 pró­senta verð­bólgu að með­al­tali á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins. Þar telja mark­aðs­að­ilar alþjóð­lega verð­þróun vega þyngst inn, en margir þeirra telja einnig hátt fast­eigna­verð og veikt gengi krón­unnar munu eiga sinn þátt. Fáir telja þó að fram­boðs­hnökrar og hár flutn­ings­kostn­aður muni hafa mikil bein áhrif á verð­bólg­una hér­lend­is.

Þetta eru hærri vænt­ingar en mark­aðs­að­il­arnir höfðu í síð­ustu vænt­inga­könnun sem gerð var í ágúst, en þá bjugg­ust þeir við að verð­bólgan á yfir­stand­andi árs­fjórð­ungi yrði komin niður fyrir 4 pró­sent.

Auglýsing

Mark­aðs­að­ilar Seðla­bank­ans eru 29 tals­ins og telja banka, líf­eyr­is­sjóði, verð­bréfa- og fjár­fest­ing­ar­sjóði, verð­bréfa­miðl­ana og önnur fyr­ir­tæki með starfs­leyfi til eigna­stýr­ing­ar. Svör feng­ust frá 25 aðilum í könn­un­inni sem birt var í morg­un.

Að með­al­tali töldu svar­endur könn­un­ar­innar að verð­bólgan yrði litlu minni í byrjun næsta árs, en að hún færi að minnka með stöð­ugum hætti út árið. Á síð­asta fjórð­ungi næsta árs er svo búist við að verð­bólgan verði komin niður í 3,1 pró­sent.

Aðspurðir hversu mikla þeir töldu verð­bólg­una vera eftir tvö ár töldu mark­aðs­að­il­arnir að hún myndi ná 2,8 pró­sent­um. Þetta eru óbreyttar lang­tíma­vænt­ingar frá síð­ustu tveimur vænt­inga­könn­un­um, en í byrjun árs var talið að verð­bólgan yrði 2,6 pró­sent eftir tvö ár.

Kjöl­festan enn ekki farin

Kjarn­inn hefur áður fjallað um lang­tíma­verð­bólgu­vænt­ingar, en sam­kvæmt útreikn­ingum Agn­ars Tómasar Möll­ers, sjóðs­stjóra hjá Kviku eigna­stýr­ingu, hefur hún ekki enn hækkað fram úr öllu ráði, þrátt fyrir að verð­bólga hafi ekki mælst hærri í níu ár.

Við síð­ustu vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans sagði hún það vera áhyggju­efni að verð­bólgu­vænt­ingar virð­ast hafa tekið að hækka á ný. Of snemmt sé þó að segja til um hvort kjöl­festa þeirra við verð­bólgu­mark­mið sé að veikj­ast.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent