Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, gefur út bókina „Uppgjör bankamanns“

Fyrrverandi forstjóri Glitnis gefur í lok viku út bók þar sem hann gerir upp rúmlega áratuga langa baráttu sína við réttarkerfið á Íslandi. Hann var ákærður í fjórum málum og sakfelldur í tveimur þeirra.

Lárus Welding þegar hann var stýrði Glitni.
Lárus Welding þegar hann var stýrði Glitni.
Auglýsing

Lárus Weld­ing, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitnis banka, hefur skrifað bók sem ber heitið „Upp­gjör banka­manns“ og kemur út í lok þess­arar viku. Greint er frá þessu í Morg­un­blað­inu í dag. Þar segir að í kynn­ingu á bók­inni segi að það hafi ekki legið fyrir þegar Lárus var ráð­inn for­stjóri Glitnis að „fram undan væri rúm­lega ára­tugar löng bar­átta í íslenska rétt­ar­kerf­inu þar sem ákæru­valdið gekk mjög hart fram á meðan Lárus gaf allt sitt í vörn­ina“.

Um er að ræða fyrstu bók­ina sem æðsti stjórn­andi eins þeirra banka sem féllu í banka­hrun­inu haustið 2008 gefur út. Áður höfðu stórir eig­endur slíkra banka þó gefið út bækur þar sem þeir lýsa sinni hlið. Þar er um að ræða Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­anda Glitnis sem gaf út bók­ina „Málsvörn“ í byrjun árs í fyrra, og Björgólf Thor Björg­ólfs­son, sem gaf út „Billions to Bust – and Back“ alþjóð­lega árið 2014.

Lárus var ákærður í fjórum hrun­mál­um. Hann var sýkn­aður í svoköll­uðu Vafn­ings­máli í Hæsta­rétti í febr­úar 2014 en sak­felldur í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli gagn­vart nokkrum stjórn­endum Glitnis í hér­aðs­dómi í mars 2018 og áfrýj­aði ekki þeirri nið­ur­stöðu. Þá var hann end­an­lega sýkn­aður í svoköll­uðu Aur­um-­máli í Lands­rétti í októ­ber 2018 en sak­felldur í svoköll­uðu Stím-­máli í Lands­rétti í júní 2020. Síð­asti dóm­ur­inn í hrun­máli gegn Lárusi féll því næstum tólf árum eftir að Glitnir féll í októ­ber 2008.

„Ís­lend­ing­ar, einir þjóða, fóru mark­visst á eftir starfs­mönnum bank­anna“

Lárus sætti gæslu­varð­haldi um tíma á árinu 2011 eftir að hafa verið hand­tek­inn í tengslum við meint brot í tengslum við störf hans hjá Glitni. Upp­haf­lega var hann dæmdur í fimm ára fang­elsi fyrir hlut sinn í Stím mál­inu og í hér­aði fékk hann eins árs dóm fyrir Aur­um-­mál­ið, en refsiramm­inn fyrir efna­hags­brot er sex ár. Þegar þriðja nið­ur­staðan féll á fyrsta dóm­stigi, í mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu, var honum því ekki gerð frek­ari refs­ing. Þeirri nið­ur­stöðu ákvað Lárus að una. 

Auglýsing
Hann var svo, líkt og áður sagði, sýkn­aður í Lands­rétti í Aurum mál­inu og þegar Lands­réttur dæmdi hann sekan í Stím-­mál­inu var fimm ára refs­ing hans gerð skil­orðs­bundin þar sem mála­rekst­ur­inn hafði dreg­ist úr hömlu. Því var Lárusi á end­anum ekki gert að sæta fang­els­is­vist utan þess tíma sem hann sat í gæslu­varð­haldi.

Lárus var ein­ungis þrí­tugur þegar hann var ráð­inn for­stjóri Glitnis vorið 2007. Hann hafði áður starfað sem fram­kvæmda­stjóri hjá Lands­banka Íslands í London og hjá Íslands­banka-FBA.

Lárus Welding var alls ákærður í fjórum málum og eyddi löngum stundum í réttarsal.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins um útgáfu bók­ar­innar kemur fram hún gefi mik­ils­verða sýn þeirra sem störf­uðu í fjár­mála­kerf­inu og að Lárus varpi ljósi á efna­hags­hrunið og tengsl þess við hina alþjóð­legu fjár­málakreppu. „Í bók­inni fjallar Lárus um ýmis­legt sem aflaga fór innan íslenska rétt­ar­kerf­is­ins í tengslum við eft­ir­leik hruns­ins en Íslend­ing­ar, einir þjóða, fóru mark­visst á eftir starfs­mönnum bank­anna. Fram kemur í bók­inni að Lárus hafði rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rúman ára­tug. Hann segir þar frá upp­lifun sinni af því þegar hann sætti gæslu­varð­haldi, hler­un­um, hús­leit­um, margra vikna yfir­heyrslum og loks fjórum ákær­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent