Le Pen segir Zlatan Ibrahimovich að hann geti farið frá "skítalandinu"

h_51801431-1.jpg
Auglýsing

Marie Le Pen, leið­togi hægri flokks­ins Front National í Frakk­landi, hefur sagt Zlatan Ibra­himovich að hann geti farið frá Frakk­landi ef honum líki það ekki. Sænski knatt­spyrnu­kapp­inn, sem leikur með franska lið­inu Paris Sain­t-­Germa­in, hefur þurft að biðj­ast afsök­unar á því að kalla Frakk­land skíta­land sam­hliða því að úthúða dóm­ara eftir leik um helg­ina. Ummæli hans hafa ýtt af stað miklum póli­tískum deilum í Frakk­landi, sam­kvæmt frétt Guar­dian um mál­ið.

Ibra­himovich mun mæta fyrir aga­nefnd á fimmtu­dag og þá kemur í ljós hversu langt bann hann fær fyrir atvik­ið.

Auglýsing

Þeir sem telja Frakk­land skíta­land geta farið



Paris Sain­t-­Germain tap­aði 3-2 fyrir Bor­deaux um helg­ina og Ibra­himovich missti algjör­lega stjórn á skapi sínu fyrir framan mynda­vél­arnar eftir leik­inn. Hann helti sér yfir dóm­ara leiks­ins og sagði að "skíta­land­ið" Frakk­land ætti ekki skilið lið eins og Paris Sain-­Germa­in.

Marie Le Pen. Marie Le Pen.

Le Pen var spurð út í atvikið í útvarps­við­tali í dag og sagði: "þeir sem telja að Frakk­land sé skíta­land geta far­ið. Það er það ein­falt."

Ibra­himovic hefur beðist afsök­unar og sagt að ummælin hafi beinst að dóm­ara leiks­ins. Þau hafi ekki verið ætluð "Frakk­landi eða Frökk­um."

Leik­mað­ur­inn skor­aði tví­vegis í leiknum en tapið þýðir að Paris Sain­t-­Germain er tveimur stigum á eftir topp­lið­inu Lyon í frönsku deild­ar­keppn­inni.

Þetta var í annað sinn á skömmum tíma sem Ibra­himovich komst í frétt­irnar vegna niðr­andi ummæla en eftir meist­ar­deild­ar­leik við Chel­sea í síð­ustu viku kall­aði hann leik­menn and­stæð­ing­anna "lítil börn". Hann var rek­inn út af í leikn­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None