Leggur fram frumvarp um að afnema tolla á innflutningi á frönskum kartöflum

Þrátt fyrir að enginn innlendur framleiðandi framleiði franskar kartöflur lengur er 76 prósent tollur á innflutning þeirra. Ráðherrar hafa kastað málinu á milli sín en nú er komið fram frumvarp um að afnema þennan toll.

Franskar kartöflur njóta tollverndar á Íslandi þrátt fyrir að enginn innlendur aðili framleiði þær. Fyrir vikið kosta þær miklu meira úti í búð en þær þyrftu að kosta.
Franskar kartöflur njóta tollverndar á Íslandi þrátt fyrir að enginn innlendur aðili framleiði þær. Fyrir vikið kosta þær miklu meira úti í búð en þær þyrftu að kosta.
Auglýsing

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hefur lagt fram frum­varp þar sem lagt er til að tollur á inn­flutn­ing á frönskum kart­öflum verði afnumin með öllu.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að franskar kart­öflur beri sem stendur 76 pró­sent toll, sem er hæsti pró­sentu­tollur á mat­vöru í íslensku toll­skránni. „Sam­kvæmt frí­versl­un­ar­samn­ingum við Kanada og Evr­ópu­sam­bandið eru franskar kart­öflur þaðan fluttar inn á lægri tolli, eða 46 pró­sent, og veldur því að neyt­endur greiða hærra verð fyrir vör­una sem því nem­ur. Hinn 24. ágúst sl. birt­ist frétt þess efnis að Þykkva­bæjar ehf. hefði hætt fram­leiðslu á frönskum kart­öfl­um. Þar með hefur fram­leiðslu á frönskum kart­öflum á Íslandi verið hætt og standa því engin rök lengur til slíkrar toll­vernd­ar. Er því lagt til að inn­flutn­ings­tollur á franskar kart­öflur verði afnum­inn neyt­endum og fyr­ir­tækjum til heilla.“

Köst­uðu mál­inu á milli sín

Félag atvinnu­rek­enda sendi Svandísi Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra erindi 24. ágúst síð­ast­lið­inn og hvatti þau til að beita sér fyrir nið­ur­fell­ingu tolls­ins, sem lagður er á inn­fluttar franskar kart­öfl­ur.

Auglýsing
Í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef félags­ins í síð­asta mán­uði sagði að rökin fyrir að fella toll­inn niður væru aug­ljós. „Hann var lagður á til að vernda inn­lenda fram­leiðslu. Lengi vel hefur hann verndað eitt fyr­ir­tæki, Þykkva­bæj­ar, sem fram­leiddi franskar kart­öflur – reyndar úr inn­fluttum kart­öflum að stórum hluta. Hinn 24. ágúst til­kynnti fyr­ir­tækið að það væri hætt fram­leiðsl­unni. Hæsti pró­sentu­tollur toll­skrár­innar verndar þá ekk­ert leng­ur. Hann er bara úreltur og ósann­gjarn skattur á verzl­un, veit­inga­rekstur og neyt­endur í land­inu, sem nemur 300-400 millj­ónum króna á ári.“

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Mynd: Bára Huld Beck.

Þar sagði enn fremur að svar hafi borist frá ráðu­neyti Svan­dísar tveimur dögum síð­ar. Í því kom fram að mat­væla­ráð­herra hefði ekki aðkomu að ákvörðun tolls fyrir umrædda vöru þar sem hún beri ein­ungis verð­toll. Slíkur inn­flutn­ingur heyri undir vald­svið fjár­mála­ráð­herra.

Í fréttum Stöðvar 2 föstu­dag­inn 9. sept­em­ber sagði Bjarni Bene­dikts­son hins vegar að málið væri ekki á sínu borði, heldur hjá Svandísi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent