Leggur til að Lárus og Jón Gunnar hljóti heiðurslaun listamanna

Þrátt fyrir að einungis 25 manns geti notið heiðurslauna listamanna á hverjum tíma hefur þingmaður Pírata lagt fram tillögu á Alþingi um að forsvarsmenn Bankasýslu ríkisins bætist við sem 26. og 27. maður á lista.

Lárus Blöndal stjórnarformaður og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Lárus Blöndal stjórnarformaður og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Auglýsing

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata hefur lagt til breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­lögin á Alþingi, þar sem lagt er til að Lárus Blön­dal og Jón Gunnar Jóns­son, stjórn­ar­for­maður og for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins, bæt­ist við á lista þeirra sem hljóta heið­urs­laun lista­manna.

Ætla má að Björn Leví vísi þarna til þess sem fram kom í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka, en þar sagði að í úttekt­ar­vinnu stofn­un­ar­innar hefði komið ítrekað fram af hálfu full­trúa Banka­sýslu rík­is­ins og fjár­mála­ráð­gjafa stofn­un­ar­innar að úrvinnsla sölu­ferlis eftir til­boðs­fyr­ir­komu­lagi væri frekar í ætt við list en vís­indi.

Auglýsing

Ólík­legt má telja að til­laga Björns Levís hafi verið sett fram af mik­illi alvöru, og ef til vill mætti telja hana til gjörn­ings­list­ar, enda geta sam­kvæmt lögum þeir einir notið heið­urs­launa „sem hafa varið starfsævi sinni eða veru­legum hluta hennar til list­starfa eða skarað fram úr við list­sköpun sína eða ef störf þeirra að listum hafa skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóða­vett­vang­i“.

Að auki er lagt til að þeir Lárus og Jón Gunnar bæt­ist við sem 26. og 27. maður á lista, en lög kveða á um að ein­ungis megi veita 25 manns að hámarki heið­urs­laun lista­manna á hverju ári.

Hild­ur, Krist­ín, Man­freð og Þór­hildur bæt­ast við

Fjögur ný bæt­ast á list­ann á næsta ári, sam­kvæmt til­lögu alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar, en á árunum 2021 og 2022 lét­ust fjögur úr hópi þeirra lista­manna sem nutu heið­urs­launa, þau Jón Sig­ur­björns­son og Vil­borg Dag­bjarts­dóttir á árinu 2021 og Guð­rún Helga­dóttir og Þur­íður Páls­dóttir árið 2022.

Alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd gerði til­lögu um að þau Hildur Hákon­ar­dótt­ir, Kristín Þor­kels­dótt­ir, Man­freð Vil­hjálms­son og Þór­hildur Þor­leifs­dóttir bætt­ust á list­ann í ár.

Þau sem njóta munu heið­urs­launa lista­manna yrðu því eft­ir­far­andi:

  1. Bubbi Morthens
  2. Erró
  3. Frið­rik Þór Frið­riks­son
  4. Guð­bergur Bergs­son
  5. Guð­rún Ásmunds­dóttir
  6. Gunnar Þórð­ar­son
  7. Hannes Pét­urs­son
  8. Hildur Hákon­ar­dóttir
  9. Hreinn Frið­finns­son
  10. Jón Ásgeirs­son
  11. Jón Nor­dal
  12. Jónas Ingi­mund­ar­son
  13. Krist­björg Kjeld
  14. Kristín Jóhann­es­dóttir
  15. Kristín Þor­kels­dóttir
  16. Magnús Páls­son
  17. Man­freð Vil­hjálms­son
  18. Matth­ías Johann­es­sen
  19. Megas
  20. Steina Vasulka
  21. Vig­dís Gríms­dóttir
  22. Þor­björg Hösk­ulds­dóttir
  23. Þor­gerður Ing­ólfs­dóttir
  24. Þór­hildur Þor­leifs­dóttir
  25. Þrá­inn Ber­tels­son

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent