Leigufélagið Bríet gefur 30 prósent afslátt af leigu í desember

Félag í opinberri eigu sem á um 250 leiguíbúðir um allt land og er ekki rekið með hagnaðarsjónarmið að leiðarljósi ætlar að lækka leigu allra leigutaka frá og með næstu áramótum.

Á meðal eigna Bríetar er þetta fjölbýlishús á Selfossi.
Á meðal eigna Bríetar er þetta fjölbýlishús á Selfossi.
Auglýsing

Leigu­fé­lagið Brí­et, sem er í eigu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) og sveit­ar­fé­lag­anna Fjarða­byggð­ar, Fjalla­byggðar og Reyk­hóla­hrepps, ætlar að gefa leigj­endum sínum 30 pró­sent afslátt af leigu í des­em­ber­mán­uði. Félag­ið, sem er óhagn­að­ar­drifið og rekur 250 fast­eignir í 34 sveit­ar­fé­lögum allt í kringum land­ið, ætlar líka að lækka leigu­verð til allra leigu­taka var­an­lega um fjögur pró­sent frá kom­andi ára­mót­u­m. 

Í til­kynn­ingu segir að  leigu­tökum hafi verið greint frá þessu bréfleiðis í morgun og að þeir ættu að sjá lægri upp­hæðir en vana­lega á greiðslu­seðlum í heima­bank­anum sín­um. „Með þessu tekur Bríet á sig um helm­ing af hækkun vísi­tölu neyslu­verðs það sem af er árinu en leigu­samn­ingar eru almennt vísi­tölu­bundnir sem leiðir til auk­ins hús­næð­is­kostn­aðar leigj­enda við hraða hækkun verð­lags. Leigu­fé­lagið taldi brýnt að bregð­ast við því erf­iða efna­hags­lega ástandi og þeirri miklu verð­bólgu sem nú ríkir og koma til móts við leigu­taka sína sem verða fyrir áhrif­um.“

Auglýsing
Þar er haft eftir Ástu Björg Pálma­dótt­ur, stjórn­ar­for­manni Brí­et­ar, að þar sem útgjöld félags­ins hafi ekki hækkað eins mikið og vísi­tölu­hækk­anir á árinu væri rými til að fara í lækk­anir á leigu. „Við vildum nýta það til að aðstoða sem mest fjöl­skyld­urnar sem leigja heim­ili sín af okk­ur. Um þessar mundir ríkir mikil óvissa í efna­hags­málum og við vitum að það er ekki gott að fara inn í jóla­mán­uð­inn, með öllum þeim útgjöldum sem honum fylgir, með fjár­hags­á­hyggj­ur. Við vonum að des­em­ber-­af­slátt­ur­inn geri okkar fólki auð­veld­ara að eiga gleði­lega hátíð og að var­an­lega lækk­un­in, frá og með ára­mót­un­um, muni einnig létta því byrð­arnar fram á við.“

Ákvörðun um að stofna Bríet var tekin í des­em­ber 2018. Félagið tók þá við flestum þeim fast­­eignum sem eru á hendi Íbúða­lána­sjóðs á þeim tíma, en honum var skömmu síðar skipt upp þannig að félags­legur hluti sjóðs­ins fór til HMS og skuldir hans urðu eftir í því sem kall­ast nú ÍL-­sjóð­ur. 

Þegar til­kynnt var um stofnun félags­ins var haft eftir Ásmundi Ein­ari Daða­syni, sem þá fór með hús­næð­is­mál í rík­is­stjórn Íslands, stofnun þess vera við­bragð við erf­iðri stöðu á hús­næð­is­­mark­aði sem birt­ist ekki síst í háu verði og skorti á leig­u­hús­næði á lands­­byggð­inni. Hann taldi að hægt yrði að bæta gæði, auka fram­­boð og draga úr kostn­aði með því að sam­ein­­ast um rekstur slíks hús­næðis í stærra félagi sem starf­aði í þeim til­­­gangi einum og hefði ekki hagnað að leið­­ar­­ljósi, umfram það sem þarf til að sinna við­haldi og end­­ur­nýjun hús­næð­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent