Leit stendur yfir að farþegaþotu Air Asia sem hvarf af ratsjá í nótt

AirAsia-X-Airbus-A330-300-Nazarinia-3.jpg
Auglýsing

Nú stendur yfir umfangs­mikil leit að far­þega­þotu mala­síska flug­fé­lags­ins Air Asia sem hvarf af rat­sjá flug­um­ferð­ar­stjórnar í nótt. Um borð í vél­inni voru 155 far­þeg­ar, 138 full­orðn­ir, 16 börn og eitt unga­barn auk sjö manna áhafn­ar. Því er ótt­ast um afdrif 162 ein­stak­linga sem voru í flug­vél­inni. Flestir stærstu frétta­miðlar heims segja frá mál­inu.

Flug­vél­in, með flug­núm­erið QZ8501, tók á loft frá alþjóða­flug­vell­inum Juanda í Sura­baya í Indónesíu, klukkan 05:35 á stað­ar­tíma, áleiðis til Singapúr. Tæpum tveimur klukku­stundum síðar rofn­aði sam­band við flug­vél­ina, sem hafði áður breytt um flug­leið sökum slæmra veð­ur­skil­yrða. Flug­vélin var í 32.000 feta hæð þegar sam­bandið við hana rofn­aði.

Á meðal 162 far­þega vél­ar­innar voru 156 frá Indónesíu, þrír frá Suð­ur­-Kóreu, einn Frakki, einn frá Malasíu og einn frá Singapúr. Flug­stjóri vél­ar­innar var með yfir 6.100 flug­tíma og flug­mað­ur­inn 2.275. Flug­vélin var af gerð­inni A320-200 og fór síð­ast í við­hald 16. nóv­em­ber.

Auglýsing

Björg­un­ar- og leitar­að­gerðum er stjórnað af flug­mála­yf­ir­völdum í Indónesíu (CAA). Flug­fé­lagið Air Asia hefur opnað sér­stakt neyð­ar­númer fyrir ætt­ingja og vini þeirra sem voru í flug­vél­inni.

Sky frétta­stofan segir frá helstu þekktu stað­reynd­unum varð­andi flug­ QZ8501.

Ef að líkum lætur er þetta þriðja mann­skæða flug­slysið hjá mala­sískum flug­fé­lögum á árinu. Eins og kunn­ugt er fór­ust tvær far­þega­flug­vélar Mala­ysian Air­lines með stuttu milli á árinu. Sú fyrri, með 239 far­þega inn­an­borðs, hvarf spor­laust á flugi milli Kuala Lumpur og Pek­ing í mars, og sú síð­ari var skotin niður yfir Úkra­ínu þann 17. júlí síð­ast­lið­inn þar sem 298 far­þegar fór­ust.

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None