Leyniþjónustan vill milljarð til að byggja eftirlíkingu af Hvíta húsinu

White_House_DC.jpg
Auglýsing

Banda­ríska leyni­þjón­ustan hefur óskað eft­ir fjá­veit­ingu frá þar­lendum stjórn­völdum til að byggja nákvæma eft­ir­lík­ingu af þekktasta heim­ili heims, sjálfu Hvíta hús­inu. Áætl­aður kostn­aður við að byggja eft­ir­mynd af heim­ili for­seta Banda­ríkj­anna hleypur á átta millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða rúmum 1,1 millj­arði íslenska króna. Vef­síða The New York Times greinir frá mál­inu.

Fyr­ir­ætl­anir leyni­þjón­ust­unnar má rekja til harðrar gagn­rýni sem hún hefur mátt sæta að und­an­förnu, vegna pín­legra upp­á­tækja þar sem komið hafa í ljós alvar­legir ágallar á örygg­is­gæslu Hvíta húss­ins. Leyni­þjón­ustan hefur meira að segja verið sökuð um að geta ekki tryggt öryggi for­seta Banda­ríkj­anna svo gott sé.

Hér að neðan má sjá skemmti­lega sam­an­tekt The New York Times um vand­ræðin hjá banda­rísku leyni­þjón­ust­unni að und­an­förnu.

Auglýsing

Sam­kvæmt umfjöllun The New York Times er búist við að Jos­eph P. Clancy, for­stjóri banda­rísku leyni­þjón­ust­unn­ar, fari fram á fjár­veit­ingu til verk­efn­is­ins á fundi þar­lendrar þing­nefndar í dag. Banda­ríska leyni­þjón­ustan heldur því fram að með bygg­ingu nákvæmrar eft­ir­lík­ingar af Hvíta hús­inu verði hægt að þjálfa starfs­menn hennar enn betur til að vernda Banda­ríkja­for­seta.

Um 40 kíló­metra frá 1600 Penn­syl­vania  Avenue, sem er heim­ils­fang Hvíta húss­ins í Was­hington, er að finna svæði þar sem leyni­þjón­ustu­menn sem vakta heim­ili for­seta Banda­ríkj­anna stunda æfing­ar. Þar hefur verið reynt að líkja eftir aðstæðum við og í Hvíta hús­inu, sem ekki þykir full­nægj­andi að sögn for­svars­manna banda­rísku leyni­þjón­ust­unn­ar.

Fyr­ir­hugað líkan af heim­ili Banda­ríkja­for­seta mun­i veita full­trúum leyni­þjón­ust­unnar tæki­færi til að æfa sig, og við­bún­að, við raun­veru­legri aðstæður en nú þekk­ist og gera þá þar með betur í stakk búna til að gæta öryggis for­seta Banda­ríkj­anna.

Beiðni leyni­þjón­ust­unnar kemur sex mán­uðum eftir að karl­maður hopp­aði yfir girð­ing­una við Hvíta hús­ið, hljóp óáreittur yfir gras­flöt­ina fyrir framan húsið og fór inn í húsið um ólæsta hurð. Atvikið vakti mikla athygli og hneykslan og hörð gagn­rýni á banda­rísku leyni­þjón­ustunna fylgdi í kjöl­far­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None