Lífeyrissjóðir senda út upplýsingar á pappír fyrir 200 milljónir króna á ári

Í nýframlögðu frumvarpi er lagt til að lífeyrissjóðum verði gert heimilt að birta sjóðsfélögum sínum upplýsingar með rafrænum hætti. Sérstaklega þarf að óska eftir því að fá þær á pappír. Ef enginn velur það sparast um 200 milljónir króna á ári.

Pappír Mynd: pxhere.com
Auglýsing

Sam­kvæmt þeim lögum sem gilda í land­inu í dag er líf­eyr­is­sjóðum ekki heim­ilt að birta sjóðs­fé­lögum sín­um  upp­lýs­ingar raf­rænt nema þeir óski eftir því. Sjóð­irnir þurfa því að senda upp­lýs­ingar um stöðu líf­eyr­is­sparn­að­ar, sem er lög­bund­inn, út á papp­írs­formi til allra sjóðs­fé­laga sem hafa ekki lagt fram slíka ósk. Kostn­aður vegna þeirra send­inga er um 200 millj­ónir króna á ári.

Nú hefur verið lagt fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um líf­eyr­is­sjóði. Einn angi þeirra breyt­inga er að sjóð­unum verði gert heim­ilt að birta sjóðs­fé­lögum upp­lýs­ingar raf­rænt en að þeir geti áfram sem áður óskað eftir því að fá upp­lýs­ingar og yfir­lit send á papp­ír. Verði frum­varpið sam­þykkt þá munu sjóðs­fé­lagar því þurfa að biðja um papp­írs­send­ing­arn­ar, í stað þess að óska sér­stak­lega eftir að þeim verði hætt. Ef eng­inn óskar eftir að fá upp­lýs­ingar og yfir­lit á pappír þá spara líf­eyr­is­sjóð­irnir því um 200 millj­ónir króna á ári, en í lok síð­asta árs voru greið­endur í sam­trygg­ing­ar­deild sjóð­anna 223.654 tals­ins. 

Umtals­verð jákvæð umhverf­is­á­hrif fylgja þessu einnig, enda þurfa sjóð­irnir ekki að kaupa gríð­ar­legt magn af pappír til að prenta út og senda.

Ekki fall­ist á til­lögu um að rukka fyrir papp­ír­inn

Frum­varpið var lagt fram á síð­asta þingi í lít­il­lega breyttri mynd en náði ekki fram að ganga. Þá bár­ust hins vegar fjöl­margar umsagnir um það. Ein slík kom frá Arion banka. Í henni var lagt til að heim­ild yrði bætt við til gjald­töku fyrir þá sem vildu áfram frá iðgjalda­yf­ir­lit og upp­lýs­ingar á papp­írs­formi,s em myndi taka gildi þremur árum eftir að heim­ild til raf­rænnar birt­ingar yrði lög­fest. 

Auglýsing
Í frum­varp­inu sem var birt á vef Alþingis á föstu­dag kemur fram í grein­ar­gerð að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið, sem leggur frum­varpið fram, fall­ist ekki á þá til­lögu. „Í því sam­bandi lítur ráðu­neytið m.a. til þess að iðgjöld til líf­eyr­is­sjóðs eru lög­bund­in, þau varða mik­il­væg rétt­indi sjóð­fé­lag­ans til fram­tíðar auk þess sem sjóð­fé­lagar eru mis­vel settir með að nýta sér staf­ræna tækni, þ.m.t. þeir sem eldri eru.“

Inn­leiða lög­bundna skyldu um frek­ari upp­lýs­inga­gjöf

Í nýja frum­varp­inu er líka lagt til að líf­eyr­is­sjóðum verði skylt að upp­lýsa sjóð­fé­laga um helstu rétt­indi sem fel­ast í aðild að sjóðnum og um skipu­lag hans og stefnu. „Betri skiln­ingur sjóð­fé­laga á líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu er til þess fall­inn að þeir taki upp­lýst­ari ákvarð­anir um líf­eyr­is­sparnað sinn, þar sem það er mögu­legt. Líf­eyr­is­sparn­aður er ein af stærstu eignum hvers Íslend­ings og sam­fé­lagið allt hefur gagn af auk­inni þekk­ingu á líf­eyr­is­kerf­in­u.“

Þá séu líkur á að sú upp­lýs­inga­gjöf sem lögð sé til leiði til þess að Ísland verði hæst í öllum þeim þremur flokkum sem alþjóð­leg úttekt Mercer á líf­eyr­is­sjóð­kerfum nær til, þ.e. sjálf­bærni, nægj­an­leika og heil­inda. „Ís­land var í fyrsta sæti í tveimur fyrr­nefndu flokk­unum árið 2021, en í sjö­unda sæti þegar kom að heil­ind­um, að miklu leyti vegna þess að upp­lýs­inga­gjöf til nýrra sjóð­fé­laga skort­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent