Lífeyrissjóðirnir lánuðu heimilum 40 milljarða króna óverðtryggt á sjö mánuðum

Ný óverðtryggð útlán lífeyrissjóða til sjóðsfélaga sína á sjö mánaða tímabili voru tvöfalt hærri en eina og hálfa árið þar á undan. Viðskiptabankarnir eru þó enn leiðandi á íbúðalánamarkaði og markaðshlutdeild þeirra yfir 70 prósent.

7DM_3128_raw_170615.jpg húsnæði fólk hús fasteign hús reykjavík
Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu 39,6 millj­arða króna í ný óverð­tryggð íbúða­lán, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðsl­um, frá nóv­em­ber 2021 og út maí síð­ast­lið­inn. Til sam­an­burðar lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir sam­tals um 20 millj­arða króna í slík lán frá byrjun apríl 2020, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn var að skella á af fullum krafti, og út sept­em­ber 2021, eða á eins og hálfs árs tíma­bil­i. 

Þetta má lesa úr nýbirtum tölum Seðla­banka Íslands um útlán líf­eyr­is­sjóða.

Sam­hliða skar­pri stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands á und­an­förnum mán­uð­um, þar sem vext­irnir hafa hækkað upp í 4,75 pró­sent, hafa helstu líf­eyr­is­sjóðir verið að hækka sína útlána­vexti. Þeir eru þó enn umtals­vert lægri en sam­bæri­legir óverð­tryggðir vextir sem bjóð­ast hjá bönk­um. Lægstu vext­irnir bjóð­ast nú hjá Brú líf­eyr­is­sjóði, 5,2 pró­sent. Til sam­an­burðar eru lægstu vextir banka hjá Lands­bank­an­um, 6,43 pró­sent. 

Aukn­ingin öll í óver­tryggðum lánum

​​Við­­­snún­­­ingur hefur verið á öllum útlánum líf­eyr­is­­­sjóð­anna til sjóðs­fé­laga sinna vegna íbúð­­­ar­­­kaupa frá því seint á síð­­­asta ári. Frá jún­­í­mán­uði árið 2020 og út októ­ber í fyrra, alls í 16 mán­uði, þá voru upp- eða umfram­greiðslur lána sjóð­anna meiri en ný útlán. Alls voru greidd upp lán fyrir 66,7 millj­­­arða króna umfram ný lán, jafnt verð­­tryggð og óverð­­tryggð, á tíma­bil­inu. Frá byrjun nóv­­­em­ber og út maí­­­mánuð lán­uðu líf­eyr­is­­­sjóð­irnir hins vegar 22,7 millj­­­arða króna meira en upp- og umfram­greiðsl­­­ur.

Auglýsing
Þar skiptir senn­i­­­lega mestu að Líf­eyr­is­­­­­sjóður verzl­un­ar­manna, næst stærsti líf­eyr­is­­­­­sjóður lands­ins, ákvað í fyrra­haust að stofna nýjan lána­­­­­flokk sjóðs­­­­­fé­laga­lána og lánar nú óverð­­­­­tryggð lán til íbúð­­­­­ar­­­­­kaupa með breyt­i­­­­­legum vöxt­­­­­um. 

Um er að ræða þá teg­und lána sem notið hefur mestra vin­­­­­sælda hjá íslenskum hús­næð­is­­­­­kaup­endum síð­­­­­ast­liðin ár. 

Uppi­staðan í þess­ari útlána­aukn­ingu hefur því verið í óverð­tryggðum lán­um. Á sama tíma og ný óverð­tryggð lán hafa námu 39,6 millj­örðum króna frá byrjun nóv­em­ber í fyrra og út maí í ár þá dróg­ust verð­tryggð lán líf­eyr­is­sjóða saman um 16,9 millj­arða króna. 

Bank­arnir stór­aukið mark­aðs­hlut­deild sína

Á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð stórjuku bank­arnir mark­aðs­hlut­deild sína á íbúða­lána­mark­aði.

Frá mars 2020 og fram út maí síð­­­ast­lið­inn juk­ust hrein ný útlán Lands­­­­bank­ans, Íslands­­­­­­­banka og Arion banka, með veði í íbúð, gríð­­ar­­lega. Mark­aðs­hlut­­­­deild bank­anna í öllum útistand­andi lánum til íbúð­­­­ar­­­­kaupa hefur vaxið úr 55 í meira en 70 pró­­­­sent.

Sam­tals lán­uðu bank­arnir þrír 664 millj­arða króna með veði í íbúð­ar­hús­næði á tíma­bil­inu, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðsl­um. Í maí námu útlánin 17 millj­örðum króna.

Þessi miklu útlána­vöxtur mynd­aði grunn­inn að gríð­­­ar­­­legum hagn­aði bank­anna þriggja í fyrra, sem sam­tals var 81,2 millj­­­arðar króna. Hann hafði líka mikil ruðn­­­ings­á­hrif á hús­næð­is­verð sem hefur hækkað um tugi pró­­­senta á skömmum tíma.

Greiðslu­byrði rokið upp

Á meðan að á far­aldr­inum stóð þre­­föld­uð­ust óverð­­tryggð hús­næð­is­lán við­­skipta­­bank­anna, fóru úr 370 millj­­örðum króna í 1.090 millj­­arða króna. 

Fyrir vikið hafa allir lands­­menn­irnir sem tóku óverð­­tryggðu lánin með breyt­i­­legu vöxt­unum séð greiðslu­­byrði sína stór­aukast. 

Í nýlegri Hag­sjá Lands­­bank­ans er tekið dæmi af 40 millj­­óna króna láni á lægstu óverð­­tryggðu vöxt­­um. Vaxta­­byrði þeirra hefur hækkað um 98 þús­und krónur frá því í maí í fyrra. Lands­­bank­inn býst við því að vextir haldi áfram að hækka og að vaxta­­byrðin muni aukast um 25 þús­und krónur í við­­bót á þessu ári. Þá hefur hún farið úr 110 þús­und krónum á mán­uði i 233 þús­und krónur á mán­uð­i.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent