„Þetta er í vinnslu“

Formaður Bankasýslunnar segir að ekkert liggi fyrir á þessari stundu hvað minnisblað varðar um gjafir og greidda hádegisverði í kjöl­far eða í aðdrag­anda beggja útboða sem fram hafa farið með hluti rík­is­ins í Íslands­banka.

Jón Gunnar Jónsson formaður Bankasýslunnar.
Jón Gunnar Jónsson formaður Bankasýslunnar.
Auglýsing

„Þetta er í vinnslu,“ segir Jón Gunnar Jóns­­son, for­­stjóri Banka­­sýsl­unn­­ar, í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans þar sem hann er spurður hvort stofn­unin sé búin að taka saman minn­is­blað um gjafir og greidda hádeg­is­verði í kjöl­far eða í aðdrag­anda beggja útboða sem fram hafa farið með hluti rík­­is­ins í Íslands­­­banka.

Fram kom á opnum fundi fjár­­laga­­nefndar í lok apríl síð­ast­lið­ins að Jón Gunnar hefði meðal ann­ars þáð vín­flöskur, flug­elda, konfekt og máls­verði frá sölu­ráð­gjöfum í ferl­inu. Nefnd­­ar­­menn fóru fram á ítar­leg svör um málið og sagð­ist for­stjór­inn ætla að taka saman minn­is­­blað um þessar gjafir og greiddu hádeg­is­verð­i.

Lárus Blön­dal, stjórn­­­ar­­for­­maður Banka­­sýsl­unn­­ar, var spurður sömu spurn­inga og svar­aði hann neit­andi fyrir sitt leyti.

Auglýsing

Fund­­ur­ fjár­laga­nefndar kom til vegna gagn­rýni á sölu á 22,5 pró­­sent hlut íslenska rík­­is­ins í Íslands­­­banka þann 22. mars síð­­ast­lið­inn á 52,65 millj­­arða króna. Alls fengu 207 fjár­­­festar þá að kaupa hluti á verði sem var sam­an­lagt 2,25 millj­­örðum króna undir mark­aðsvirði bank­ans í lok­uðu útboði sem fór fram sam­­kvæmt til­­­boðs­­leið.

Jón Gunnar segir jafn­framt í svari sínu til Kjarn­ans að ekki liggi fyrir hvenær fyrr­nefnt minn­is­blaðið verði til­búið eða hvort Banka­sýslan muni birta það opin­ber­lega.

Salan skoðuð

Fjár­­­mála­eft­ir­lit Seðla­­banka Íslands skoðar nú hátt­­semi ein­hverra þeirra fimm inn­­­lendu sölu­að­ila sem Banka­­sýslan valdi til að vinna að útboð­inu. Heim­ildir Kjarn­ans herma að þar sé verið að skoða mög­u­­lega hags­muna­á­­rekstra, meðal ann­­ars vegna þess að starfs­­menn sumra sölu­ráð­gjafa hafi sjálfir tekið þátt í útboð­in­u.

Rík­is­end­ur­skoðun vinnur einnig að stjórn­sýslu­út­tekt á söl­unni. Kjarn­inn greindi frá því í júní að skil á nið­ur­stöð­unni myndi frest­­ast. Skýrslan átti sem sagt að koma út í júní en nú er stefnt að því að skila henni fyrir versl­un­­ar­­manna­helgi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent