Lífskjarasamningurinn heldur – „Ánægjuleg niðurstaða“

Formaður VR segist vera létt að lífskjarasamningurinn haldi. Engin stemning hafi verið hjá atvinnulífinu né almenningi að fara í átök við þessar aðstæður.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Auglýsing

Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn mun halda gildi sínu þar til hann rennur út þann 1. nóv­em­ber 2022. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) sendi frá sér í dag.

Samn­inga­nefnd Alþýðu­sam­bands Íslands og fram­kvæmda­stjórn Sam­taka atvinnu­lífs­ins hitt­ust á fundi í dag um fram­hald lífs­kjara­samn­ings­ins en bregð­ist for­sendur getur hvor aðili sagt honum upp fyrir klukkan 16:00 þann 30. sept­em­ber næst­kom­andi.

Í til­kynn­ing­unni segir að lífs­kjara­samn­ing­ur­inn hvíli á for­sendum sem ekki hafi full­kom­lega stað­ist þar sem stjórn­völd hafi ekki efnt öll fyr­ir­heit í yfir­lýs­ingu sinni þann 4. apríl 2019.

Á fundi aðila kom fram vilji af beggja hálfu til þess að samn­ingar standi og halda þeir því gildi sínu þar til þeir renna út á næsta ári.

Auglýsing

Mik­il­vægt að rík­is­stjórnin vinni sér aftur inn traust

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR segir í sam­tali við Kjarn­ann að for­sendu­brest­ur­inn sem varð í end­ur­skoð­un­inni hafi nán­ast ein­göngu snúið að van­efndum stjórn­valda.

„Báðir aðilar voru sam­mála um það en það var tekin ákvörðun um það að standa við samn­ing­inn. Við munum síðan reyna eftir fremsta megi að klára þau mál sem eftir standa við næstu rík­is­stjórn hvort sem hún verði sú sama eða ein­hver önn­ur.

Af því að það er gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir sitj­andi rík­is­stjórn að vinna aftur það traust sem hún hefur tapað gagn­vart aðilum vinnu­mark­að­ar­ins. Þú getur ekki farið í þrí­hliða sam­komu­lag við aðila sem hefur þver­brotið allt sem hann hefur sagst ætla að gera og lof­að,“ segir hann.

Engin stemn­ing að fara í átök

Ragnar Þór segir að þessi nið­ur­staða hafi verið fyr­ir­sjá­an­leg og að „engin stemn­ing“ hafi verið hvorki hjá atvinnu­líf­inu né almenn­ingi að fara í átök við þessar aðstæð­ur. „Þannig að þetta er ákveð­inn létt­ir. Það er lítið eftir af samn­ingn­um, það er ekki eftir nema ár af honum þannig að við getum notað þann tíma vel. Við erum að fá hækkun núna um ára­mótin og mögu­legan hag­vaxt­ar­auka, þannig að það á tölu­vert mikið eftir að koma úr samn­ingn­um. Þetta var því mjög ánægju­leg nið­ur­staða.“

Hann seg­ist vera mjög feg­inn að ekki verið drama í kringum þessa ákvörðun „eins og oft hefur verið í kringum verka­lýðs­hreyf­ing­una og aðila vinnu­mark­að­ar­ins“.

„Mér er mjög létt. Það var ágætis hljóð í fólki á fund­inum í dag og mik­ill vilji til að fara að hefja vinnu við næstu samn­inga mjög fljót­lega. Þannig að þetta er held ég bara mjög ánægju­leg nið­ur­staða fyrir sam­fé­lagið og þjóð­ina.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent