Jón Þ. Sigurgeirsson hefur tekið til starfa í menningar- og viðskiptaráðuneytinu, en á meðal hans helstu verkefna verður að veita Lilju Dögg Alfreðsdóttur ráðherra menningar og viðskiptamál ráðgjöf í viðskipta- og efnahagsmálum, ásamt því að sinna málefnum Norðurslóða.
Frá þessu er sagt í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu í dag. Þar kemur fram að Jón hafi starfað um árabil í Seðlabanka Íslands, meðal annars sem framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs frá 2001-2006 og síðar sem framkvæmdastjóri skrifstofu bankastjóra og alþjóðasamskipta á árunum 2008-2019.
Jón hefur einnig starfað hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington, en þar starfaði hann sem fulltrúi Norður- og Eystrasaltslanda í stjórn sjóðsins um nær átta ára skeið, eða þar til í upphafi þessa árs.
Hann var jafnframt stjórnarmaður í grísku bankasýslunni í fimm ár þegar unnið var að endurreisn gríska bankakerfisins.
Einnig sat Jón um skeið í stjórn Fjármálaeftirlitsins eftir fall íslensku bankanna og þá var hann einnig stjórnarformaður eignasafns Seðlabanka Íslands og sat í framkvæmdanefnd um afnám gjaldeyrishafta, samkvæmt því sem segir í fréttatilkynningu ráðuneytisins.