Lilja segist aldrei hafa viljað selja bankann eins og gert var og að útkoman komi ekki á óvart

Einn þeirra þriggja ráðherra sem sitja í ráðherranefnd um efnahagsmál hefur stigið fram og gagnrýnt söluferlið á hlut í Íslandsbanka harðlega. Hún segir að einblína hafi átt á gæði framtíðareigenda í stað verðs en að ákveðið hafi verið að fara aðra leið.

Lilja Alfreðsdóttir er ráðherra ferðamála, viðskipta og menningar. Hún situr einnig í ráðherranefnd um efnahagsmál.
Lilja Alfreðsdóttir er ráðherra ferðamála, viðskipta og menningar. Hún situr einnig í ráðherranefnd um efnahagsmál.
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dótt­ir, ráð­herra við­skipta, ferða­mála og menn­ing­ar, seg­ist ekki hafa verið hlynnt þeirri aðferða­fræði sem var beitt við sölu á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka 22. mars síð­ast­lið­inn. Hún telur brýnt að í ljósi þeirrar gagn­rýni sem sett hefur verið fram á banka­söl­una þurfi Rík­is­end­ur­skoðun að fara yfir fram­kvæmd og aðferð­ir. Einnig kunni að vera rétt að fela fjár­­­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands að fara yfir mál­ið. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag

Hún hafi viljað almennt útboð, en ekki að bréf­in yrðu seld til val­ins hóps fjár­­­festa. Lilja, sem er einn þriggja ráð­herra rík­is­stjórnar sem situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins, seg­ist hafa komið þeim sjón­ar­miðum sínum skýrt á fram­færi í aðdrag­anda útboðs­ins. „Ég hef alltaf talið skyn­­sam­­legt að taka lít­il og hæg­fara skref. Hafa vaðið fyr­ir neðan sig. Ekki ein­blína á verð, held­ur gæði fram­tíð­ar­­eig­enda. Önnur leið var hins veg­ar val­in og því miður er fátt sem kem­ur á óvart í þessu máli og hver út­kom­an varð.“ 

Lilja seg­ist telja að hægja eigi á einka­væð­ingu Íslands­banka, þótt hún sé fylgj­andi sölu hans. Aðstæður í efna­hags­málum gefi vænt­ingar um að góð staða rík­is­sjóðs muni styrkj­ast hratt, meðal ann­ars vegna upp­gangs í ferða­þjón­ustu í sum­ar. „Í mín­um huga er líka al­­veg ljóst að Lands­­bank­inn skuli vera áfram í eigu þjóð­ar­­inn­­ar. Sala á hon­um kem­ur ekki til greina.“

Auk Lilju sitja Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins. Sú nefnd á meðal ann­ars að vera stefnu­mót­andi við upp­bygg­ingu fjár­mála­kerf­is­ins auk þess sem henni er ætlað að vera „vett­vangur sam­ráðs og sam­ræm­ingar við end­ur­skoðun fjár­mála­kerf­is­ins í sam­ræmi við þá áherslu í sátt­mála rík­is­stjórnar að breið sátt náist um end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins á Ísland­i“.

Fyrsti ráð­herr­ann til að setja fram jafn skýra gagn­rýni

Lilja er fyrsti ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar til að stíga fram og gagn­rýna sölu­ferlið með jafn afger­andi hætti. Ýmsir stjórn­ar­þing­menn sem sitja ekki í rík­is­stjórn hafa þó gert það og um helg­ina sagði Bjarni Jóns­son, þing­maður Vinstri grænna, að hann teldi að for­stjóri og stjórn Banka­sýslu rík­is­ins, sem hafði umsjón með sölu á hlut rík­is­ins í umboði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ætti að víkja til að auð­velda end­ur­heimt á traust­i. Jón Gunnar Jóns­son, for­stjóri Banka­sýsl­unn­ar, sagði við mbl.is í gær að hann ætli ekki að víkja.

Auglýsing
Enginn stjórn­ar­þing­maður hefur hins vegar farið fram á að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, verði lát­inn sæta ábyrgð á söl­unni en hann tók ákvörðun um að hefja umrætt sölu­ferli og tók end­an­lega ákvörðun um að selja hlut­ina í Íslands­banka með þeim hætti sem gert var. Þorri stjórn­ar­and­stöð­unnar hefur kraf­ist þess að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um söl­una en stjórn­ar­þing­menn lagst gegn því. Þess í stað lagði Bjarni fram beiðni til Rík­is­end­ur­skoð­unar um að fram­kvæma stjórn­sýslu­út­tekt á því hvort sala á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka í síð­asta mán­uði hafi sam­rýmst lögum og góðum stjórn­sýslu­hátt­um.

Marg­þættar aðfinnslur

Salan fór fram 22. mars síð­ast­lið­inn. Þá var 22,5 pró­sent hlutur í Íslands­banka seldur til 207 fjár­festa (tveimur til­boðum var hafn­að) með 2,25 millj­arða króna afslætti. Salan fór fram eftir svo­kall­aðri til­boðs­leið og ein­ungis þeim sem upp­fylla skil­yrði laga um að telj­ast fag­fjár­festar fengu að taka þátt. Auk stórra stofn­ana­fjár­festa á borð við líf­eyr­is­sjóði, trygg­inga­fé­lög og verð­bréfa­sjóði er það hópur fjár­fest­ing­ar­fé­laga og ein­stak­linga. Hlut­irnir voru seldir á nokkrum klukku­tímum og ráð­gjafar Banka­sýsl­unnar fengu um 700 millj­ónir króna greitt fyrir að koma þeim í verð. 

­Gagn­rýnin á ferlið hefur verið marg­þætt. Í fyrsta lagi töldu margir, meðal ann­ars þing­menn sem sitja í þeim nefndum sem gáfu álit um söl­una áður en hún fór fram, að selja ætti ein­vörð­ungu til stórra fjár­festa sem hefðu fyr­ir­ætl­anir um að vera lang­tíma­eig­endur að Íslands­banka. Komið hefur í ljós að svo var ekki, enda keyptu alls 59 fjár­festar fyrir minna en 30 millj­ónir króna og sá sem keypti fyrir lægstu upp­hæð­ina keypti fyrir ein­ungis 1,1 milljón króna. Bent hefur verið á að ekk­ert hafi kallað á að selja hafi þurfti minni fjár­festum hlut í bank­anum með afslætti. Þeir gætu ein­fald­lega keypt á eft­ir­mark­að­i. 

Í öðru lagi hafa þóknana­greiðslur til ráð­gjafa verið gagn­rýndar en einn meg­in­til­gangur þess að ráð­ast í lokað útboð var að spara kostn­að. Banka­sýslan hefur sagt að kostn­að­ur­inn, um 700 millj­ónir króna, sé ásætt­an­legur en því eru ekki allir sam­mála. 

Í þriðja lagi hefur verið gagn­rýnt hverjir fengu að kaupa, en listi yfir kaup­endur var loks birtur á mið­viku­dag eftir mik­inn þrýst­ing þar um. Á honum er að finna, meðal ann­arra, föður fjár­mála­ráð­herra, starfs­menn sölu­ráð­gjafa útboðs­ins, fjöl­marga aðila sem voru fyr­ir­ferða­miklir í banka­rekstri fyrir banka­hrun, fólk í virkri lög­reglu­rann­sókn, útgerð­ar­eig­endur og ein­stak­linga sem fáum hafði fyr­ir­fram dottið í hug að teld­ust vera fag­fjár­fest­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent