Lögreglumenn vilja meiri menntun og þjálfun í nauðgunarmálum

logreglan-net000002.jpg
Auglýsing

Mennt­un­ar­kröfur lög­reglu­manna og rann­sak­enda á Íslandi eru afar lágar og rann­sókn­ar­lög­reglu­menn telja sjálfir ríka ástæðu til að bæta nám, þjálfun og fræðslu hvað varðar rann­sóknir nauðg­un­ar- og kyn­ferð­is­brota.

Þetta kemur fram í rann­sókn þar sem við­horf og reynsla fag­að­ila sem koma að með­ferð nauðg­un­ar­mála var skoð­uð. Hildur Fjóla Ant­ons­dótt­ir, mann- og kynja­fræð­ing­ur, vann rann­sókn­ina á vegum Edd­u-önd­veg­is­set­urs og í sam­starfi við inn­an­rík­is­ráðu­neyt­ið.

Tekin voru við­töl við 26 manns sem starfa innan kerf­is­ins. Talað var við sex sér­fræð­inga á sviði heil­brigð­is- og félags­mála sem gefa álit fyrir dómi, sex rann­sókn­ar­lög­reglu­menn, fimm rétt­ar­gæslu­menn og verj­end­ur, fjóra ákærendur og fimm dóm­ara.

Auglýsing

Stóla á eigið hyggju­vit og reynslu



Rann­sókn­ar­lög­reglu­menn­irnir sögð­ust helst stóla á sitt eigið hyggju­vit og reynslu við rann­sókn­ir. Þeir hafi ekki fengið sér­stök tæki­færi til sér­þjálf­un­ar. „ [...] þú þarft bara algjör­lega að bjarga þér sjálfur og þar ger­ast mis­tök­in, þar fara hlut­irnir úrskeið­is,” er til að mynda haft eftir einum rann­sókn­ar­lög­reglu­manni í skýrsl­unni.

Grunn­nám­skeið fyrir rann­sókn­ar­lög­reglu­menn eru yfir­leitt haldin á hverju ári. Það eru fjög­urra vikna nám­skeið þar sem einum og hálfum degi er varið sér­stak­lega í ofbeld­is- og kyn­ferð­is­brot auk þess sem nem­endur fá kynn­ingu frá Neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­brota. Þá hafa verið haldin sér­nám­skeið þar sem áhersla hefur verið lögð á kyn­ferð­is­brot, en fram kom í við­tölum að ekki hafi verið nægj­an­lega mikið af slíkum nám­skeiðum í boði. Þó kemur fram í skýrsl­unni að eftir að við­tölin voru tekin hafi verið haldið tveggja vikna sér­nám­skeið um rann­sóknir kyn­ferð­is­brota.

„Þannig að það er eitt­hvað sem mér finnst vanta mjög mik­ið, það er tæki­færi til mennt­unar á þessu sviði. Það er fullt af nám­skeiðum í boði erlend­is, ein­göngu erlend­is. Ég hef beðið um að fara á hin ýmsu nám­skeið, en það er bara ekk­ert í boði út af fjár­skort­i,“ segir rann­sókn­ar­lög­reglu­maður jafn­framt í skýrsl­unni.

„Þetta snýr bara að þá þessum ein­staka lög­reglu­manni, hvað gerir hann sjálf­ur, hvað skilur hann af því sem hann er að gera og hvernig vinnur hann með það,“ segir rann­sókn­ar­lög­reglu­maður einnig.

Nið­ur­staða við­mæl­enda og skýrsl­unnar er þó sú að gæði rann­sókna hafi auk­ist á síð­ustu árum. Flestir eru til að mynda sam­mála um að með til­komu sér­stakrar kyn­ferð­is­brota­deildar hafi orðið til hópur rann­sókn­ar­lög­reglu­manna sem hafi öðl­ast mikla reynslu af rann­sókn­um. Munur á gæðum rann­sókna fari frekar eftir ein­stökum rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum en lög­reglu­emb­ætt­um.

Kynnt fyrir inn­an­rík­is­ráð­herra



Í rann­sókn Hildar Fjólu eru taldir upp ýmsir fleiri ágallar á með­ferð nauðg­un­ar­mála innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins og lagðar fram til­lögur til úrbóta á þeim. Rann­sóknin hefur verið kynnt fyrir Ólöfu Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra og mun hún nú fara yfir til­lög­urnar og meta þær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None