Lúsmýið virðist hafa náð fótfestu á Norðurlandi í sumar

Áttunda sumarið í röð herjaði lúsmýið á landann. Nærri þrefalt fleiri landsmenn telja sig hafa verið bitna af lúsmýi í sumar, tvöfalt fleiri en fyrir þremur árum. Mest var aukningin á Norðurlandi.

Fleiri íbúar landsbyggðarinnar en höfuðborgarsvæðisins telja sig hafa verið bitna af lúsmýi og mest er aukningin á Norðurlandi.
Fleiri íbúar landsbyggðarinnar en höfuðborgarsvæðisins telja sig hafa verið bitna af lúsmýi og mest er aukningin á Norðurlandi.
Auglýsing

Nærri þrír af hverjum tíu full­orðnum lands­mönnum telja sig hafa verið bitna af lús­mýi á Íslandi í sum­ar. Það eru tvö­falt fleiri en fyrir þremur árum. Fleiri íbúar lands­byggð­ar­innar en höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins telja sig hafa verið bitna af lús­mýi og mest er aukn­ingin á Norð­ur­landi.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup þar sem upp­lifum lands­manna af lúsmý þetta sum­arið er tekin sam­an.

Lús­mý, sem sækir í manna­blóð, nam hér land sum­arið 2015 og er orð­inn órjúf­an­legur hluti af sum­ar­leyfum lands­manna. Í frétt sem birt­ist á vef Nátt­úru­fræði­stofn­unar í lok júní 2015 sagði meðal ann­ars:

„Und­­ar­­leg atvik urðu um síð­­ast­liðna helgi þegar lúsmý tók að herja á íbúa sum­­­ar­húsa beggja vegna Hval­fjarð­­ar. Ekki er vitað til að slíkar atlögur hafi átt sér stað áður hér á landi. Lúsmý er ætt örsmárra mýflugna sem lang­flest sjúga blóð úr öðrum dýrum, allt frá skor­­dýrum til mann­skepna. Þeir sem fyrir atlög­unum urðu voru flestir illa útleikn­­ir.“

Tvö­falt fleiri telja sig hafa verið bitna í sumar en sum­arið 2019

Sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar telja 29 pró­sent full­orð­inna lands­manna sig hafa verið bitna af lús­mýi í sumar eða um tvö­falt fleiri en þegar spurt var fyrir þremur árum. Þá var hlut­fallið 14 pró­sent.

Auglýsing
Fleiri íbúar lands­byggð­ar­innar en höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins telja sig hafa verið bitna af lús­mýi í sum­ar, 26 pró­sent höf­uð­borg­ar­búa telja sig hafa verið bitna en 33 pró­sent íbúa lands­byggð­ar­innar telja sig hafa verið bitna. Þetta er breyt­ing frá því fyrir þremur árum þegar bitin voru tvö­falt algeng­ari á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á lands­byggð­inni.

Aukn­ingin er mest á Norð­ur­landi. Ef dreif­ingin er skoðuð eftir kjör­dæmum má sjá að hlut­fall þeirra se, telja sig hafa verið bitna af lús­mýi hækkar um 28 pró­sentu­stig í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og 25 pró­sentu­stig í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Gallup spurði: Telur þú þig hafa verið bitna/bitinn af lúsmýi á Íslandi í sumar? Mynd: Gallup

Úr einu pró­senti í 26 pró­sent

Fyrir þremur árum taldi aðeins eitt pró­sent íbúa í Norð­aust­ur­kjör­dæmi sig hafa verið bit­inn af lús­mýi en nú er hlut­fallið 26 pró­sent. Á sama tíma hefur þeim sem telja sig hafa verið bitnir í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fjölgað úr átta pró­sentum í 36 pró­sent.

Hlut­fallið hefur í raun auk­ist í öllum lands­hlut­um. Þannig hefur þeim sem telja sig hafa verið bitnir af lús­mýi í Suð­ur­kjör­dæmi auk­ist úr 16 pró­sentum í 36 pró­sent. Aukn­ingin nemur níu pró­sentum í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og tíu pró­sentu­stig á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þó sum­arið sé búið og langt í næsta skammt af lús­mý­ar­bitum er ágætt að við­halda þekk­ing­unni á vágest­inum og hvernig bregð­ast má við hon­um.

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar byggja á net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 1. til 11. sept­em­ber. Heild­ar­úr­takið var 1.694 og þátt­töku­hlut­fall var 49,6 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki