Markaðsvirði þeirra hlutabréfa í Kauphöll Íslands sem veðsett eru með beinum hætti hefur lækkað um 86,3 milljarða króna frá því í lok marsmánaðar. Þá var það 293,7 milljarðar króna og hafði aldrei verið hærra frá því að hlutabréfamarkaðurinn var endurreistur eftir bankahrun.
Í lok september var það hins vegar komið niður í 207,4 milljarða króna. Virði veðsettra bréfa hafði því lækkað um 29,4 prósent á hálfu ári. Um er að ræða langskörpustu lækkun á sex mánaða tímabili frá því að hlutabréfamarkaðurinn var endurreistur eftir hrun.
Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Nasdaq Iceland, sem rekur íslensku Kauphöllina.
Nasdaq Iceland birtir ársfjórðungslega upplýsingar um heildarveðsetningu á þeim hlutabréfum sem skráð eru á mörkuðum Nasdaq Iceland og eru jafnframt rafrænt skráðir hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð. Nánar tiltekið er um að ræða upplýsingar um meðalveðsetningu allra félaga á hlutabréfamörkuðum Nasdaq Iceland, Aðalmarkaði og Nasdaq First North, reiknað út frá vægi hvers og eins félags.
Upplýsingar um veðsetningu geta veitt ákveðnar vísbendingar um umfang skuldsetningar á hlutabréfamarkaði, það er hversu mikið fjárfestar hafa fengið að láni til að kaupa í skráðum félögum. Gögnin sýna hins vegar einungis beina veðsetningu, en taka ekki tillit til þess að lánveitandi geti verið með veð í öllum eignum lántakanda, þar með talið hlutabréfum, né innihalda þau upplýsingar um óbeinar veðtökur með gerð framvirkra samninga.
Mikil veðsetning á árunum fyrir hrun
Veðsetning hlutabréfa var mjög algeng á árunum fyrir hrun, og bjó meðal annars til mikla kerfislega áhættu hérlendis. Stór fjárfestingarfélög, sem áttu meðal annars stóra hluti í bönkum, fengu þá lánaðar háar fjárhæðir með veði í bréfum, til að kaupa önnur hlutabréf. Þegar eitthvað súrnaði varð keðjuverkun vegna krosseignarhalds.
Auk þess lánuðu íslenskir bankar fyrir hlutabréfakaupum í sjálfum sér með veði í bréfunum sjálfum. Með því var öll áhættan hjá bönkunum sjálfum ef illa færi. Tilgangurinn var að skapa markað fyrir bréf sem engin eðlileg eftirspurn var eftir, og þar með til að hafa áhrif á eðlilega verðmyndun. Hæstiréttur Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu í málum gegn öllum gömlu stóru bönkunum þremur að þetta atferli hafi falið í sér markaðsmisnotkun.
Tekið hefur verið fyrir þessa hegðun með lagabreytingum á undanförnum árum.
Bólumerki
Hlutabréfaverð hækkaði skarpt á meðan að kórónuveirufaraldurinn geisaði af fullum krafti. Á árinu 2020 hækkaði úrvalsvísitala Kauphallar Íslands, sem mælir þróun á virði bréfa þeirra tíu félaga sem eru með mestan seljanleika hverju sinni, um 20,5 prósent og heildarvísitala hlutabréfa um 24,3 prósent.
Í fyrra gekk enn betur. Bréf í öllum félögum á aðalmarkaði, og öllu nema einu á First North, hækkuðu. Alls hækkaði úrvalsvísitalan um 33 prósent og heildarvísitala hlutabréfa um 40,2 prósent. Þau tvö félög sem hækkuðu mest í virði, Arion banki og Eimskip, tvöfölduðu markaðsvirði sitt.
Samhliða þessu jókst markaðsvirði veðsettra hlutabréfa mikið. Frá marsmánuði 2020 og fram til síðustu áramóta jókst það um rúmlega 107 milljarða króna, eða 65 prósent, og var 273 milljarðar króna. Vert er að taka fram að nýskráningar áttu sér stað í millitíðinni sem útskýrir hluta hækkunarinnar.
Hækkunin var drifin áfram af ódýru lánsfé og auknum sparnaði landsmanna, en ekki undirliggjandi frammistöðu félaganna á markaði. Því bar hún öll merki bólu. Margir bjuggust því við leiðréttingu á virði skráðra hlutabréfa.
Mikil lækkun það sem af er ári
Á þessu tímabili lækkaði hlutfall beinnar veðtöku mikið og var 10,67 prósent í lok árs í fyrra. Það hafði ekki verið lægra síðan á miðju ári 2017.
Það sem af er þessu ári hefur úrvalsvísitalan hins vegar lækkað hratt, eða um næstum 30 prósent.
Í síðasta mánuði einum saman lækkaði úrvalsvísitala Kauphallar Íslands um 8,9 prósent í september. Öll félög á Aðalmarkaði nema tvö lækkuðu í verði.
Þetta var annar mánuðurinn í röð sem vísitalan lækkað umtalsvert, eftir skammvinnar hækkanir í sumar. Alls hefur þeirra þeirra 29 félaga sem skráð eru á Aðalmarkað og First North-markaðinn lækkað um 254 milljarða króna á tveimur mánuðum.