Neyðarúrræði en ekki neyðarástand

Fjöldahjálparstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hefur verið opnuð í skrifstofuhúsnæði í Borgartúni þar sem Vegagerðin var áður til húsa. Hægt verður að taka á móti 150 manns að hámarki og miðað er við að fólk dvelji ekki lengur en þrjár nætur.

fjöldahjálparstöð vernd
Auglýsing

Stjórn­völd leit­uðu til Rauða kross­ins í gær og ósk­uðu eftir að opnuð yrði fjölda­hjálp­ar­stöð fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Ástæðan er mikil fjölgun á komu flótta­fólks til lands­ins, meðal ann­ars vegna átak­anna í Úkra­ínu, sam­hliða skorti á íbúð­ar­hús­næði fyrir flótta­fólk.

Atli Viðar Thorsten­sen, sviðs­stjóri alþjóða­sviðs hjá Rauða kross­inum segir að um sé að ræða neyð­ar­úr­ræði í ástandi sem er ekki neyð­ar­á­stand. Beiðnin barst frá stjórn­völdum seint í gær og við það voru ákveðnar við­bragðs­á­ætl­anir sem eru til staðar hjá Rauða kross­inum virkj­að­ar. Skrif­stofu­hús­næði í Borg­ar­túni, þar sem Vega­gerðin var áður til húsa, verður notað undir fjölda­hjálp­ar­stöð­ina.

Auglýsing
Mögulega verður tekið á móti fólki í kvöld, ann­ars á morg­un. Pláss verður fyrir 150 manns á hverjum tíma en fjöld­inn fer eftir sam­setn­ingu hóps­ins sem þangað mun leita.

Gylfi Þór Þor­steins­son, aðgerð­ar­stjóri við mót­töku flótta­fólks, sagði í sam­tali við RÚV á föstu­dag að opnun fjölda­hjálp­ar­stöðvar væri algjört neyð­ar­úr­ræði „sem við reynum í fremstu lög að grípa ekki til því það þýðir í raun­inni að allt hús­næði sé uppurið“.

Fleiri sveit­ar­fé­lög verða að koma að verk­efn­inu

Gert er ráð fyrir að fólk gisti í fjölda­hjálp­ar­stöð­inni í tak­mark­aðan tíma, helst ekki lengur en þrjár næt­ur, og fari þaðan í önnur hús­næðisúr­ræði. „Fleiri sveit­ar­fé­lög verða að koma að verk­efn­inu ef við eigum að ná utan um það,“ segir Atli Viðar í sam­tali við Kjarn­ann.

Í síð­asta mán­uði höfðu yfir 2.600 manns sótt um alþjóð­lega vernd á Íslandi á árinu. Í búsetu­úr­ræðum Vinnu­mála­stofn­unar voru á dög­unum fleiri sem höfðu fengið stöðu flótta­manns en sem nam fjölda þeirra umsækj­enda um vernd sem sveit­ar­fé­lög þjón­usta. Til þessa dags hafa ein­ungis fimm sveit­­ar­­fé­lög und­ir­­ritað samn­ing um þátt­­töku í sam­ræmdri mót­­töku flótta­­fólks. Það eru Reykja­vík­­­ur­­borg, Hafn­­ar­fjarð­­ar­bær, Reykja­­nes­bær, Árborg og Akur­eyr­­ar­­bær.

Fjölda­hjálp­ar­stöðin verður stað­sett í her­bergjum í skrif­stofu­hús­næði í Borg­ar­túni. Hús­næðið er á nokkrum hæðum og hentar verk­efn­inu ágæt­lega að sögn Atla Við­ars en bæta þarf við sal­ern­is- og sturtu­að­stöðu. Gert er ráð fyrir sér­stakri aðstöðu fyrir fjöl­skyldu­fólk. Konur og fjöl­skyldur verða á einni hæð og karl­menn á annarri hæð.

Rauði kross­inn á Íslandi gegnir stoð­hlut­verki við stjórn­völd í almanna­vörnum og hlut­verk félags­ins felst meðal ann­ars í opnun og starf­rækslu fjölda­hjálp­ar­stöðva. Það er því Rauði kross­inn sem sér um og rekur fjölda­hjálp­ar­stöð­ina í Borg­ar­túni en í nánu sam­starfi við Vinnu­mála­stofn­un, sem þjón­ustar umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, sem og félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið sem fer með mála­flokk­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent