Standa enn við að ekki verði ráðist í frekari sölu á hlutum í Íslandsbanka

Fjármálaráðherra sagði mikilvægt að halda áfram að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka við kynningu fjárlagafrumvarpsins. Í yfirlýsingu stjórnarflokkanna frá því í vor segir að ekki verði ráðist í sölu á frekari hlutum bankans að sinni. Hún gildir enn.

Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, formenn ríkissjórnarflokkanna, sendu frá sér yfirlýsingu í apríl þar sem segir að ekki verði ráðist í frekari sölu á hlutum ríkissin í Íslandsbanka að sinni. Sú yfirlýsing stendur enn.
Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, formenn ríkissjórnarflokkanna, sendu frá sér yfirlýsingu í apríl þar sem segir að ekki verði ráðist í frekari sölu á hlutum ríkissin í Íslandsbanka að sinni. Sú yfirlýsing stendur enn.
Auglýsing

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka. Yfir­lýs­ing for­manna stjórn­ar­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­ari hlutum í Íslands­banka að sinni, stendur því enn.

Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um áfram­hald­andi sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka.

Í fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í byrjun sept­em­ber er gert ráð fyrir að eft­ir­stand­andi 42,5 pró­­sent hlutur rík­­is­ins í Íslands­­­banka verði seldur fyrir 75,8 millj­­arða króna. Það er gert þrátt fyrir yfir­lýs­ingu for­manna stjórn­ar­flokk­anna og að salan hafi verið sett á ís í vor á meðan að Rík­­is­end­­ur­­skoðun og fjár­­­mála­eft­ir­lit Seðla­­banka Íslands rann­­sök­uðu hluta síð­­asta skrefs sem stigið var í sölu­­ferl­inu.

Auglýsing

Hvorki Rík­­is­end­­ur­­skoðun né fjár­­­mála­eft­ir­litið hefur birt neins konar nið­­ur­­stöðu úr rann­­sóknum sín­um en rík­is­end­ur­skoð­andi sagði í sam­tali við Kjarn­ann í byrjun sept­em­ber að að skrif skýrsl­unnar væru á loka­metr­unum. Sam­­­­­­kvæmt könnun sem Gallup gerði í vor töldu 88,4 pró­­­­­­sent þjóð­­­­­­ar­innar að óeðli­­­­­­legir við­­­­­­skipta­hættir hafi átt sér stað við söl­una á Íslands­­­banka og 83 pró­­­­­­sent þjóð­­­­­­ar­innar var óánægð með fram­­­­­­kvæmd­ina.

„Að sinni“

Sam­kvæmt yfir­lýs­ingu for­manna stjórn­ar­flokk­anna sem send var 19. apríl kom fram að ef þörf kæmi fram fyrir frek­ari rann­sóknir þegar nið­ur­stöður Rík­is­end­ur­skoð­unar og Seðla­bank­ans liggi fyrir muni rík­is­stjórnin beita sé fyrir slíku á vett­vangi Alþing­is.

Í yfir­lýs­ing­unni seg­ir: „Ekki verður ráð­ist í sölu á frek­ari hlutum í Íslands­banka að sinn­i.“

Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu ætlar rík­­­­is­­­­stjórnin að selja eft­ir­stand­andi 42,5 pró­­­­sent eign­­­­ar­hlut sinn í Íslands­­­­­­­banka að fullu á næsta ári fyrir 75,8 millj­­arða króna. Þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti fjár­laga­frum­vapið 12. sept­em­ber síð­ast­lið­inn sagði hann mik­il­vægt að halda áfram að selja hlut rík­is­ins í Íslands­banka til þess að geta fjár­fest í innviðum með þeim pen­ingum í stað þess að taka lán fyrir slíku.

Fyr­ir­vari um frek­ari sölu í fjár­laga­frum­varp­inu

Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans, þar sem bent er á ósam­ræmi í yfir­lýs­ingu for­manna stjórn­ar­flokk­anna og því sem fram kemur í fjár­laga­frum­varp­inu er bent á að í frum­varp­inu er settur fyr­ir­vari við söl­una.

Fyr­ir­var­inn sem vísað er í er sá að verði bank­inn ekki seldur þurfi að fjár­magna með öðrum hætti. Áætlað er að sala eigna muni skila rík­­is­­sjóði 75,8 millj­­örðum króna í tekjur og gangi salan eftir muni skuldir rík­­is­­sjóðs ná að vera 33 pró­­sent af vergri lands­fram­­leiðslu í lok næsta árs. Verði ekki af sölu verður skulda­hlut­­fallið umtals­vert hærra og þá þarf að fjár­­­magna hluta af halla­­rekstri árs­ins með öðrum hætti, og þá vænt­an­­lega lán­­töku.

Í frum­varp­inu segir að salan á Íslands­­­banka yrði ekki við­var­andi þáttur í fjár­­­mögnun rík­­is­­sjóðs og því muni vera nauð­­syn­­legt að halda áfram að bæta und­ir­liggj­andi afkomu rík­­is­­sjóðs á næstu árum til þess að ná megi mark­miðum fjár­­­mála­­stefnu um að stöðva vöxt skulda sem hlut­­fall af VLF eigi síðar en árið 2026. „Það er for­­sendan fyrir því að hlut­­fallið geti farið að lækka aftur í sam­ræmi við fjár­­­mála­­reglur laga um opin­ber fjár­­­mál. Þrátt fyrir nei­­kvætt fram­lag frum­­jafn­­aðar á árinu 2023 þá minnkar það frá árinu áður og hefur í raun lítil áhrif á skulda­­þróun á árinu. Athygli vekur hvað fram­lag vaxta­­byrði er stórt. Á meðan svo er þurfa aðrir liðir að bæta það upp ef skuldir eigi að telj­­ast sjálf­­bærar til lengri tíma. Af þessu má ráða, eins og nefnt var fyrr í þessum kafla, að það er til mik­ils að vinna að ná niður vaxta­­byrði rík­­is­­sjóðs.“

Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins er jafn­framt bent á þá fyr­ir­vara að í frum­varp­inu segir „ef haldið verður áfram sölu hluta í Íslands­banka“ og að talað sé um mögu­lega frek­ari sölu eign­ar­hluta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent