Sjálfstæðisflokkur mælist nánast í kjörfylgi og Samfylkingin mælist næst stærsti flokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki mælst stærri á þessu kjörtímabili en Framsókn ekki mælst minni. Samfylkingin mælist nú næst stærsti flokkurinn og er sá flokkur sem hefur bætt mestu við sig. Píratar eru einnig með mun meira fylgi en fyrir ári.

Sjálfstæðismenn geta verið ánægðir með upptaktinn í fylgi flokksins en Vinstri græn hafa tapað flokka mest það sem af er kjörtímabili. Framsókn hefur ekki yfir miklu að brosa enda hefur fylgi flokksins fallið skarpt.
Sjálfstæðismenn geta verið ánægðir með upptaktinn í fylgi flokksins en Vinstri græn hafa tapað flokka mest það sem af er kjörtímabili. Framsókn hefur ekki yfir miklu að brosa enda hefur fylgi flokksins fallið skarpt.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 24,1 pró­sent fylgi í nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup. Fylgi flokks­ins hækkar mark­vert milli mán­aða, eða um 2,3 pró­sentu­stig, og hefur ekki mælst meira á þessu kjör­tíma­bili. Flokk­ur­inn er þó enn aðeins undir kjör­fylgi, en hann fékk 24,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum fyrir um ári síð­an. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun halda fyrsta lands­fund sinn í fimm ár í byrjun næsta mán­að­ar. Bjarni Bene­dikts­son, sem hefur verið for­maður flokks­ins síðan snemma árs 2009, verður þar senni­lega einn í fram­boði til for­manns. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur lækkað skarpt á þessu ári, en fylgi hans mæld­ist 18 pró­sent í vor. Það er nú 13,4 pró­sent og hefur ekki mælst minna á kjör­tíma­bil­inu. Flokk­ur­inn er nú að mæl­ast með 3,9 pró­sentu­stigum minna fylgi en hann fékk í síð­ustu kosn­ing­um.

Þriðji stjórn­ar­flokk­ur­inn, Vinstri græn, mæl­ast með 8,2 pró­sent fylgi og eru sem stendur sjötti stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könnun Gallup. Flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hefur tapað 4,4 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ing­um. Eng­inn einn flokkur hefur tapað meira fylgi það sem af er kjör­tíma­bili.

Auglýsing
Samanlagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna er nú 45,7 pró­sent sem er 8,6 pró­sentu­stigum minna en þeir fengu í síð­ustu kosn­ing­um. 

Sam­fylk­ingin á sigl­ingu

Sá flokkur sem sótt hefur mest í sig veðrið það sem af er kjör­tíma­bili er Sam­fylk­ing­in. Fylgi hennar mælist nú 16,3 pró­sent og hefur ekki mælst hærra síðan í jan­úar 2021. Flokk­ur­inn er nú að mæl­ast með 6,4 pró­sentu­stigum meira fylgi en í kosn­ing­unum í fyrra­haust og er sem stendur annar stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt Þjóð­ar­púlsi Gallup. Það er í fyrsta sinn á þessu kjör­tíma­bili sem það ger­ist. 

Sam­fylk­ingin heldur lands­fund sinn í lok þessa mán­aðar og þar verða for­manns­skipti. Einn hefur til­kynnt fram­boð, Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Hún hefur boðað skýr­ari stefnu sem byggir á klass­ískum jafn­að­ar­manna­grunn­i. 

Kristrún Frostadóttir verður sennilega næsti formaður Samfylkingarinnar.  Mynd: Eyþór Árnason

Píratar mæl­ast með 13,6 pró­sent fylgi sem er fimm pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. Þeir eru sem stendur að mæl­ast þriðji stærsti flokkur lands­ins. 

Við­reisn mælist svo með 8,5 pró­sent fylgi, sem er nán­ast kjör­fylgi flokks­ins, en hann fékk 8,3 pró­sent í kosn­ing­unum í fyrra. 

Sam­an­lagt hafa þessir þrír flokkar því bætt við sig 11,6 pró­sentu­stigum það sem af er kjör­tíma­bili og myndu fá 38,4 pró­sent atkvæða ef kosið væri í dag. Það er mjög svipað og þeir mæld­ust með fyrir mán­uði síðan þótt fylgið hafi aðeins færst til milli flokka. 

Þrír flokkar með í kringum fimm pró­sent

Þrír flokkar til við­bótar mæl­ast með nægj­an­legt fylgi til að ná inn á þing. Því myndu flokk­arnir á þingi verða níu ef kosið yrði í dag, en eru nú átta. Af þeim þremur sem eru á mörkum þess að mæl­ast inn nýtur Mið­flokk­ur­inn mest stuðn­ings, eða 5,4 pró­sent kjós­enda. Það er nákvæm­lega sama hlut­fall og kaus flokk­inn í fyrra.

Bæði Flokkur fólks­ins og Sós­í­alista­flokkur Íslands mæl­ast svo með 5,1 pró­sent fylgi. Sá fyrr­nefndi hefur tapað 3,7 pró­sentu­stigum á einu ári en sá síð­ar­nefndi bætt við sig einu pró­sentu­stigi.

Auglýsing

Á vef RÚV kemur fram að könn­unin hafi gerð dag­ana fyrsta sept­em­ber til ann­ars októ­ber. Rúm­lega ell­efu þús­und úr við­horfa­hópi Gallups voru í úrtaki en þátt­töku­hlut­fall var 48,3 pró­sent. Ríf­lega tólf pró­sent tóku ekki afstöðu og nær ell­efu pró­sent segj­ast ekki kjósa eða myndu skila auð­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent