Meirihlutinn í Hafnarfirði fallinn og Samfylkingin tvöfaldar fjölda bæjarfulltrúa

Mikil spenna er í sveitarstjórnarmálum í Hafnarfirði. Sitjandi meirihluti bætir við sig einu prósentustigi af fylgi en fellur samt. Samfylkingin bætir miklu við sig frá 2018 og flestir bæjarbúar vilja sjá oddvita hennar sem bæjarstjóra.

Guðmundur Árni Stefánsson.
Guðmundur Árni Stefánsson.
Auglýsing

Meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks í Hafn­ar­firði, þriðja stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, er fall­inn sam­kvæmt könnun sem Pró­sent gerði og birt er í Frétta­blað­inu í dag

Þar kemur fram að Sam­fylk­ingin mælist nú með 31 pró­sent fylgi, en hún fékk 20,1 pró­sent atkvæða í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018. Þessi fylg­is­aukn­ing skilar flokknum að óbreyttu fjórum bæj­ar­full­trúum í stað þeirra tveggja sem hann hefur í dag. 

Sem stendur mynda Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur meiri­hluta í Hafn­ar­firði. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með sama fylgi og hann fékk upp úr köss­unum fyrir fjórum árum, eða 34 pró­sent, og yrði áfram stærsti flokk­ur­inn í Hafn­ar­firði. Hann myndi hins vegar tapa einum bæj­ar­full­trúa og fá fjóra þar sem meira magn atkvæða fellur niður dautt í kom­andi kosn­ing­um, sam­kvæmt könnun Pró­sents. Við það fellur meiri­hluti Sjálf­stæð­is­manna og Fram­sókn­ar, en Fram­sókn mælist nú með níu pró­sent fylgi eftir að hafa fengið átta pró­sent árið 2018, og er áfram með einn bæj­ar­full­trú­a. 

Auglýsing
Aðrir sem ná manni inn í ell­efu manna bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar sam­kvæmt könn­un­inni eru Við­reisn og Pírat­ar, sem bæði mæl­ast með sjö pró­sent fylgi, og fá fyrir vikið sitt hvorn bæj­ar­full­trú­ann. 

Þrjú fram­boð mæl­ast ekki með mann inni: Vinstri græn, Bæj­ar­list­inn og Mið­flokk­ur­inn. Sam­an­lagt fylgi þeirra mælist um 13 pró­sent, sem eru þá atkvæði sem að óbreyttu falla niður dauð. Tvö síð­ast­nefndu eru með einn bæj­ar­full­trúa hvort í dag.

Guð­­mundur Árni Stef­áns­­son, fyrr­ver­andi bæj­­­ar­­stjóri Hafn­­ar­fjarð­­ar, ákvað að snúa aftur í stjórn­mál fyrr á þessu ári til að leiða lista Sam­­fylk­ing­­ar­innar í Hafn­ar­firði í kom­andi sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­um. Í stöð­u­­­upp­­­­­færslu á Face­book þar sem hann til­kynnti um end­ur­komu sína sagð­ist hann stefna „óhikað að því að Sam­­­fylk­ing vinni góðan sigur í bæj­­­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ingum í maí og tvö­­­faldi bæj­­­­­ar­­­full­­­trú­a­­­tölu sína, þ.e. úr tveimur í fjóra. Og að afloknum kosn­­­ingum geti Sam­­­fylk­ingin í góðu sam­­­starfi við aðra flokka tekið við for­ystu um stjórn bæj­­­­­ar­ins.

Sam­kvæmt könnun Pró­sents vilja flestir Hafn­firð­ing­ar, alls 34 pró­sent, sjá Guð­mund Árna sem næsta bæj­ar­stjóra. Skammt undan kemur Rósa Guð­bjarts­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi bæj­ar­stjóri, með 32 pró­sent.

Könn­unin var fram­kvæmd 3. til 10. maí, úrtakið var 680 manns og svar­hlut­fallið 50,5 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent