Mesti samdráttur hjá lífeyrissjóðunum frá hruni

Eignir lífeyrissjóðanna drógust saman um 184 milljarða króna í byrjun ársins og hafa þær ekki minnkað jafnmikið síðan í október 2008. Rýrnunina má rekja til styrkingar á gengi krónunnar og mótvinda á hlutabréfamörkuðum hérlendis og erlendis.

Þrír stærstu lífeyrissjóðir Íslands, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Gildi og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
Þrír stærstu lífeyrissjóðir Íslands, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Gildi og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
Auglýsing

Heild­ar­eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða rýrn­uðu um 184 millj­arða króna í jan­ú­ar. Þetta er í fyrsta skiptið sem eignir líf­eyr­is­sjóð­anna hafa rýrnað síðan í byrjun far­ald­urs­ins og lang­mesta rýrn­unin á milli mán­aða síðan í fjár­mála­hrun­inu árið 2008. Þetta kemur fram í nýbirtum hag­tölum frá Seðla­banka Íslands.

Erlendar eignir aldrei rýrnað jafn­mikið

Lang­mesta virð­is­rýrn­unin var í erlendum eign­um, en þær dróg­ust saman um 166 millj­arða króna á tíma­bil­inu, eða um sjö pró­sent. Hluta þess­arar rýrn­unar má rekja til lækk­andi hluta­bréfa­verðs á alþjóða­mörk­uð­um, en S&P 500 hluta­bréfa­vísi­talan lækk­aði um fimm pró­sent á tíma­bil­inu.

Á sama tíma styrkt­ist gengi krón­unnar um rúm tvö pró­sent gagn­vart helstu við­skipta­myntum henn­ar, sem leiðir til þess að erlendar eignir lækka í virði í krónum talið.

Auglýsing

Erlendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna hafa aldrei dreg­ist jafn­mikið saman í einum mán­uði í krónum talið síðan Seðla­bank­inn byrj­aði að mæla þær í árs­byrjun 1997. Næst­mesta rýrn­unin var í árs­lok 2018, en þá dróg­ust erlendar eignir saman um tæpa 90 millj­arða króna. Þó hafa erlendu eign­irnar áður rýrnað meira í pró­sentum talið, til að mynda dróg­ust þær saman um 13 pró­sent í októ­ber 2008.

Hluta­bréf lækka en iðgjalda­kröfur aukast

Virð­is­rýrnun inn­lendra eigna nam 17 millj­örðum króna og var hún innan við 0,4 pró­sent. Hana má alfarið rekja til minni hluta­bréfa­eign­ar, en virði þeirra dróst saman um 38 millj­arða, eða um þrjú pró­sent. Hér hefur lægra hluta­bréfa­verð einnig haft áhrif á eigna­safn­ið, en úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar lækk­aði um fimm pró­sent í mán­uð­in­um.

Á sama tíma jókst útlána­safn sjóð­anna um rúma tvo millj­arða króna, en skulda­bréfa­eign þeirra jókst um svip­aða upp­hæð. Mest var þó aukn­ingin í iðgjalda­kröfum sjóð­anna, en þær juk­ust um 13 millj­arða, sem nemur um 60 pró­sentum á milli mán­aða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent