Rúm 66 prósent landsmanna segjast hlynnt lagningu Sundabrautar

Mældur stuðningur við Sundabraut á meðal Reykvíkinga er á pari við landsmeðaltalið, samkvæmt könnun sem Maskína framkvæmdi um afstöðu til þessarar stórframkvæmdar í febrúarmánuði.

Í könnun Maskínu var spurt hvort fólk væri hlynnt eða andvígt lagningu Sundabrautar, óháð því hvort um brú eða göng yrði að ræða.
Í könnun Maskínu var spurt hvort fólk væri hlynnt eða andvígt lagningu Sundabrautar, óháð því hvort um brú eða göng yrði að ræða.
Auglýsing

Afar fáir Íslend­ingar eru and­vígir lagn­ingu Sunda­braut­ar, eða ein­ungis 6,2 pró­sent, sam­kvæmt könnun sem Mask­ína fram­kvæmdi í febr­ú­ar­mán­uði. Rúm 66 pró­sent segj­ast hins vegar mjög eða fremur hlynnt fram­kvæmd­inni og 27,5 pró­sent svara því til að þau séu í með­al­lagi hlynnt eða and­víg lagn­ingu Sunda­braut­ar.

Mask­ína spurði fólk út í afstöðu til fram­kvæmd­ar­inn­ar, burt­séð frá því hvort Sunda­brautin yrði á brú eða í göng­um, en báðir kostir koma enn til greina af hálfu yfir­valda og ekki er útséð með hvernig útfærslan verð­ur.

Flestir hlynntir á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum

Nið­ur­stöður Mask­ínu eru brotnar niður eftir kyni, aldri, búsetu, mennt­un, tekjum og hjú­skap­ar­stöðu, auk stuðn­ings við ein­staka stjórn­mála­flokka.

Skjáskot af niðurstöðum Maskínu.

Þegar bak­grunns­breyt­urnar eru skoð­aðar kemur í ljós að stuðn­ingur við Sunda­braut er mestur á Vest­ur­landi og Vest­fjörð­um, en þar segj­ast 76,2 pró­sent mjög hlynnt fram­kvæmd­inni og 12,4 pró­sent til við­bótar fremur hlynnt.

Í Reykja­vík­ur­borg, þar sem fram­kvæmdir vegna Sunda­brautar fara fram, er stuðn­ingur á pari við lands­með­al­talið, en and­staðan mælist þó ögn meiri eða 9,2 pró­sent.

Auglýsing

Ekki er neinn æpandi munur á stuðn­ingi við lagn­ingu Sunda­brautar eftir tekju­hóp­um, kynjum eða mennt­un­ar­stigi, þó að reyndar fari hlut­fall þeirra sem lýsa sig and­víga fram­kvæmd­inni yfir 10 pró­sent hjá þeim sem segj­ast hafa lokið fram­hald­námi á háskóla­stigi og yfir 12 pró­sent hjá þeim sem hafa tekjur yfir 1,2 millj­ónum á mán­uð­i.

Mest and­staða í kjós­enda­hópi Sam­fylk­ing­ar­innar – en þó mjög lítil

Er horft er á póli­tíska sviðið seg­ist meiri­hluti stuðn­ings­fólks allra flokka vera hlynnt lagn­ingu Sunda­braut­ar. Alls 92 pró­sent þeirra svar­enda sem segja að þeir myndu kjósa Mið­flokk­inn til Alþingis eru hlynntir Sunda­braut og í þeirra hópi sagð­ist eng­inn svar­andi vera and­vígur fram­kvæmd­inni. Hið sama átti við um stuðn­ings­fólk Flokks fólks­ins og Sós­í­alista­flokks­ins.

Í öllum öðrum væntum kjós­enda­hópum mátti finna ein­hverja sem sögð­ust and­vígir fram­kvæmd­inni. Mest and­staða við fram­kvæmd­ina er á meðal þeirra sem segja að þeir myndu kjósa Sam­fylk­ing­una til þings, en þar segja 13,5 pró­sent vera and­víg eða mjög and­víg lagn­ingu Sunda­braut­ar. Í þeim sama kjós­enda­hópi segj­ast þó rúm 61 pró­sent hlynnt fram­kvæmd­inni.

Brú eða göng?

Könnun Mask­ínu var fram­kvæmd dag­ana 7.-14. febr­úar og var lögð fyrir svo­kall­aða Þjóð­gátt Mask­ínu, sem er þjóð­hópur fólks sem dreg­inn er af handa­hófi úr Þjóð­skrá. Um net­könnun var að ræða.

Svar­endur voru alls voru alls 926 tals­ins, en 811 tóku afstöðu til þeirrar spurn­ingar sem hér er fjallað um og byggja pró­sentu­tölur í frétt­inni á svörum þess hóps. Alls 6,5 pró­sent allra svar­enda könn­un­ar­innar komu þeirri skoðun á fram­færi að afstaða þeirra til Sunda­brautar færi eftir því hvort hún yrði lögð á brú eða í göng­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent