Metri er alltaf metri en krónan breytist

ludvik.png
Auglýsing

Lúð­vík Elí­as­son, hag­fræð­ingur hjá Seðla­banka Íslands, fjall­aði um virði pen­inga í erindi á ör-ráð­stefnu í Háskól­anum í Reykja­vík á mið­viku­dag, í til­efni af Alþjóð­legri fjár­mála­læs­isviku. „Við notum pen­inga sem mæli­ein­ingu en það er vand­með­far­ið, því aðrar mæli­ein­ingar sem við notum eru fast-skil­greind­ar. Það eru pen­ingar ekki,“ sagði Lúð­vík og benti máli sínu til stuðn­ings að metri væri alltaf metri og að kíló væri alltaf kíló.

„Virði pen­inga finnum við út frá því verð­mæti sem við erum til­búin að gefa fyrir vör­una. Við getum alltaf skipt á pen­ingum fyrir aðra vöru,“ sagði hann og tók dæmi af gossjálfsal­anum í Seðla­bank­an­um, þar sem kók­flaska kostar 230 krón­ur. „Það þýðir að ein króna kostar 1/230 af kók­flösku. Ef virði pen­inga breyt­ist, þá breyt­ist verð annnarra vara talið í pen­ing­um. Það kall­ast breyt­ing á verð­lagi. Við tölum um verð­bólgu ef virði pen­inga minnkar og verð­hjöðnun ef það eykst,· sagði Lúðík.

Auglýsing

Bíómið­inn hækkað en er ódýr­ari

Dæmi um hvernig verð­gildi pen­inga hefur breyst er verð­hækkun á bíómiða. Bíómiði kost­aði 800 krónur árið 2003 en kost­aði 1.300 krónur árið 2013. Hann hefur því hækkað á þessum tíma um 62 pró­sent. Á sama tíma hafa galla­buxur hækkað um 122%.



„Ef við mælum þetta aftur á móti með sömu ein­ingu, rétt eins og við myndum nota metra ef við værum að mæla vega­lengd, og notum verð­gili krón­unnar frá 2007, þá hefur bíómið­inn í raun lækkað um 10 pró­sent. Bíómið­inn er orð­inn ódýr­ari, þó við borgum fleiri krónur fyrir hann.“

Hvað ef metr­inn rýrn­ar?

Frá árunum 2003 til 2013 rýrn­aði verð­gildi krón­unnar um 45%, útskýrði Lúð­vík. „Hvað hefði gerst ef metr­inn hefði rýrnað um 45 pró­sent,“ spurði hann og sagði 388 kíló­metra vega­lengd­ina milli Reykja­víkur og Akur­eyrar árið 2003 þá vera 705 kíló­metra árið 2013. „Við þyrftum alltaf að vera að upp­færa kort­in, rétt eins og við upp­færum verð­skrárn­ar.“



Lúð­vík sagði þennan mis­skiln­ing gæta víða, það er að fólk tali eins og verð­gildi krón­unnar hafi verið það sama í gegnum árin. „Svona talar fólk oft um lánin sín, sem það hefur borgað mikið af en þau hafi samt hækk­að. Það hefur borgað í allt annarri ein­ing­u,“ sagði Lúð­vík og tók fram að slíkar villur hafi ratað víða, til dæmis í skýrslu frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og í nið­ur­stöðu dóms.



Hér má sjá glær­urnar frá erindi Lúð­víks og hér má sjá erindi hans sem hefst á 41. mín­útu. Lúð­vík tók sér­stak­lega fram að skoð­anir hans end­ur­spegla ekki skoð­anir Seðla­bank­ans.



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None