Líst illa á það sem stjórnvöld ætla sér 1. maí

Miðstjórn ASÍ varar við fyrirætlunum stjórnvalda um tilslakanir á landamærum og segir hætt við því að ferðaþjónustan og tengdar greinar geti borið meiri skaða af en ella ef opnunin verði til þess að grípa þurfi til harðari sóttvarnaraðgerða innanlands.

Miðstjórn ASÍ  segir hætt við því að ferðaþjónustan og tengdar greinar geti borið meiri skaða af en ella ef opnunin verði til þess að grípa þurfi til harðari sóttvarnaraðgerða innanlands.
Miðstjórn ASÍ segir hætt við því að ferðaþjónustan og tengdar greinar geti borið meiri skaða af en ella ef opnunin verði til þess að grípa þurfi til harðari sóttvarnaraðgerða innanlands.
Auglýsing

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands varar við áformum um opn­ari landa­mæri á meðan bólu­setn­ingar hafi ekki náð þeim mark­miðum sem stefnt er að. Í ályktun mið­stjórnar segir að ávinn­ing­ur­inn af þeim áformum sé óljós.

Rík­is­stjórnin hefur boðað að frá og með 1. maí verði tekið upp lita­kóð­un­ar­kerfi á landa­mærum Íslands, sem bygg­ist á því að mis­strangar reglur gildi um komu­far­þega eftir því hver staða far­ald­urs­ins er í því ríki sem þeir koma frá.

Ein­ungis vott­orð um nei­kvætt próf og ein landamæra­skimun fyrir suma

Áætlun rík­is­stjórn­ar­innar um breytt fyr­ir­komu­lag sótt­varna á landa­mærum eftir 1. maí var kynnt 15. jan­úar og hefur verið sögð ætluð til þess að gefa ferða­þjón­ust­unni hér á landi fyr­ir­sjá­an­leika inn í sum­ar­ið.

Sam­kvæmt áætl­unum sem stjórn­völd settu fram munu þeir sem koma til lands­ins frá „græn­um“ eða „app­el­sínu­gul­um“ ríkjum þar sem 14 daga nýgengi smita er allt að 50 til 150 smit á hverja 100 þús­und íbúa geta sleppt bæði sótt­kví og síð­ari skimun hér á landi, ef þeir koma með nei­kvætt COVID-19 próf og fram­vísa á landa­mær­un­um.

Fyrirkomulagið í sóttvörnum á landamærunum eftir 1. maí næstkomandi.

Það hvort miðað er við nýgengi smita upp á 50 eða 150 á hverja 100 þús­und íbúa fer eftir því hvort yfir eða undir 4 pró­sent allra COVID-19 prófa sem tekin hafa verið í land­inu sem ferða­mað­ur­inn kemur frá hafa reynst jákvæð und­an­farna viku.

Í íslensku sam­hengi þýðir 14 daga nýgengi smita upp á 150 á hverja 100 þús­und íbúa að hér á landi hefðu greinst 39,2 smit að með­al­tali á hverjum degi á 14 daga tíma­bili.

Til mik­ils að vinna að fólk sé frjálst inn­an­lands

Mið­stjórn ASÍ geldur sem áður segir var­hug við fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda og segir hætt við því að ferða­þjón­ustan og tengdar greinar geti borið meiri skaða af en ella ef opn­unin verði til þess að grípa þurfi til harð­ari sótt­varn­ar­að­gerða inn­an­lands.

Auglýsing

„Horfa ber til þess að smit eru enn afar útbreidd í fjöl­mörgum löndum heims og þar á meðal eru nýrri afbrigði af veirunni sem enn er tak­mörkuð þekk­ing á. Það er til mik­ils að vinna fyrir sam­fé­lagið á Íslandi að fólk sé frjálst ferða sinna inn­an­lands í sumar og geti notið sum­ar­leyfa og sam­vista án hertra aðgerða,“ segir í ályktun mið­stjórn­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent