„Miðstýrt hagkerfi“ HÍ sagt óhagkvæmt og koma í veg fyrir nýliðun

Hagfræðideild Háskóla Íslands er hætt komin, samkvæmt einum af kennurum deildarinnar. Hann segir stöðuna að mörgu leyti tilkomna vegna fjárveitingarkerfis háskólans, sem sé miðstýrt og óhagkvæmt.

Háskóli Íslands
Auglýsing

Fjár­veit­ing­ar­kerfi Háskóla Íslands felur í sér mikið óhag­ræði, sem end­ur­spegl­ast meðal ann­ars í hvötum til að lág­marka kennslu og miklum halla­rekstri hag­fræði­deildar skól­ans. Þetta skrifar Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við skól­ann, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Kald­hæðn­is­leg örlög hag­fræði­deildar

Gylfi er einn af sjö fast­ráðnum kenn­urum við hag­fræði­deild háskól­ans, en á und­an­förnum árum hafa þrír kenn­arar þar hætt störf­um. Þar af hafa tveir þeirra farið á eft­ir­laun, en einn þeirra, Ásgeir Jóns­son, er nú seðla­banka­stjóri. Sam­kvæmt Gylfa er fyr­ir­séð að tveir aðrir kenn­arar í deild­inni fari á eft­ir­laun á næstu tveimur til þremur árum.

„Þrátt fyrir að mörgu leyti ágætan árangur af starfi hag­fræði­deildar þá ber skugga á þegar kemur að fjár­hag deild­ar­inn­ar,“ segir Gylfi og bætir við að það sé kald­hæðn­is­legt að sú deild sem fjallar um rekstur fyr­ir­tækja og kostn­að­ar- og ábata­grein­ingu hafi verið rekin með halla flest árin frá því hún var fyrst sett á lagg­irn­ar.

Auglýsing

Þessi halli gerir hag­fræði­deild­inni erfitt fyrir að bæta við sig starfs­mönn­um, þrátt fyrir að kenn­urum hafi fækkað sem um mun­ar. Vonir standa nú til að hægt verði að ráða einn kenn­ara í við­bót og verða þeir því sex í árs­lok 2025, sem er um helm­ings­fækkun frá því sem var fyrir nokkrum árum.

Ójöfn fjár­mögnun og skrýtnir hvatar

Sam­kvæmt Gylfa er hall­inn til­kom­inn vegna fjár­mögn­un­ar­kerfis Háskóla Íslands, sem sé byggt á svoköll­uðu deili­lík­ani. Líkanið úthlutar fasta fjár­hæð fyrir hvern útskrif­aðan nem­anda sem útskrif­ast innan hverrar deild­ar, en fjár­hæðin á hvern nem­anda er mis­mun­andi eftir deild­um. Þannig fær hug- og félags­vís­inda­deild, ásamt stærð­fræði- og tölv­un­ar­fæði­deild minnsta pen­ing­inn fyrir hvern útskrif­aðan nem­anda, á meðan þau eru mun hærri í verk­fræði og raun­vís­ind­um, kennslu­fræðum og heil­brigð­is­vís­ind­um.

Til við­bótar við ójafna fjár­mögnun bendir Gylfi á að kerfið bjóði upp á ýmsa aðra skrýtna hvata, líkt og að kenn­arar hvetji ekki nem­endur sína til að taka nám­skeið í öðrum deildum eða að þeir leggi ofurá­herslu á rann­sóknir í stað kennslu en vilji þó fjölga nem­end­um.

„Eins og í mið­stýrðum hag­kerfum felur mið­stýrt hag­kerfi Háskóla Íslands í sér margs konar óhag­ræð­i,“ bætir Gylfi við. „Það er offram­leiðsla á sumu og ekki nóg fram­leitt af öðru.“ Þá segir hann að hvati kenn­ara til að lág­marka kennslu gera þá dýr­ari og að hækk­andi kostn­aður þeirra komi í veg fyrir nýlið­un.

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent